Fréttablaðið - 08.03.2017, Síða 26
Útgefandi
365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301
UmSjónarmaðUr aUglýSinga
Jón Ívar Vilhelmsson| jonivar@365.is | s. 512-5429
ÁbyrgðarmaðUr
Svanur Valgeirsson
Veffang
visir.is
Mottumars er árlegt átaksverk-
efni Krabbameinsfélagsins og er
tileinkað baráttunni gegn krabba-
meini í körlum. Átakið var fyrst
haldið árið 2009 undir heitinu
„Karlmenn og krabbamein“ sem
svo þróaðist í Mottumars árið eftir
með tilheyrandi skeggsöfnun.
Að sögn Kolbrúnar Silju Ás-
geirsdóttur, kynningar- og fjár-
öflunarstjóra Krabbameinsfé-
lagsins, er inntak átaksins að
hvetja karlmenn til að þekkja ein-
kenni krabbameins og stuðla að
jákvæðum breytingum á lífshátt-
um til að koma í veg fyrir krabba-
mein. „Átakið er fyrst og fremst
fræðslu- og árveknisátak. Helstu
markmiðin eru að fækka þeim
körlum sem greinast með krabba-
mein og stuðla að því að lengja líf
þeirra sem greinast og jafnframt
auka lífsgæði þeirra. Við finnum
ávallt mismunandi leiðir að þess-
um markmiðum og sníðum eftir
því hvaða málefni er brýnast
hverju sinni.“
Árið 2015 var Mottumars til-
einkaður hvatningu til karla um
að fylgjast með einkennum rist-
ilkrabbameins og ári síðar var
lögð áhersla á að karlar þekktu
og væru vakandi fyrir einkenn-
um blöðruhálskirtilskrabbameins
sem er algengasta krabbamein
karla. „Mottukeppnin var einnig
mjög vinsæl fyrstu árin og setti
sannar lega sinn brag á samfélag-
ið. Í fyrra gáfum við svo út að
áheitakeppnin yrði sett í smá frí
þar sem mjög fáir tóku þátt í fyrra.
En aldrei að vita hvort hún stingur
ekki upp kollinum síðar.“
Hættu nú alveg
Í ár verður lögð áhersla á að hvetja
karla til að velja sér tóbakslaust
líf og njóta þannig betra og lengra
lífs. „Árlega greinast að meðal-
tali um 140 karlar með krabba-
mein sem orsakast af tóbaksneyslu
og 87 þeirra látast. Við sem sam-
félag höfum náð miklum árangri í
að minnka langalvarlegasta form
tóbaksneyslu, sígarettureyking-
ar, en á meðan hefur munntóbaks-
neysla vaxið hratt, sérstaklega
meðal yngri karla. Munntóbaks-
neysla eykur líkur á þremur alvar-
legum krabbameinum; í munnholi,
vélinda og brisi.“
Að sama skapi hefur náðst nán-
ast að útrýma reykingum í grunn-
skólum að sögn Kolbrúnar en þau
hafa þó áhyggjur af þeirri stað-
reynd að einn af hverjum fjór-
um nemum í 10. bekk grunnskóla
hefur prófað rafsígarettur. „Mottu-
mars er aðeins fyrsta skrefið því
við munum í framhaldinu dreifa
fræðsluefni til skóla og víðar til að
fylgja þessu eftir. Við höfum gert
stutt fræðslumyndbönd og létt próf
um allar helstu leiðir tóbaksneyslu
sem við hvetjum alla til að skoða
og spreyta sig á.“
Kolbrún hvetur alla til að skoða
fræðsluefnið á mottumars.is og
deila því með öðrum svo að sem
flestir séu minntir á það sem þeir
vita nú þegar: Að tóbaksneysla er
skaðleg og að við vitum betur. „Við
hvetjum alla þá sem nota tóbak
daglega til að nota tækifærið í
Mottumars og skrá sig í „Hættu
nú alveg“ keppnina sem Krabba-
meinsfélagið og Reyksíminn
standa fyrir og er ætluð þeim sem
vilja hætta að nota tóbak. Hægt
verður að skrá sig í keppnina til
15. mars. Þá tekur við tveggja
vikna undirbúningur og miðviku-
daginn 29. mars er síðan stóri dag-
urinn „Hætt/ur að nota tóbak“ þar
sem þátttakendur eiga að vera
hættir að nota tóbak. Starfsfólk
Reyksímans verður keppendum til
aðstoðar með úrræði og stuðning
en það eru hjúkrunarfræðingar
sem eru sérmenntaðir í aðstoð við
þá sem vilja hætta að nota tóbak.“
Margar styrktarleiðir
Veglegur vinningur verður í boði
fyrir einn af þeim sem komast í
pottinn tóbakslausir þann 2. maí
en þá verða þátttakendur búnir að
vera tóbakslausir í fimm vikur. „Í
aðalvinning er auðvitað lengra og
betra líf en því til viðbótar mun
einn heppinn vinna flug til Evr-
ópu frá WOW, útsýnisflug fyrir
tvo yfir Reykjavík og fjöllin í
kring með lendingu á Esjunni og
Hótel Rangá gefur gistingu í eina
nótt með þriggja rétta kvöldverði
og morgunverðarhlaðborði fyrir
tvo. Auk þess gefur Olís/ÓB 50.000
króna inneign á bensíni.“
Einstaklingar og fyrirtæki
geta styrkt átakið og Krabba-
meinsfélagið með ýmsum hætti.
„Hægt er að gerast velunnari fé-
lagsins með mánaðarlegu fram-
lagi eða stöku framlagi inn á vef
okkar www.mottumars.is. „Þeir
sem vilja styðja við forvarna- og
fræðslustarf félagsins geta styrkt
átakið um 1.900 krónur með því að
senda SMS-ið Motta í 1900. Einn-
ig geta fyrirtæki styrkt okkur með
ýmsum hætti, m.a. keypt rafræna
mottu til að nota á vefi sína, í und-
irskrift eða á samfélagsmiðlum.“
Árlega greinast að
meðaltali um 140 karlar
með krabbamein sem
orsakast af tóbaksneyslu
og 87 þeirra látast.
Kolbrún Silja Ásgeirsdóttir
„Átakið er fyrst og fremst fræðslu- og árveknisátak. Helstu markmiðin eru að fækka þeim körlum sem greinast með krabbamein og stuðla að því að lengja líf þeirra sem
greinast og jafnframt auka lífsgæði þeirra,“ segir Kolbrún Silja Ásgeirsdóttir, kynningar- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélagsins. mynd/VilHelm
lengra og betra líf í aðalvinning
Í ár leggur Mottumars áherslu á að hvetja karla til að velja sér tóbakslaust líf og njóta þannig betra og lengra lífs. Átakið er fyrst og fremst
fræðslu- og árveknisátak. Átakið og Krabbameinsfélagið er hægt að styrkja með ýmiss konar hætti á síðunni www.mottumars.is.
Starri freyr
jónsson
starri@365.is
Kickup inniheldur tíu
vítamín og þrjú steinefni
ásamt guarana, ginseng
og koffíni.
„Það er vitað mál að stór hluti
fíknarinnar tengist því að hafa
eitthvað undir vörinni. Kickup
svalar þeirri þörf. Notendur upp-
lifa samskonar sviða og þeir eru
vanir. Varan inniheldur þó hvorki
tóbak né nikótín,“ segir Guðmund-
ur Már Ketilsson, eigandi Kickup
á Íslandi. Kickup inniheldur á hinn
bóginn tíu vítamín og þrjú stein-
efni ásamt guarana, ginseng og
koffíni. Sömuleiðis xylitol sem
verndar tennur og góm. Til eru
fjórar tegundir; strong, salmíak,
soft mint og real white.
Aðspurður segir Guðmundur
Kickup algerlega skaðlaust. Það
hefur verið á markaði hér á landi
síðastliðin þrjú ár og hefur að hans
sögn hjálpað mörgum. „Viðtökurn-
Hefur hjálpað mörgum að hætta munntóbaksnotkun
Kickup er munntóbakslíki sem hefur gagnast mörgum sem vilja draga úr eða hætta munntóbaksnotkun. Varan er flokkuð sem
fæðubótarefni og getur hjálpað munntóbaksnotendum sem vilja hætta að komast yfir erfiðasta hjallann.
til eru fjórar tegundir; strong, salmiak, soft mint og real white.
ar hafa verið frábærar og ég hef
fengið fjölda skilaboða frá fólki
sem hafði lengi reynt að hætta
munntóbaksnotkun og tókst það
loks með hjálp Kickup.“
Vörurnar fást í apótekum og
öllum helstu matvöruverslunum.
„Þær eru hugsaðar fyrir fólk sem
vill hætta að nota munntóbak og
því beinum við þeim tilmælum til
seljenda að takmarka söluna við að
minnsta kosti sextán ára aldur.“
mottUmarS Kynningarblað
8. mars 20172
0
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
7
-0
D
5
C
1
C
6
7
-0
C
2
0
1
C
6
7
-0
A
E
4
1
C
6
7
-0
9
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K