SÍBS blaðið - 01.06.2015, Síða 25
SÍBS BLAÐIÐ 2015/2 25
er mikilvægt að átta sig á því að hún er í raun
ekkert annað en mótstaða sem við verðum fyrir
þegar synt er. Þessi mótstaða í vatninu hefur
bæði jákvæð og neikvæð áhrif á hreyfingu í
vatninu. Ef tekið er dæmi um mann sem vill
synda á sem hagkvæmastan hátt, þ.e. eyða lítilli
orku, en vill komast hratt áfram þarf líkami hans
að vera eins straumlínulagaður og mögulegt er
meðan á sundinu stendur til að minnka mót-
stöðu þegar synt er í gegnum vatnið. En vatnið
er einnig mjög teygjanlegt og eftirgefanlegt efni
og því frekar erfitt að ná taki á því þar sem það
hefur tilhneigingu til að vilja sleppa frá okkur
sérstaklega þegar við hreyfum okkur hægt í
vatninu. Þess vegna er mjög mikilvægt að nota
hendur og handleggi á réttan hátt þegar synt
er. Hendur þurfa að vera breiðar eins og spaðar
og aðeins kúptar, þannig að vatnið haldist
inni í lófanum og mikilvægt er að ná fram smá
kraftaukningu þegar maður togar sig áfram í því.
Til að ná þessu markmiði þarf bæði fram- og
upphandleggur að taka þátt í sundtakinu.
Styrkur vatnsmótstöðunnar fer eftir ýmsu, þar
á meðal stærð hlutar, í þessu tilfelli líkamans,
lögun og stefnu hans í vatninu miðað við hreyf-
inguna ásamt gerð og stærð yfirborðs vatnsins3.
Heilsusamleg hreyfing
Eins og áður hefur komið fram er sund allra
meina bót. Þetta er ekki bara eitthvert máltæki,
heldur verður það til vegna þess að svo margir
finna fyrir jákvæðum áhrifum vatnsins þegar
þeir synda. Það skiptir ekki miklu máli hvaða
sundaðferð við notum vegna þess að í hverri
aðferð fyrir sig notum við flesta vöðva líkamans.
Sem dæmi þarf að nota að minnsta kosti 2/3
allra líkamsvöðva til þess eins að halda jafnvægi
og góðri legu við það að komast áfram bæði á
höndum og fótum. Við öndun koma enn aðrir
vöðvar inn í hreyfimynstrið og allir þessir vöðvar
hjálpa til við að auka brennslu. Fáar aðrar
heilsueflandi hreyfingar nýta jafnmarga vöðva
eins og sund gerir. Þar að auki er áreiti vegna
endurtekins þyngdarálags á liði margfalt minna
við sund en t.d. þegar skokkað er. Þess vegna
er sund oftast kallað mjúk íþrótt. Eftirfarandi eru
nokkrar frábærar ástæður þess hvers vegna svo
gott er að synda sem raun ber vitni:
• Þar sem sund er mjúk hreyfing er hægt
að halda henni við alla ævi án þess að
hafa áhyggjur af því að ofreyna liðina. Sem
dæmi er keppt í sundi í aldursflokknum
100-104 ára fyrir þá sem vilja taka þátt í
garpamótum.
• Sundþjálfun (hreyfing á miðlungs hraða
eða hraðar) þjálfar hjarta og lungnakerfið
umtalsvert. Rannsókn á 12 vikna þjálfun
sýndi að hámarks súrefnisupptaka jókst
um 10% og slagkraftur hjartans jókst um
18%. Tekið skal fram að þátttakendur voru
einstaklingar af báðum kynjum á miðjum
aldri, sem hreyfðu sig lítið eða meðalmikið
áður en þjálfun hófst.
• Sund er hreyfing sem öll fjölskyldan getur
tekið þátt í á sínum eigin forsendum og
allir hafa gott og gaman af.
• Sund brennir kaloríum! Sýnt hefur verið
fram á, að þokkalega gott sund á miðl-
ungshraða brennir á milli 500 og 600 kkal.
á klukkustund sem er aðeins um 13%
minna en skokk og hlaup gerir. Að auki
skilur sundið yfirleitt ekki eftir eymsli í
lokin7.
• Sund stuðlar að réttum líkamsburði og
samræmingu milli vöðvahópa. Þar sem við
notum svo marga vöðvahópa í einu verður
mikilvæg samræmd vöðvavinna og við það
fæst betri líkamslega, sem skilar sér með
sterkari vöðvum á landi og þar af leiðandi
betri líkamsburðar.
• Þar sem búið er að sýna fram á að sá sem
fer í vatn verður fyrir ótrúlegri andlegri ró
er ljóst að sá sem syndir reglulega öðlast
ekki einungis líkamlegan styrk heldur
einnig andlega slökun til að takast á við
hið hraða líf nútímans8.
Vatnið okkar
Drekktu það - baðaðu þig í því - syntu í
því - leiktu þér í því - hreyfðu þig í
því - þjálfaðu þig í því - horfðu á
það - hlustaðu á það - njóttu
þess í hvaða mynd sem þér
hentar best og þú munt
uppskera innri ró, gleði og
betri heilsu sem stuðlar að
aukinni lífshamingju! Mundu
hins vegar að taka því ekki sem
sjálfsögðum hlut, berðu virðingu
fyrir því, haltu því hreinu, mundu að
það er náttúrulegt og auðvelt að menga það.
Það skiptir ekki
miklu máli hvaða
sundaðferð við
notum vegna þess
að í hverri aðferð
fyrir sig notum við
flesta vöðva líkam-
ans.