SÍBS blaðið - 01.06.2015, Síða 8

SÍBS blaðið - 01.06.2015, Síða 8
SÍBS BLAÐIÐ 2015/28 Hreyfing íslenskra ungmenna Grein Öllum er orðið ljóst að hreyfing er heilsusamleg og getur dregið úr líkum á svokölluðum lífs- stíls sjúkdómum, sjúkdómum sem að miklu leyti orsakast af hegðun okkar, s.s. hreyfingarleysi, lélegri næringu, tóbaksnotkun, áfengisneyslu og streitu. Af þeim sökum hefur Embætti Landlæknis gefið út hreyfiráðleggingar þar sem kemur fram að börn og unglingar eigi að hreyfa sig í 60 mínútur á dag af miðlungserfiðri og erfiðri ákefð og að aðrir aldurshópar eigi að hreyfa sig í 30 mínútur á dag af miðlungserfiðri ákefð1. Nú kunna einhverjir að velta fyrir sér hvers vegna fullorðnir eigi að hreyfa sig minna en börn, hvað það er sem gerist við 18 ára aldurinn sem veldur því að ráðlögð hreyfing helmingast? Svarið er ekkert, það er ekkert sem gerist. Hins vegar er það svo að börn gera yfirleitt það sem þeim er sagt og munu því hreyfa sig í 60 mínútur fái þau slík fyrirmæli frá fullorðnum. Sé fullorðnum aftur á móti sagt að hreyfa sig í 60 mínútur á dag er hætt við að þeir beri við tímaleysi og geri ekki neitt. Meiri líkur eru á að fullorðnir gefi sér 30 mínútur á dag í hreyfingu og því eru ráðleggingarnar þannig þó svo að það sé fullorðnum augljóslega jafn hollt og börnum að hreyfa sig í klukkutíma dag hvern. Hreyfing eða æfing Hreyfing er hver sú notkun beinagrindarvöðva sem felur í sér orkueyðslu. Æfing er hins vegar hreyfing með eitthvað að markmiði, s.s. að auka þol eða styrk. Fólk hugsar því oft ranglega að æfingar séu eina hreyfingin sem skipti máli á meðan í raun öll hreyfing skiptir máli, t.d. ganga (í vinnunna), garðvinna, gólfþvottur og fleira. Hins vegar getur verið erfitt að meta hreyfing- una og ákefð hennar. Athafnir mannfólksins hafa því verið reiknaðar út frá grunnorkuþörfinni (sú orkunotkun sem líkaminn þarf í fullkominni hvíld) og þær athafnir sem krefjast orkunotkunar sem eru 3-6 sinnum grunnorkuþörfin eru taldar meðal erfiðar2. Erfið hreyfing er svo yfirleitt talin vera 6-9 sinnum grunnorkuþörfin2. Nánari útlistun á meðalerfiðri og erfiðri hreyfingu má finna í 2. tölublaði SÍBS frá 20133. Lengi vel var mjög erfitt að meta ákefð og lengd hreyfingar og einungis notast við spurningalista eða viðtöl. Báðar aðferðirnar eru háðar minni fólks og líklegt að aðspurðir fegri þátt sinn, gefi upp lengri og ákafari hreyfingu en átti sér stað. Því fóru rannsakendur að mæla þol fólks og nota sem ígildi hreyfingar þar sem þolæfingar auka þol og rökrétt að álykta að þolmeira fólk hreyfi sig meira. Hins vegar er þol einnig talsvert háð erfðum og því er ekki alveg hægt að leggja þol og hreyfingu að jöfnu. Á tíunda áratugnum urðu skrefmælar vinsælt tæki til að mæla hreyfingu vegna þess að þeir voru ódýrir og nokkuð nákvæmir og fljótlega komu út ráðlegg- ingar sem sögðu að fólk ætti að taka a.m.k. Sigurbjörn Árni Arngrímsson, PhD. Prófessor, Rannsóknarstofa í íþrótta- og heilsufræði á Laugarvatni Menntavísindasvið Háskóla Íslands

x

SÍBS blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.