SÍBS blaðið - 01.06.2015, Síða 4

SÍBS blaðið - 01.06.2015, Síða 4
SÍBS BLAÐIÐ 2015/24 Erlingur Jóhannsson, PhD. Prófessor, Rannsóknarstofa í íþrótta- og heilsufræði á Laugarvatni Menntavísindasvið Háskóla Íslands Grein Hreyfing – mikilvæg heilsuhegðun Miklar breytingar hafa orðið á lifnaðarháttum fólks á Íslandi sem og í hinum vestræna heimi á undanförnum tveimur til þremur áratugum. Afleiðingar þessara breytinga eru m.a. aukn- ing á heilsufarstengdum vandamálum meðal barna og unglinga, fullorðinna, sem og aldraðra. Fjölmargar rannsóknir, m.a. vísindamanna við Háskóla Íslands, á undanförnum árum hafa sýnt að heilsufarsvandamálum sem tengjast nútíma lifnaðarháttum hefur fjölgað og er þetta sam- þætt og flókið vandamál. Ofþyngd, hreyfingar- leysi, og óhollt mataræði eiga þar sennilega stærstan þátt. Í þessu samhengi er áhugavert að skoða hvernig lifnaðarhættir fólks voru fyrir u.þ.b. 20 til 30 árum og þá einkum að skoða hvernig þjóðfé- lagið í „gamla daga“ var uppbyggt og skipulagt. Á sjöunda áratug síðustu aldar var það nokkuð algengt að móðirin vann ekki utan heimilis, í það minnsta ekki á meðan börnin voru lítil og þurftu umhyggju. Móðirin sá um matargerð, hugsaði um börnin, sá um flesta þætti heimilisins og samverustundir fjölskyldunnar voru virkar og reglulegar. Umhverfi barnanna í „gamla daga“ var aðgengilegt og einfalt. Á þessum tímum léku flest börn sér úti í náttúrunni og nánasta umhverfi heimilisins, kyrrsetuhvetjandi þættir eins og sjónvarp og tölvur voru ekki til staðar og má í þessu sambandi nefna að ekki voru sjónvarpsútsendingar í júlí og aldrei á fimmtu- dögum allt árið um kring. Hreyfingarleysi barna þekktist varla og mjög fá börn voru of þung, hvað þá of feit. Almennt séð voru efnishyggja og lífsgæðakapphlaup sennilega ekki eins ríkjandi þættir í lífi fólks og raunin er í dag. Á Íslandi og í hinu vestræna þjóðfélagi hefur á undanförnum árum þróast lífsstíll sem ein- kennist af aukinni efnishyggju þar sem aukið álag og meiri kröfur eru gerðar til flestra þjóðfé- lagsþegna. Krafan um að ná árangri og frama í starfi og á sama tíma að eiga börn og fjölskyldu er hávær, og mikill hraði ríkir í frekar flóknu og stressuðu þjóðfélagi. Flestir grunnþættir í lífi fjölskyldunnar eins og matargerð eru að stórum hluta í höndum annarra en foreldra, virkum og reglubundnum samverustundum fjölskyldunnar hefur fækkað og kynslóðir eiga minna sameig- inlegt en áður tíðkaðist. Í hinu tæknivædda þjóð- félagi okkar eru kyrrsetuþættir mjög ríkjandi í lífi fólks og lífsmunstur fólks einkennist oft af miklu sjónvarpsáhorfi og löngum setum við tölvur, ýmist til að leika sér, vafra um á netinu eða nota samskiptavefi. Hið manngerða umhverfi sem við lifum í gerir það einnig að verkum að fólk þarf

x

SÍBS blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.