Fréttablaðið - 08.03.2017, Síða 52
Við kláruðum show
me í september og
gerðum loka sessionið í
stúdíói á báti í london.
andri saxófónleikari er sVo
sjóVeikur – það kom flóð
tVisVar á dag og þá fór
báturinn á hreyfingu, þá
Var hann alltaf bara „off“
Við reyndum að skapa lífrænt umhverfi í kringum þessa plötu. Við reyndum svolítið að taka hana út úr kassanum sem er
tölvan. Við spiluðum miklu meira
inn á plötuna en við höfum gert
áður. Rafið er enn þá til staðar en
við skulum segja að það sé meiri
mannlegur þáttur í henni en áður
– við vorum ekki smeyk við það að
hafa svona „human feel“ á plöt-
unni,“ segir Einar Stef., trommu-
leikari í hljómsveitinni Vök. Núna
er ákveðin gósentíð hjá hljóm-
sveitinni en hún gefur út nýja plötu
í næsta mánuði, hefur skrifað undir
stóran útgáfusamning við erlent
plötufyrirtæki og heldur von bráðar
í fjögurra vikna tónleikaferðalag.
Platan kemur út þann 28. apríl
næstkomandi og eins og Einar segir
okkur er verið að gera út á mannlega
þáttinn og hvernið hið mannlega
blandast tækninni.
„Við ákváðum að nefna plötuna
Figure eftir einu lagi á henni sem
við náðum að tengjast mikið yfir,
okkur fannst það rosalega mikið
við hæfi fyrir þessa plötu. Fígúra
getur þýtt svo margt, við vorum
svolítið að vinna með það konsept;
þú getur verið fígúra þó að þú sért
ekki lifandi manneskja, gínur geta
verið fígúrur eins og manneskjan.
Það sama á við tónlistina, hún er
oft samin rosa mikið í tölvu og við
notum tæknina mjög mikið. Við
erum að vinna með þetta „fusion“ af
hinu mannlega og tæknilega þætt-
inum sem rafband, en við erum oft
skilgreind þannig.“
Hvernig gengu upptökur hjá ykkur?
„Upptökuferillinn byrjaði síðasta
sumar. Við vorum í miklum pæling-
um fyrst hvort við ætluðum að gera
allt sjálf eða hvort við ætluðum að fá
einhvern pródúsent í þetta. Okkur
fannst lógískt að fá inn pródúser
sem gæti aðstoðað okkur við að fá
heildarmynd á plötuna. Þannig að
við komumst í tengsl við Brett Cox,
breskan pródúsent. Hann kom og
heimsótti okkur í júlí og tók nokkra
daga með okkur. Við byrjuðum að
vinna að Show Me, fyrstu smáskíf-
unni, með honum. Okkur leist mjög
vel á hann og langaði að vinna meira
með honum svo við negldum að taka
haustið saman.
Við kláruðum Show Me í septem-
ber og gerðum loka-sessionið í stúd-
íói á báti í London. Hann Andri saxó-
fónleikari er svo sjóveikur – það kom
flóð tvisvar á dag og þá fór báturinn
á hreyfingu, þá var hann alltaf bara
„off“, þurfti eiginlega bara að fara að
fá sér kaffi. Við kláruðum Show me
þar, sendum það beint í masteringu
og tókum svo Brett með okkur heim.
Og þá byrjaði þetta alvöru „hard-
core“ ferli.
Við vorum mest í stúdíóinu mínu
og tókum þriggja vikna session í
september. Við kíktum eina helgi í
Gróðurhúsið í Breiðholti og fengum
aðeins að bardúsa þar. Þetta kom
svona hægt og rólega – við flökk-
uðum svolítið á milli laga en á end-
anum varð þetta heild, þetta small
allt á einum tímapunkti.“
Og það var útgáfusamningur að
koma í hús, hvernig líst ykkur á það?
„Jú, við vorum að gera samning
við útgáfufyrirtæki sem heitir Nett-
werk sem gefur út slatta af þekktum
artistum. Okkur lýst bara voðalega
vel á þetta, þau eru með opinn huga
gagnvart því sem við erum að gera.
Það vill stundum vera með svona
fyrirtæki að þau vilja hafa mikið
kreatívt innpútt hjá hljómsveitum.
En þau virðast fíla okkur mikið.“
Er einhver túr fram undan?
„Við erum að fara að túra í apríl og
maí, fjögurra vikna túr. Við höfum
verið að herja svolítið á þessa staði
og við erum sérstaklega spennt
fyrir Hollandi og Póllandi. Sérstak-
lega Póllandi. Þar hefur verið besta
mætingin á tónleikana okkar og
Pólverjar eru sjálfir svo ofboðslega
almennilegir og glaðir. Þeir eru
rosa hrifnir af Íslandi, Íslendingum
og íslenskri tónlist – það er einhver
tenging þarna, náttúrulega margir
Pólverjar sem búa og starfa á Íslandi.
Það er svolítið magnað að koma
þangað.“
Vök ætlar að halda útgáfutónleika
hér á landi eftir Evróputúrinn en
nákvæm dagsetning er ekki komin á
hreint. Figure kemur svo út 28. apríl.
Myndbandið við Show Me má finna
á YouTube.
stefanthor@frettabladid.is
mannlegi þátturinn
áberandi í þetta sinn
Hljómsveitin Vök
hefur vakið mikla
athygli síðan sveitin
vann Músíktilraunir
árið 2014. Síðan þá
hafa þau gefið út
tvær EP-plötur og
spilað á tónleikum
vítt og breitt. Í næsta
mánuði kemur breið-
skífa frá sveitinni
sem var að undirrita
útgáfusamning.
Vök á marga aðdáendur í Póllandi. Mynd/Sigga Ella
VIÐ ERUM ÓDÝRARI
EN ÞIG GRUNAR
VINNUKASTARAR - LEDLÝSING
LUDVIKSSON EHF - LEDLJÓS
FLATAHRAUN 31 - HAFNARFIRÐI
S. 5658911 - www.ledljos .com
Verð dæmi m. vsk; 200w 28.990.- 100w 16.230.- 50w 7.515-
www.nordanfiskur.is | 430-1700 | pantanir@nordanfiskur.is
Yfir 300 vörutegundir
fyrir veitingastaði,
mötuneyti og fyrir þig !
Save the Children á Íslandi
8 . m a r s 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a G U r24 L í f I Ð ∙ f r É T T a B L a Ð I Ð
Lífið
0
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
6
7
-0
3
7
C
1
C
6
7
-0
2
4
0
1
C
6
7
-0
1
0
4
1
C
6
6
-F
F
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K