Fréttablaðið - 08.03.2017, Qupperneq 38
Valdi mar Ármann tók við sem for
stjóri GAMMA Capital Mana ge
ment á Íslandi um síðustu mánaða
mót. Valdi mar gegndi áður starfi
fram kvæmda stjóra sjóða hjá
GAMMA og er meðal fyrstu starfs
manna fé lags ins. Valdimar situr hér
fyrir svörum í Svipmynd Markaðar
ins
Hvað hefur komið þér mest á
óvart það sem af er ári? Gríðarlega
jákvæð og batnandi staða íslensks
hagkerfis kemur mér enn mest á
óvart – við erum að ganga í gegnum
mikið umbreytingarskeið og í því
felast miklar áskoranir. Í rauninni
hefur staðan líklega aldrei verið
betri og nú er komið að því að spila
sem best úr þeim spilum sem hafa
verið lögð á borðið.
Hvaða app notarðu mest? Ég
nota nokkur líklega álíka mikið,
það er til að fylgjast með íþrótta
iðkun eins og Strava og Activity,
Spotify til að hlusta á tónlist og
síðan, tengt vinnu og samskiptum
tengdum henni er töluverð notkun
á LinkedIn, Kodiak Mobile og
Skype Business.
Hvað gerir þú í frístundum
þínum? Frítíma mínum eyði ég
mest með fjölskyldunni og þar sem
yngstu krílin eru farin að eldast
aðeins þá sjáum við fram á frekari
ferðalög saman til að skoða nýjar
og spennandi borgir og staði. Það er
fátt betra en að komast á skíði eða í
stangveiði og alltaf er gott að grípa
í góða bók.
Hvernig heldur þú þér í formi? Hef
notað langhlaup til að halda mér í
formi undanfarin ár með því að
setja ákveðin hlaup sem markmið,
til dæmis Reykjavíkurmaraþon eða
Münchenmaraþonið, sem halda
aga á æfingaáætlunum. Útihlaup
eru frábær leið til að hreinsa hug
ann, fá sér ferskt loft og endurnæra
líkama og sál. Samhliða hlaupum
reyni ég jafnframt að taka reglulega
styrktaræfingar.
Hvernig tónlist hlustar þú á? Er
nánast alæta á tónlist en það fer
eftir því hvað er verið að gera hverju
sinni. Ég nýt þess að hlusta á klass
íska músík Sinfóníuhljómsveitar
Íslands eða rólegan og léttan djass
Noruh Jones eða Katie Melua á
kvöldin. Á hlaupunum er það yfir
leitt tónlist frá níunda áratugnum
sem ræður ríkjum en á leiðinni í
vinnuna er sjaldan eitthvað betra
en rokkið á Xinu.
Ertu í þínu draumastarfi? Ég
hef starfað á fjármálamarkaði frá
1998, bæði hérlendis og erlendis,
og finnst ég jafnt og þétt alltaf vera
að koma mér betur og betur fyrir
í starfinu. Það er af nógu að taka,
nýjar áskoranir og spennandi verk
efni sem gera þetta sannarlega að
draumastarfi.
Forstjóra GAMMA finnst
fátt betra en rokkið á X-inu
Valdimar Ármann, nýr forstjóri Gamma á Íslandi. Fréttablaðið/SteFÁn
Í febrúar birtu flest skráð félög í
Kauphöllinni ársuppgjör. Í kjölfar
þeirra hefur fjöldi fruminnherja
í félögunum nýtt sér tækifæri til
að eiga viðskipti, í langflestum til
fellum til að selja. Nýjustu dæmin
eru sala forstjóra N1 á bréfum fyrir
um 9,6 milljónir og þá seldi fjár
málastjóri Nýherja bréf fyrir 27
miljónir króna. Í kjölfarið lækkuðu
hlutabréf í N1 um 11,83% og bréf í
Nýherja lækkuðu um 14,66%. Síð
ustu vikur höfum við séð fjölmörg
viðlíka dæmi þar sem lykilstjórn
endur og stjórnarmenn hafa selt
bréf í félögum sem þeir tengjast og
markaðurinn hefur tekið illa í.
Fruminnherjar eru í viðkvæm
ari stöðu en aðrir hluthafar og
hafa aðeins ákveðna glugga til
að eiga viðskipti með bréf. Það
er að hluta til vegna þess að þeir
búa með reglulegu millibili yfir
upplýsingum sem teljast ekki til
opinberra upplýsinga. Þeir mega
að sjálfsögðu ekki eiga viðskipti á
meðan þeir búa yfir upplýsingum
sem markaðurinn hefur ekki. Þetta
getur jafnvel leitt til þess að yfir
lengri tíma geta þessir aðilar ekki
átt viðskipti og því er skiljanlegt í
einhverjum tilfellum að þeir not
færi sér þessa glugga.
Margir hafa haft á því orð hversu
neikvætt það sé að bæði lykilstjórn
endur og stjórnarmenn í skráðu
félögunum hér á landi eigi almennt
lítið undir persónulega. Frasinn að
vera með skinn í leiknum (e. Skin in
the game) á vel við hér. Einhverjir
vilja eigna Warren Buffet þessi orð
en hvað sem því líður þá eru þau
góð og gild og vísa í að æskilegt sé
að stjórnarmenn og stjórnendur
hafi sömu hagsmuni og hluthafar.
Almenna reglan í dag virðist hins
vegar vera sú að stjórnarmenn séu
flestir óháðir og án eignarhlutar og
að lykilstjórnendur eigi ekkert eða
mjög lítið hlutafé í sínum félögum.
Þessi þróun er því enn frekar gegn
þeim málstað og æskilegt væri að
koma okkur í þá vegferð að hags
munir stjórnenda samrýmist meira
hagsmunum hluthafa.
Það er þó eðlilegt að fruminn
herjar geti sömuleiðis selt og
tekið einhvern hagnað af borð
inu. Það er hins vegar ekki eðlilegt
að þegar þeir ætli sér að gera það
lækki hlutabréfaverð félaga þeirra
um tugi prósenta. Til þess að setja
hlutina í samhengi þá seldi forstjóri
N1 bréf fyrir 9,6 milljónir króna og
þessi 9,6 milljóna viðskipti lækk
uðu markaðsvirði N1 um tæpa
fjóra milljarða. Við höfum ágætis
fordæmi í Bandaríkjunum um reglu
sem minnkar bæði tortryggni gagn
vart sölu fruminnherja og dregur úr
þessum öfgakenndu viðbrögðum,
reglu 10b51. Hún gengur í ein
földu máli út á það að fruminn
herji, oftast lykilstjórnandi, á tíma
þegar hann býr ekki yfir neinum
innherjaupplýsingum setur fram
áætlun um að selja alltaf ákveðið
marga hluti á ákveðnum tíma
mánaðarins næstu mánuði eða ár.
Með þessu móti er tryggt að hags
munum hluthafa, fruminnherja
og markaðsaðila er best borgið.
Það væri því æskilegt eftir reynslu
síðastliðinna vikna að skoðað yrði
að koma upp slíku kerfi sem gæti
jafnframt orðið hvatning fyrir fleiri
stjórnendur til þess að tryggja að
þeir hafi skinn í leiknum.
Hlutabréfaviðskipti fruminnherja
Gísli
Halldórsson
sjóðsstjóri hjá
Íslandssjóðum
Svipmynd
Valdimar Ármann
Er nánast alæta á
tónlist en það fer
eftir því hvað er verið að gera
hverju sinni.
Arion banki fékk einungis fimmtán
prósent upp í 3,8 milljarða króna lán
sitt til Havila Shipping ASA, og kaup
rétt á 11,6 prósenta hlut í norska
skipafélaginu, þegar fjárhagslegri
endurskipulagningu þess lauk fyrir
rúmri viku. Íslandsbanki, sem lánaði
Havila 1,7 milljarða króna, fékk þá
kauprétt á 6,54 prósentum til við
bótar við 3,68 prósenta hlut í fyrir
tækinu. Skipafélaginu var forðað frá
gjaldþroti í lok nóvember í fyrra en
ljóst er að bankarnir tveir töpuðu
miklu á lánveitingunum.
Kaupréttur Arion banka er fyrir
158 milljónum hluta í fyrirtækinu
á genginu 0,156 norskar krónur.
Eignarhluturinn er því metinn á 24,6
milljónir norskra eða 316 milljónir
króna. Bankinn má nýta sér kaup
réttinn að tveimur árum liðnum og
fram að janúar 2022. Lánið til Havila
var veitt í júlí 2014 og nam 300 millj
ónum norskra króna eða 3,8 millj
örðum króna miðað við núverandi
gengi.
Íslandsbanki lánaði Havila 130
milljónir norskra króna í árslok
2014. Bankinn tók þá þátt í 475
milljóna norskra króna sambanka
láni með Sparebank1 SMN í Nor
egi. Ólíkt láni Arion banka var
meirihluti 1,7 milljarða króna
krafna Íslandsbanka á norska fyrir
tækið tryggður með veðum í eignum
Havila.
„Bankinn er mjög ánægður með
það að fjárhagsleg endurskipu
lagning Havila hafi verið kláruð.
Komið var í veg fyrir frekara tjón
með þessum samningum á milli
kröfuhafa og eigenda Havila. Havila
mun þar af leiðandi vera áfram í
viðskiptum við Íslandsbanka en til
viðbótar þá er bankinn nú orðinn
hluthafi með 3,68 prósenta eignar
hlut,“ segir í svari Íslandsbanka við
fyrirspurn Markaðarins. Í henni var
einnig spurt um áætlað tap bankans
á lánveitingunni og því svarað að
niðurstaðan hafi verið „ásættanleg“.
„Íslandsbanki fékk kauprétt í
Havila en það mun ekki koma í ljós
fyrr en eftir einhver ár hvort bank
inn mun nýta sér þessi réttindi.“
Arion banki réðst í lok árs 2015
í verulega varúðarniðurfærslu á
lánum til erlendra fyrirtækja í þjón
ustustarfsemi tengdri olíuleit. Greint
var frá ákvörðuninni í ársreikningi
bankans en ekki tilgreint sérstak
lega hversu mikið útlánin til Havila
voru færð niður. Lán Íslandsbanka
til Havila var einnig fært niður í fyrra
en bankinn hefur ekki viljað upplýsa
um upphæð niðurfærslunnar.
haraldur@frettabladid.is
Fengu kauprétt fyrir
milljarðana til Havila
Fjárhagslegri endurskipulagningu Havila Shipping í Noregi lauk í síðustu viku.
Arion banki og Íslandsbanki lánuðu fyrirtækinu 5,5 milljarða króna. Bankarnir
fengu meðal annars kauprétt á alls 18 prósenta hlut í norska skipafélaginu.
Havila Shipping hefur glímt við mikla rekstrarörðugleika síðan olíuverð fór að hrynja á seinni hluta árs 2014.
5,5
milljarðar króna er upp-
hæðin sem bankarnir tveir
lánuðu Havila Shipping
8 . m a r s 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a G U r8 markaðurinn
0
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
6
7
-0
D
5
C
1
C
6
7
-0
C
2
0
1
C
6
7
-0
A
E
4
1
C
6
7
-0
9
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K