SÍBS blaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 28
SÍBS BLAÐIÐ 2015/228
Fjölþætt heilsurækt –
leið að farsælli öldrun
Í flestum löndum heims ná íbúar stöðugt hærri
aldri. Því er mikilvægt að rannsaka heilsu fólks
á efri árum. Rannsóknir benda til þess að virkur
lífsstíll og fjölbreytt þjálfun hafi margvíslegan
heilsutengdan ávinning í för með sér auk þess
sem þjálfunin getur dregið úr ýmsum áhættu-
þáttum sem tengjast aldri. Virkur lífsstíll er meðal
annars fólginn í reglubundinni hreyfingu sem
felur í sér loftháða þjálfun og styrktarþjálfun.
Slík þjálfun hefur sannað gildi sitt fyrir hjartað
og æðakerfið og einnig fyrir lungun og stoðkerfi
líkamans. Af yfirlitsrannsóknum má ráða að það
sé nánast sannað að þjálfun hafi jákvæð áhrif á
líkamsþrek, hagnýta hreyfigetu, athafnir daglegs
lífs og heilsutengd lífsgæði. Þetta á bæði við þá
sem eru heilsuhraustir en ekki síður við þá sem
eru veikburða eldri einstaklingar.
Dagleg hreyfing
Gögn um daglega hreyfingu almennings gefa
til kynna að rúmlega þriðjungur íbúa heims nái
ekki ráðlögðu lágmarki daglegrar hreyfingar. Hér
á landi vantar einnig nokkuð upp á að þessum
lágmörkum sé náð en þau eru 30 mínútur á dag.
Íslenskar rannsóknir sýna að um helmingur af
þessum tíma, eða um 15 mínútur á dag, vantar á
til að Íslendingar nái alþjóðlegum ráðleggingum
helstu heilbrigðisstofnana í heimi. Þrátt fyrir
mikla þekkingu á jákvæðum áhrifum af reglu-
bundinni hreyfingu fer hún minnkandi. Árið 2009
var talið að hlutfall þeirra jarðarbúa sem væru
óvirkir eða hreyfðu sig ekki sem neinu næmi
væri um 17%.
Hreyfingarleysi og sjúkdómar
Í rannsóknum kemur fram að 6–10% dauðs-
falla tengjast sjúkdómum sem megi rekja til
hreyfingarleysis. Talið er að þessi tala sé jafnvel
hærri, eða um 30% þegar um er að ræða til-
tekna hjarta- og æðasjúkdóma tengda blóð-
þurrð. Árið 2007 var talið að koma mætti í veg
fyrir um 5,5 milljónir dauðsfalla af völdum sjúk-
Janus Friðrik Guðlaugsson, PhD. Lektor, Rannsóknarstofa í íþrótta- og heilsufræði
á Laugarvatni Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Mynd 1. Hluti af rannsóknarhópi á æfingu á Laugardalsvelli.
Grein
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is