Fréttablaðið - 08.03.2017, Blaðsíða 32
Staðreyndir um
tóbak og reykingar
Rannsóknir sýna að sígarettureykingar auka hættu á 17 tegundum
krabbameins og eru flest tilfellin af völdum lungnakrabbameina, sem er
algengasta dánarorsök vegna krabbameina. Ágætur árangur hefur náðst í
tóbaksvörnum undanfarin ár en betur má ef duga skal.
l Flestir kúgast og þeim líður illa
fyrst þegar þeir nota tóbak. Það
eru eðlileg viðbrögð. Líkaminn er
að senda skilaboð um að tóbak sé
eitur og að best sé að forðast það.
Menn byrja því ekki að nota tóbak
af því að þeim finnst það gott
l Eftir að hafa ánetjast tóbaki er
mjög erfitt að hætta. Einungis 3%
tekst að hætta í fyrstu tilraun, eða
einum af hverjum þrjátíu
l Nikótín og önnur efni í tóbaki mæl-
ast í sáðvökva karla sem nota
tóbak. Sáðvökvinn gegnir því hlut-
verki að vera næring fyrir sáð-
frumurnar. Efnin í munntóbaki
dreifast þannig um allan líkamann
og geta haft áhrif á starfsemi fjar-
lægra líffæra
l Því yngri sem maður er þegar fikt-
ið byrjar því meiri líkur eru á að
verða háður tóbaki því heilinn
hefur ekki tekið út fullan þroska
fyrr en um tvítugt og er því við-
kvæmari fyrir ávanabindandi
efnum en hjá fullorðnum. Lang-
flestir fullorðnir sem eru háðir tób-
aki byrjuðu að fikta fyrir tvítugt
l Nikótín eykur hjartsláttartíðni
og blóðþrýsting, sem getur valið
hjartsláttartruflunum
l Ef móðir neytir nikótíns í ein-
hverju formi á meðgöngu getur
heili barnsins orðið fyrir varan-
legri þroskaskerðingu ásamt því
að nikótínið eykur líkur á fyrirbura-
fæðingu og andvana fæðingum
l Um 90% lungnakrabbameina má
rekja til tóbaksreykinga.
Tíðni reykinga hefur lækkað jafnt
og þétt undanfarna áratugi. Þó
reykja enn 14% karla, 9% daglega
og 5% sjaldnar en daglega. Það
eru um 17. 700 karlar.
l Lífslíkur reykingamanna eru að
meðaltali 10 árum minni og dánar-
tíðnin er um þrisvar sinnum hærri í
samanburði við þá sem hafa aldrei
reykt.
l Sígarettureykingar auka líkur á 17
tegundum krabbameina.
l Yfir 7.000 mismunandi efni og
efnasambönd finnast í tóbaki, um
250 þeirra eru skaðleg og 70 eru
skráð sem krabbameinsvaldandi
hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
uninni (WHO).
l Meira en 3.000 börn og ungling-
ar í grunn- og framhaldsskólum
landsins reykja daglega.
l Meðalreykingamaður eyðir um
hálfri milljón króna í sígarettur á
ári. Eftir 20 ár er hann búinn að
eyða 10 milljónum.
l Líkt og að skerða blóðflæði til
hjartans þá skerða efnin í tóbaks-
reyk einnig blóðflæði til getnað-
arlimsins sem getur valdið stinn-
ingar vandamálum.
l Þeir sem hætta að reykja fyrir 35
ára aldur eru með svipaðar lífslík-
ur og þeir sem aldrei hafa reykt.
Þeir sem hætta milli 35 og 44 ára
minnka líkur sínar á að deyja úr
reykingatengdum sjúkdómum um
90% og þeir sem hætta milli 45 og
54 ára minnka líkurnar um 60%.
l 23% ungra karla á aldrinum 18 til
24 ára nota munntóbak daglega
eða um 4.000 karlar á þessum
aldri
l Um 26% þeirra sem nota reyk-
laust tóbak reykja einnig sígar-
ettur
l Munntóbak eykur líkur á krabba-
meini í munnholi, brisi og vélinda
l Rafsígarettur eru eflaust mun
skárri kostur en sígarettur. Það
er hins vegar of snemmt að segja
til um langtímaáhrif af notkun
þeirra.
l Um fjórðungur íslenskra barna
í 10. bekk og helmingur fram-
haldsskólanema hafa notað raf-
sígarettur.
l Rannsóknir sýna að börn sem
nota rafsígarettur eru líklegri til
að leiðast út í sígarettureykingar.
l Ungum börnum stafar bráð
hætta af nikótínvöka sé hann
drukkinn. Nikótínvökvi er gjarn-
an seldur í sælgætisbúningi. Ein-
ungis einn millilítri af nikótíni
getur valdið öndunarstoppi og
dauða hjá ungu barn.i
l Embætti landlæknis og Alþjóða
heilbrigðismálastofnunin (WHO)
mæla með því að rafsígarettur
falli undir tóbaksvarnalög, líkt og
venjulegar sígarettur.
Óbeinar reykingar
l Öndun barna er hraðari en hjá
fullorðnum og lungu þeirra
eru minni að rúmmáli. Barn
andar því að sér hlutfallslega
meira af krabbameinsvaldandi
efnum í sígarettureyk en full-
orðinn myndi gera í sama um-
hverfi
l Börn sem anda að sér óbein-
um reyk eru líklegri en önnur
til að þjást af astma, eyrna-
bólgum, öndunarfærasjúk-
dómum og að deyja vöggu-
dauða
Á heimsvísu eru
börn um 10% af þeim
sem látast af völdum
óbeinna reykinga.
Almennt um tóbak
Sígarettureykingar
90%
lungnakrabba-
meina má rekja
til tóbaksreyk-
inga.
82
karlar greinast
árlega með lungna-
krabbamein og
64 karlar látast úr
meininu
Rafsígarettur
íslenskra barna
í 10. bekk og
helmingur fram-
haldsskólanema
hafa notað raf-
sígarettur.
1/4
Meðalreykingamaður eyðir um
500.000 kr.
í sígarettur á
ári. Eftir 20 ár
er hann búinn
að eyða
10 milljónum.
23%
ungra karla á aldrinum 18 til
24 ára nota munntóbak dag-
lega eða um 4.000 karlar á
þessum aldri.
Munntóbak
DAGSKRÁ
13:00 Setning. Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra setur þingið.
13:10 Skattlagning í þágu bættrar lýðheilsu. Ángel López, prófessor í
hagfræði við Technical University of Cartagena (UPCT) á Spáni, fjallar um
hvernig við getum notað skattlagningu til að bæta heilsu þjóðarinnar.
13:50 Rafsígarettur – undur eða ógn? Charlotte Pisinger, vísindamaður við
Research Centre for Prevention and Health í Kaupmannahöfn, fjallar um
hvort rafsígarettur leiði til byltingar í samfélaginu og hvort ógn stafi af þeim.
14:40 Fundarhlé. Veitingar í boði fyrir gesti.
15:00 Kostnaður þjóðfélagsins af reykingum. Jónas Atli Gunnarsson kynnir
fyrstu niðurstöður úr könnun Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands.
15:20 Pallborðsumræður. Guðmundur Þorgeirsson stjórnar umræðum.
Ángel López, Charlotte Pisinger, Jónas Atli Gunnarsson og Birgir
Jakobsson landlæknir svara spurningum úr sal.
16:00 Dagskrárlok.
Fundarstjóri er Guðmundur Þorgeirsson, prófessor, sérfræðingur í hjartalækningum.
Þingið fer að mestu fram á ensku.
Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis. Tilkynna þarf þátttöku
með því að senda póst á krabb@krabb.is í síðasta lagi 13. mars.
HÆTTU NÚ ALVEG!
Málþing um tóbaksvarnir
14. mars, kl. 13–16 í Kaldalóni, Hörpu
MottuMarS Kynningarblað
8. mars 20178
0
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
6
7
-1
2
4
C
1
C
6
7
-1
1
1
0
1
C
6
7
-0
F
D
4
1
C
6
7
-0
E
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K