SÍBS blaðið - 01.06.2015, Qupperneq 20
SÍBS BLAÐIÐ 2015/220
Eygló Traustadóttir, MSc. Sjúkraþjálfari, Sjúkraþjálfun Íslands, Orkuhúsinu
Jafnvægi og liðleiki
Grein
Hreyfing er mikilvæg fyrir lífsgæði okkar. Best
er að stunda fjölbreytta hreyfingu sem felur í
sér þjálfun úthalds, styrks, jafnvægis og liðleika.
Jafnvægi er lykilatriði í allri hreyfingu, hvort sem
það er í daglegum athöfnum eins og að ganga,
standa upp úr stól, snúa sér við, beygja sig fram
eða í keppnisíþróttum. Jafnvægi þarf að vera til
staðar í öllum hreyfingum sem krefjast styrks,
hraða, liðleika eða úthalds.
Þegar fólk missir færni vegna aldurs eða
veikinda, er algengt að það hreyfi sig frekar á
litlu álagi, t.d. með gönguferðum á þægilegum
hraða. Þó öll hreyfing hafi jákvæð áhrif, þá
hefur einhæf hreyfing á litlu álagi lítil áhrif á
styrk, vöðvamassa eða þjálfun jafnvægis.
Betra er að skipta niður æfingatímanum og
eyða hluta af honum til styrktar-, jafnvægis-
og teygjuæfinga. Hvort sem þú ert um tvítugt
og stundar keppnisíþróttir, á fertugsaldri eða
kominn yfir sextugt, er jafnvægisþjálfun mikil-
væg. Hún getur bætt líkamsstöðuna og auð-
veldað framkvæmd á flóknari samhæfðum
hreyfingum. Ef jafnvægið er gott er auðveldara
að halda réttri líkamsstöðu og beita sér rétt
við þol og styrktarþjálfun. Þannig má minnka
líkurnar á meiðslum og auka stöðugleika.
Algengt er að jafnvægi skerðist hjá einstak-
lingum sem glíma við sjúkdóma eða hafa
slasast. Það má m.a. sjá hjá fólki sem hefur
hlotið höfuðáverka eða er með sjúkdóma tengda
úttaugakerfinu eða jafnvægiskerfi innra eyra.
Þá hefur verið sýnt fram á meiri óstöðugleika
í líkamsstöðu meðal gigtarsjúklinga með slit í
hnjám1. Jafnvægisskerðingar verða ekki bara við
veikindi eða slys, þær mælast einnig hjá heil-
brigðum eldri fullorðnum og virðist óstöðugleiki
aukast strax eftir fertugt. Liðleiki minnkar einnig
með aldrinum. Almennt eru börn liðugri en
fullorðnir og konur liðugri en karlar. Aðrir þættir
sem hafa áhrif á liðleika eru erfðir, meiðsli, kyrr-
seta og yfirþyngd. Mikilvægt er að æfa liðleika
markvisst með teygjuæfingum til að viðhalda
honum. Þannig eykst hreyfanleiki vöðva og liða
og hreyfiferill verður meiri.
Er óhjákvæmilegt að jafnvægisstjórnun
minnki með aldrinum?
Öldrun framkallar breytingar á líkamanum en
það þarf ekki að vera að fólk missi jafnvægi eða
liðleika. Heilbrigt eldra fólk framkvæmir daglegar
athafnir án mikilla erfiðleika. Stjórnun jafnvægis
í uppréttri stöðu og við hreyfingu er flókið ferli
samhæfðra hreyfinga. Í heilbrigðum einstak-
lingum vinna skynfærin (stöðuskyn og sjónskyn)
og miðtaugakerfið saman. Einstaklingur með
jafnvægistruflanir getur verið með truflanir í einu
eða fleirum þessara kerfa. Ef eitt eða fleiri af
Hvort sem þú
ert um tvítugt og
stundar keppnis-
íþróttir, á fertugs-
aldri eða kominn
yfir sextugt, er
jafnvægisþjálfun
mikilvæg.