Fréttablaðið - 08.03.2017, Qupperneq 22
Fólk er kynningarblað
sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is,
s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351
Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439
| Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
gerlinde Kaltenbrunner er víðfræg fjallgöngukona sem heldur fyrirlestur í eldborg í Hörpu á sunnudaginn klukkan 20. nordicpHotos/getty
„Gerlinde á mjög merkilegan
feril að baki og er fyrsta konan
sem hefur gengið á öll hæstu fjöll
í heimi án súrefnis,“ segir Páll
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Ferðafélags Íslands, en þessi
merka kona var fengin til að vera
aðalfyrirlesari á Háfjallakvöldi
FÍ í tilefni af 90 ára afmælisári
félagsins.
Gerlinde heldur fyrirlesturinn
Passion 8000, Dream of a life time.
„Þar sýnir hún stórbrotnar mynd-
ir af helstu fjöllum sem hún hefur
verið að klífa,“ segir Páll og upp-
lýsir að Gerlinde sé austurrísk-
ur hjúkrunarfræðingur en hafi í
rúmlega þrjá áratugi starfað sem
atvinnufjallgöngukona. „Hún varð
heimsfræg í ágúst 2011 þegar hún
náði tindi K2 í sinni sjöundu til-
raun en það er erfiðasta fjall í
heimi. Um leið varð hún fyrsta
konan í heiminum til að klífa alla
fjórtán hæstu tinda veraldar, sem
allir eru yfir 8.000 metra háir, án
viðbótarsúrefnis,“ segir Páll en
fyrir nokkrum árum var Ger linde
valin af National Geo graphic sem
ein af fremstu ævin týrakonum
og -mönnum heims. „Gerlinde
þykir frábær fyrirlesari og hefur
ferðast um allan heim með fyrir-
lestur sinn þar sem hún sýnir stór-
brotnar myndir af hæstu fjöllum
heims. Hún er einnig þekkt fyrir
störf sín að mannúðarmálum og
er eftir sóttur fyrir lesari hjá fyr-
irtækjum um það hvernig hægt er
að ná markmiðum sínum í lífinu.“
Fyrstur manna á everest
án súreFnis
Auk Gerlinde mun annar víð-
frægur fjallgöngumaður halda
fyrirlestur, en það er Þjóðverj-
inn Peter Habeler. „Peter er einn
frægasti fjallgöngumaður sög-
unnar en 8. maí 1978 varð hann,
ásamt Reinhold Messner, fyrst-
ur til að sigrast á hæsta fjalli
heims, Everest, án viðbótarsúr-
efnis. Hann hefur auk þess klif-
ið mörg af hæstu fjöllum jarð-
ar og flesta af erfiðustu tindum
og klettaveggi Alpafjalla,“ segir
Páll en þrátt fyrir að vera kominn
á miðjan áttræðisaldur er hann
enn á fullu í krefjandi fjallgöng-
um og fjallaskíðaferðum víða um
heim. Í fyrirlestri sínum, Peter
Habeler: A passion to climb, mun
Peter segja frá göngu- og klifur-
ferðum á marga af erfiðustu tind-
um Alpafjalla.
Þau Gerlinde og Peter verða
á landinu í nokkra daga og mun
Ferðafélag Íslands skipuleggja
ferðir fyrir þau á meðan á dvöl
þeirra stendur. „Við ætlum að
sýna þeim ýmislegt, fara á jökla,
síga niður í Þríhnúkagíg og fleira
spennandi,“ segir Páll og er
spenntur fyrir komu þessa merka
fjallafólks.
FÍFl sýnir myndir
Nokkrir aðrir dagskrárliðir verða
á Háfjallakvöldinu. Einn þeirra er
fyrirlestur Ólafs Más Björnssonar
og Tómasar Guðbjartsonar, sem
eru læknar og forsprakkar Félags
íslenskra fjallalækna (FÍFL). Þeir
hafa jafnframt verið virkir í starfi
Ferðafélags Íslands og staðið fyrir
göngu- og fjallaskíðaferðum fyrir
félagið um hálendi Íslands. „Í fyr-
irlestri sínum munu þeir félagar
sýna stórbrotnar ljósmyndir og
myndbönd, sem sum eru tekin
með dróna, frá helstu náttúru-
perlum Íslands, meðal annars frá
Kverkfjöllum, Vonarskarði, Þjórs-
árverum, Holuhrauni, Birnudals-
tindi og Ljósufjöllum á Snæfells-
nesi,“ upplýsir Páll.
styrkja göngustÍgagerð
Í Þórsmörk
Allur ágóði af Háfjallakvöldinu
rennur til góðs málefnis. „Vinir
Þórsmerkur fá að njóta ágóðans
en þeir standa fyrir uppbyggingu
á göngustígum í Þórsmörk,“ segir
Páll og telur mikið verkefni fram
undan í þeim málum.
Afmælisár Ferðafélags Íslands
hófst með borgargöngu 15. janú-
ar en fjölmargir viðburðir verða á
árinu í tengslum við afmælið. „Af-
mælisdagurinn er í nóvember og
þá verðum við með veislu í Safna-
húsinu á Hverfisgötu og sögulega
sýningu um starf félagsins.“
Háfjallakvöldið er einn af há-
punktum afmælisársins. Það er
öllum opið, aðgangseyrir er 1.000
krónur og hægt er að kaupa miða á
harpa.is, tix.is og við inngang.
á hæstu Fjöll heims án súreFnis
Frægasta núlifandi fjallgöngukona í heiminum, gerlinde Kaltenbrunner, er aðalfyrirlesari á Háfjallakvöldi Ferðafélags
Íslands sem haldið verður í Eldborg í Hörpu á sunnudaginn. Kvöldið er haldið í tilefni af 90 ára afmæli FÍ.
sólveig
gísladóttir
solveig@365.is
peter Habeler fór fyrstur manna á
everest án viðbótarsúrefnis.
Fréttablaðið eykur þjónustu sína
við lesendur á landsbyggðinni.
Þú getur nálgast frítt eintak af Fréttablaðinu á
eftirfarandi sölustöðum víðsvegar um landið:
8 . m a r s 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a G U r2 F ó l K ∙ K y n n I n G a r b l a Ð ∙ X X X X X X X X ∙ K y n n I n G a r b l a Ð V I Ð b U r Ð I r
0
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
7
-2
6
0
C
1
C
6
7
-2
4
D
0
1
C
6
7
-2
3
9
4
1
C
6
7
-2
2
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K