SÍBS blaðið - 01.01.2007, Side 23

SÍBS blaðið - 01.01.2007, Side 23
2 ar hafi þar misst af heimssögulegri forystu í mengunarvörnum. „Hvers vegna ertu ekki orðinn margfaldur millj- arðamæringur?“ „Líklega fyrst og fremst vegna þess að ég er ekki markaðs- eða peningahyggjumaður. Mark- aðssetning á nýjungum kosta líka mikla fjár- muni og þekkingu á slíkri vinnu. Svo er þetta líka spurning um að vera á réttum stað á rétt- um tíma og fá skilning samtíðarmanna. Eftir stendur, að margt af því sem ég hef verið að gera hefur verið til góðs á margan hátt.“ Hér hefur aðeins verið stiklað á nokkrum atrið- um úr starfi Jóns Þórðarsonar hönnuðar og uppfinningamanns en margs er ógetið. Jón er mjög góður ljósmyndari og myndir eftir hann birtust víða, m.a. vann mynd á plakati Ice- landair til gullverðlauna á Ítalíu. Þá hefur hann ferðast ásamt fjölskyldu sinni um óbyggðir landsins á sínum fjallabíl og þar eru mótívin óþrjótandi. Jón hefur „fengist við myndlist,“ eins og hann segir af hógværð sinni frá því hann var ungl- ingur og hann hefur málað mörg frábærlega falleg málverk um dagana sem hann segist ýmist hafa gefið eða selt og hann er enn við þá iðju sína á lítilli vinnustofu sem hann hefur komið sér upp nálægt heimili sínu í Skipholti. Jón fékk heiðursverðlaun úr Verðlaunasjóði iðnaðarins árið 1979 fyrir uppfinningar sínar, störf sín á Reykjalundi og fyrir að flytja til landsins verðmæta tækniþekkingu. Þeim verðlaunum fylgdi dágóð peningaupphæð sem notuð var til hönnunar á lofthreinsibúnaði. Einnig var hann sæmdur gullmerki SÍBS fyrir störf sín í þágu samtakanna. Í þessu greinarkorni hefur verið leitað fanga í fyrri viðtölum við Jón auk þess að eiga við hann stutt spjall. Hann er hógvær maður og lítillátur og vill sem minnst gera úr eigin afrekum. Það er þó ljóst þegar litið er til baka að eftir hann liggur mikið og gott ævi- starf. Plastframleiðslan á Reykjalundi hefði aldrei náð þeim árangri sem raun bar vitni um áratugaskeið hefði hans ekki notið við. Björn Ástmundsson forstjóri á Reykjalundi segir að talað hafi verið um „eins manns tæknideild“ á Reykjalundi á sínum tíma, sem stóðst þó fylli- lega samanburð við þær sem voru fjölmennari og margir öfunduðu Reykjalund af. Víst er að Jóns er minnst í sögu SÍBS sem eins af burð- arásum starfsins á Reykjalundi. Einnig hefur hann haft margvísleg áhrif á samtíð sína eins og kemur fram í þessu viðtali og þeim sem vitnað er til hér að neðan. Helstu heimildir: Friðrik G. Olgeirsson: Hönnuðurinn frá Þóroddsstöð- um, Árbók Ólafsfjarðar 2004, bls. 34-41 Halldór Valdimarsson: Látlaust eitthvað að ráða fram úr, viðtal í SÍBS bókinni 1988. Harmonikublaðið, umfjöllun um Tónalín, sérsmíðaða harmoniku, 3. tbl. 1. árg. maí, 1987, bls. 6, 3. tbl. 6. árg., maí 1992, bls. 17-18 og 2.tbl. 10. árg. febrúar 1996, bls. 20. Tíminn, 112. tbl. 74. árg. 14. júní, 1990. Fréttabréf Háskóla Íslands, 4. tbl. 12.árg. maí, 1990. Jón og Jóhanna í stofunni heima. Hér hefur kælibúnaðurinn verið settur upp í Noregi, þar sem hann reyndist vel eins og alls staðar.

x

SÍBS blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.