Fréttablaðið - 08.03.2017, Qupperneq 37
Árni bendir á þá umræðu sem
komið hefur upp í þjóðfélaginu með
tilkynningum H&M og Costco um
opnanir verslana þeirra hér á landi.
Umræðunni hafi meðal annars fylgt
vitundarvakning meðal neytenda
þegar komi að verðlagningu og sam-
keppni sem hafi leitt til þess að mörg
verslunarfyrirtæki séu nú að skoða
sín mál.
„Svo er vefverslun að aukast mikið.
Þetta kallar á það hjá öllum, eins og
við höfum gert, að menn skoði bæði
innkaupsverðið og hvernig þeir geta
hagrætt í rekstri og boðið lægra verð.
En við verðum líka að horfa til þess
að við erum með fólk í vinnu og
viljum borga góð laun.“
Loka Dorothy Perkins
Verslunarfyrirtækið Hagar, sem
hefur síðustu ár rekið margar af
þekktustu tískuvöruverslunum
landsins, hefur ákveðið að loka
báðum Topshop-verslunum sínum
í Smáralind og Kringlunni. Finnur
Árnason, forstjóri Haga, staðfesti
þetta við Vísi og sagði ákvörðunina
hafa verið tekna í ljósi þess að stutt
væri eftir af leigusamningum um
verslunarplássin tvö. Daginn áður en
frétt Vísis birtist höfðu Hagar lokað
verslun Hagkaupa á 2. hæð Kringl-
unnar þar sem H&M mun opna síðar
á árinu. Þar höfðu þeir rekið eina af
fimm fataverslunum F&F hér á landi.
Ekki kom fram í frétt Vísis að
Hagar tóku í síðasta mánuði einnig
ákvörðun um að loka fataversluninni
Dorothy Perkins í Smáralind sem var
rekin við hliðina á Topshop. Verslun-
unum þremur verður öllum lokað í
maí en þær eru starfræktar með sér-
leyfissamningum við Arcadia Group
Brands í Bretlandi.
H&M í Smáralind verður einn-
ig opnuð síðar á árinu og þá í sama
verslunarplássi og Debenhams var
áður í. Sú verslun var einnig rekin
af Högum og henni lokað í byrjun
árs. Hagar ráku einnig Warehouse-
deild í Debenhams í Smáralind en
tískuvöruverslun undir því nafni var
einnig rekin í Kringlunni þangað til
í nóvember í fyrra. Þá lokuðu Hagar
einnig Karen Millen í Smáralind í
febrúar 2016 og Evans, fataverslun
Erum að leita að samstarfsaðila
Uppbygging og rekstur hótels og hótelíbúða.
Fyrirhugað er að hea framkvæmdir við 150-200 herbergja
hótel ásamt hótelíbúðum við Skeljabrekku í Kópavogi.
Byggingarlóðin er tilbúin til byggingar
Byggingarmagn á lóð allt að 12.700 fm
Rekstraraðili getur komið að hönnun og skipulagi hótelsins frá byrjun
Glæsilegt útsýni m.a. yr Fossvog og Öskjuhlíð
Mikil uppbygging er að heast á svæðinu
Agnar Agnarsson
Aðstoðarmaður fasteignasala/
Lauk lög.námi 2003.
S: 820-1002
agnar@domusnova.is
Haukur Halldórsson
Hdl., Löggiltur fasteignasali
Ábyrgðarmaður Domusnova
Nýbýlavegur 8 - 200 Kópavogur - Austurvegur 4 - 800 Selfoss - www.domusnova.is - S: 527 1717
S: 789-5560
domusnova@domusnova.is
Framkvæmdastjóri Smáralindar segir eigendur fyrirtækisins eiga í viðræðum við erlend vörumerki í fataverslun. FréttabLaðið/anton brink
12%
samdráttur varð í fataverslun
í janúar milli ára.
42%
aukning var í erlendum net-
sendingum hingað til lands á
síðasta ári.
Albert Þór Magnússon, einn eig-
enda Lindex á Íslandi, sem rekur
fataverslanir í Kringlunni, Smáralind
og á Glerártorgi á Akureyri, segir
ekki stefnt að fækkun á fermetra-
fjölda fyrirtækisins. Fagnar hann
komu H&M og segist horfa bjart-
sýnn fram á veginn.
„Það er mikilvægt að horfa
til þess að þeir eru með stóra
markaðshlutdeild hér nú þegar.
Viðbrögðin okkar eru því engin
önnur en þau að við munum halda
áfram og ætlum ekki að fækka
fermetrum. Enda höfum við byggt
okkar verslanir upp þannig að þar
sé viðráðanlegur fermetrafjöldi.
Við fögnum þessum breytingum og
samkeppni en við höfum okkar sér-
stöðu sem við munum halda áfram
að keyra á,“ segir Albert.
Lindex var opnuð í Smáralind í nóvember 2011. FréttabLaðið/anton brink
albert Þór
Magnússon,
einn eigenda
Lindex á Íslandi.
Horfir bjartsýnn fram á veginn
með stærðir í 14-32, í júní í fyrra.
Fyrirtækið rekur enn tvær verslanir
Zöru, Karen Millen í Kringlunni og
íþrótta- og útivistarvöruverslunina
Útilíf.
H&M hefur mikil áhrif
Guðjón Auðunsson, forstjóri fast-
eignafélagsins Reita, segir stjórn-
endur Kringlunnar nú vinna með
erlendum ráðgjöfum að fram-
tíðarþróun verslunarmiðstöðvar-
innar og svæðisins í kring. Til-
efnið sé 30 ára afmæli Kringlunnar
í ágúst næstkomandi en einnig
breytingar í verslunarháttum og þá
ekki síst vegna aukinnar hlutdeildar
netverslunar.
„Við höfum sett af stað vinnu
með erlendum ráðgjöfum og þeir
munu skoða með okkur hvernig
allt Kringlusvæðið getur þróast til
næstu ára og áratuga. Hvaða drif-
kraftar það eru sem breyta þessu
umhverfi, hvaða áhrif netverslunin
hefur og í hvaða átt þetta er allt að
stefna. Erlendis hafa verslunarmið-
stöðvar tekið að sér meira félagslegt
hlutverk eins og aukna afþreyingu og
annað slíkt og það er vert að skoða
þau mál,“ segir Guðjón.
Þessi ákvörðun ykkar um að taka
H&M inn í Kringluna virðist hafa
hreyft við mörgum verslunareig-
endum í húsinu?
„H&M með ákvörðun sinni um
innkomu inn á íslenska markaðinn
hefur auðvitað mikil áhrif. Það er
staðreynd að stór hluti af íslenskri
fataverslun hefur átt sér stað erlend-
is. Það sem verður áhugavert að upp-
lifa sem Íslendingur verður hvort
þessi verslun muni flytja heim. Það
verður áhugavert að fylgjast með
þessu en við erum hvergi bangin í
öllum þessum breytingum,“ segir
Guðjón og bætir við að á næstu
vikum verði tilkynnt um hver fái
um eitt þúsund fermetra verslunar-
plássið sem myndast við hlið H&M
með komu sænska fyrirtækisins.
Sturla Gunnar Eðvarðsson, fram-
kvæmdastjóri Smáralindar, segir
viðræður standa yfir við eigendur
annarra erlendra vörumerkja í fata-
verslun um opnun.
„Það eru mjög áhugaverð vöru-
merki en ég get ekki greint frá því
á þessari stundu. Þau eru bæði í
fataverslun og öðru. Svo hafa stórir
aðilar hjá okkur verið að endurbæta
verslanir fyrir tugi milljóna og eru
að búa sig undir betri tíð. Reyndar
er það svo að okkur vantar fleiri fer-
metra til að leigja,“ segir Sturla.
Lokun verslananna Topshop og
Dorothy Perkins í Smáralind þýðir
að tvö rými nálægt H&M, sem verður
í suðurenda Smáralindar, losna í vor.
„Við erum með mjög skemmtileg-
ar verslanir í þessi leigurými. Þetta
snýst allt um samþættingu í húsinu
og hvað það er sem okkur vantar.
Við erum að sækjast eftir ákveðnum
vörumerkjum og með H&M tókst
okkur það sem engum hafði tekist
eða að ná þeim til Íslands.“
markaðurinn 7M I Ð V I K U D A G U R 8 . M A R s 2 0 1 7
0
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
7
-1
2
4
C
1
C
6
7
-1
1
1
0
1
C
6
7
-0
F
D
4
1
C
6
7
-0
E
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K