Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Qupperneq 19

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Qupperneq 19
Norðmenn hafa snemma skil- ið þýðingu heilsuverndar, og eru þeirra heilsuverndarlög síðan 1860 með ýmsum viðbótum. Er því þróun í þessum málum margfalt lengra á veg komin en hjá okkur. Rökrétt virðist að leggja fyrst og fremst áherzlu á að koma í veg fyrir sjúkdóma með heilsuvernd, og ætti það því að vera okkar fyrsta skref í framfaraátt í hjúkrunarmálum að koma upp framhaldsnámi í þeirri grein. Norsku læknaskipunarlögin hafa staðið óbreytt frá 1912, en nú er í aðsigi breyting á allri heilbrigðisþjónustunni, og er hverjum fylkislækni og hjúkr- unarkonu fyrirskipað af heil- brigðisráðuneytinu að skipu- leggja heilbrigðisþjónustuna í sínu fylki og eru svokölluð „Heilsutún" framtíðin. Sáum við teikningu af einu slíku og var innan þess elliheimili og hjúkrunarheimili, litlar íbúðir fyrir aldraða, tryggingarskrif- stofa, læknamiðstöð með aðstöðu fyrir lækna, tannlækna, heilsu- verndarhjúkrunarkonur, al- mennar h j úkrunarkonur, sál- fræðing, félagsfræðing og rann- sóknarstofu. Námsferð okkar var skipu- lögð í þremur fylkjum: Norður- Þrændalögum, Upplandsfylki, Mæra- og Raumsdalsfylki. Hófst heimsóknin í hverju fylki í fylkishúsinu, þar sem fylkis- læknir og hjúkrunarkona skýrðu gang læknaþjónustunnar í sínu fylki, sem var í aðalatriðum hin sama í þeim öllum. Síðan fór- um við út um héruðin og fylgd- umst með störfum heilsuvernd- arhjúkrunarkvenna í öllum greinum heilsuverndar. Leitazt var við að kynna okk- ur í hverju fylki eitthvað, sem yar til fyrirmyndar. T. d. var í Þrændalögum farið með okk- ur á drengjaheimilið á Rostad, sem var fyrir drengi á aldrin- um 13-18 ára með hegðunar- vandkvæði. Er það hið eina sinn- ar tegundar í Noregi og einstök fyrirmynd. Fyrir því stóðu ung hjón, sem virtust fórna sér fyr- ir starfið. Þarna var kennt til gagnfræðaprófs, einnig var þar iðnskóli með bóklegri og verk- legri uppfræðslu. Þarna var mjög góður íþróttasalur með öllum tækjum, aðstaða til úti- íþrótta, svo sem skíða-, skauta- og fótboltaiðkana. Sagði skóla- stjóri, að fyrir öllu væri, að drengirnir hefðu alltaf nóg fyr- ir stafni. Á kvöldin var þeim séð fyrir ýmsu tómstundagamni, sem þeir skiptust á að sjá um með hjálp kennara. Ungt fólk úr nágrenninu var laðað að heimilinu, svo að síður væri hætta á, að drengirnir einangr- uðust. Okkur var tjáð, að góð- ur árangur hefði náðst af starf- semi þessari og margir drengj- anna komizt á rétta braut, er þeir fóru út í lífið aftur, en þeir, sem ekki náðu fótfestu, skoðuðu skólann sem sitt athvarf og kæmu aftur sjálfkrafa, enda var algengt, að drengir þessir ættu léleg heimili. 1 Upplandsfylki, nánar tiltek- ið í Lillehammer, var kynnt fyr- ir okkur félagsmálastofnun, sem þótti til fyrirmyndar þar í landi hvað skipulag og framkvæmd snerti, og er þó víða vel gert í þeim málum. Þessari starfsemi er stjórnað af einum félagsfræð- ingi og tveimur heilsuverndar- hjúkrunarkonum. Starfskraft- ar þessarar stofnunar eru þrenns konar: heimahj úkrunar- konur, húsmæðrastaðgenglar (husmorvikar), og heimilis- hjálp (hjemmehjelpen). Hús- mæðrastaðgenglar þurfa 6 mán- aða námskeið. Taka þær að sér húsmæðrastörf í forföllum. Þær, sem vinna við heimilishjálp, þurfa enga sérstaka menntun, en heppilegustu starfskraftarn- ir til þeirra starfa teljast vera húsmæður, sem algengt er að gefi sig í slík störf nokkra tíma á dag. Starfsemi þessi fer þann- ig fram, að þeir, sem hjálpar þurfa, snúa sér til skrifstofunn- ar, og fer þá einhver stjórnend- anna á heimilið og kynnir sér ástæður og metur, hvernig og hve mikil hjálpin skuli vera. Stofnun þessi hefur birgðastöð með alls konar hjálpargögnum og þvotti til útlána. Með þeirri aðstoð, er stofnun þessi veitir, er stuðlað að því, að gamalt fólk og öryrkjar geti dvalið á heim- ilum sínum, en þurfi ekki að fara á sjúkrahús eða elliheim- ili. Ríkið borgar 35% af heim- ilisaðstoð, en hinn hlutann fólk- ið sjálft eða sveitarfélagið, eft- ir því sem efni standa til, en um það dæma stjórnendur stofnun- arinnar hverju sinni. Heima- hjúkrun er aftur á móti borguð af sjúkrasamlögum að öllu leyti, og er það ákvæði nýlega komið til framkvæmda, svo og dvöl sjúklinga á hjúkrunarheimilum. 1 Mæra- og Raumsdalsfylki var lögð megináherzla á að kynna okkur geðheilsuvernd. Heimsóttum við m. a. Fræna- læknishérað. Var þar einstak- lega vel tekið á móti okkur, sem og annars staðar er við komum. Héraðslæknirinn ræddi við okk- ur um geðvernd og taldi sam- starf við heilsuverndarhjúkrun- arkonur þýðingarmikið, þar sem þær hefðu öðrum fremur aðgang að heimilum fólks og kynntust því náið lífi þess og vandamál- um, sem nauðsynlegt væri að bæta úr, áður en þau yrðu skað- leg geðheilsu þess. Hann lagði mikla áherzlu á samstarf milli geðlækna og geðsj úkrahúsa ann- ars vegar og læknaþjónustu í héraði hins vegar, sér í lagi með tilliti til eftirverndar. Taldi hann, að flótti fólks úr dreif- býli til þéttbýliskjarnanna, sem ekki er síður vandamál í Noregi en á Islandi, ætti sinn þátt í geðtruflunum fólks, sér í lagi þess, sem komið væri yfir miðj- an aldur og ætti því erfiðara með að semja sig að nýjum störfum og umhverfi. Við Molde-sjúkrahús var okk- TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 135

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.