Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Síða 20

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Síða 20
ur sýnd ný deild, sem var í upp- byggingu, svokölluð „Psykia- trisk-poliklinik“ fyrir börn. Þarna störfuðu sálfræðingar, sem voru í tengslum við geð- deild sjúkrahússins. Lækningin er fólgin í viðtölum við barnið og foreldra þess sitt í hvoru lagi og svo öll saman. I smíðum voru litlar íbúðir á spítalalóð- inni, sem ætlaðar voru foreldri eða foreldrum og barninu, með- an á lækningu stæði. Gert var ráð fyrir hálfs mánaðar tíma í einu. Einnig var í byggingu skólahúsnæði fyrir þessi börn. Álitið var, að hægara væri að hjálpa þessum börnum, ef þau væru á heimili með foreldrum sínum, meðan á lækningu stæði, og í sem eðlilegustu umhverfi. Meðan við vorum í Mæra- og Raumsdalsfylki, höfðum við að- setur í Molde. Síðasta kvöldið, sem við dvöldum þar, var okkur boðið að vera viðstaddar braut- skráningu nýrra hj úkrunar- kvenna við hj úkrunarskóla stað- arins. Var þetta mjög hátíðlegt kvöld, sem hófst með ávarpi skólarektors, þar sem hún m. a. bauð okkur velkomnar, sem og aðra heiðursgesti samkomunn- ar. Síðan voru afhent prófskír- teini, og fékk hver einnig sinn nellikuvönd. Að loknum ræðu- höldum og samsöng voru bornar fram mjög góðar veitingar. Næsta dag, sem var síðasti skipulagði dagurinn í Noregi, héldum við til Osló, en á leiðinni höfðum við viðkomu í Álasundi og skoðuðum geysistórt nýtt sjúkrahús. Sú deild, sem vakti mesta athygli okkar, var kölluð „Social-medicinsk deild“. Var hún ætluð fólki með skerta starfsorku af völdum sjúkdóma og slysa. Þarna fór fram mat á starfsorku fólksins og þjálfun til þeirra starfa, sem það var talið fært til að stunda. Deildin sá um að útvega þessu fólki vinnu við sitt hæfi og aðra fé- lagslega aðstoð. Að lokum hvíld- um við okkur nokkra daga, áður en við héldum til Svíþjóðar, þakklátar fyrir þá gestrisni og góðvild, er við höfum notið hjá frændum okkar í Noregi. I Svíþjóð vorum við í tvær vikur, þá fyrri í Stokkhólmi. Þar heimsóttum við félagsmála- ráðuneytið og hittum að máli tvo fulltrúa hjúkrunarstéttar- innar þar, er veittu okkur ýms- ar upplýsingar varðandi stétt- ina. Einnig heimsóttum við skrifstofu sænska hjúkrunarfé- lagsins. Kynnt var fyrir okkur menntun sænskra hj úkrunar- kvenna, grunnskólanám við St. Eiríkshjúkrunarskóla og fram- haldsnám í barnahjúkrun og heilsuvernd við Karolinska hjúkrunarskólann. Þar hittum við íslenzkan nemanda, Berg- ljótu Líndal, okkur til mikillar gleði. Tvo daga vorum við á heilsugæzlustöð (læknamið- stöð), Ákerberge, sem er utan við Stokkhólm, og fylgdumst með daglegum störfum og skipu- lagi stöðvarinnar. Þetta var fyrsta eiginlega heilsugæzlu- stöðin (læknamiðstöðin), sem við sáum í ferðinni, og vakti hún því forvitni okkar. Þar sem heilsugæzlustöðvamál eru mjög ofarlega á baugi hjá okkur, megum við til með að lýsa stöð þessari í stórum dráttum. Þarna var á einum stað öll heilbrigð- isþjónusta hverfisins. Bygging- in var á tveimur hæðum. Neðri hæðin var ætluð heilsuvernd- inni. Voru þar skrifstofur fyrir tvær heilsuverndarh j úkrunar- konur, lítið rannsóknaherbergi, ungbarnamóttaka, geymsla fyr- ir hjálpartæki til útlána, skrif- stofa fyrir ljósmóður, herbergi fyrir mæðraleikfimi og afslöpp- un, lækningastofa og kaffi- stofa. 1 enda hússins var trygg- ingaskrifstofa. Á efri hæð var slysastofa, næturvaktarher- bergi, almenn móttaka, sótt- hreinsunarherbergi, i*annsókn- arstofa og salerni við hlið henn- ar og lúga þar á milli, skrif- stofa læknaritara, aðstaða fyrir þrjá lækna og hver þeirra hafði skoðunarherbergi og viðtalsher- bergi. Á almennu móttökunni unnu hjúkrunarkonur, sem önn- uðust tímapantanir, símaþjón- ustu og almennar rannsóknir, svo sem sökk-, hæmoglobin- og blóðþrýstingsmælingar, þvag- rannsóknir o. fl. Þessar rann- sóknir framkvæmdu hjúkrunar- konurnar, áður en sjúklingur- inn fór inn til læknisins. Þessi stöð var af þeirri stærð, sem henta mundi í íslenzkum lækn- ishéruðum, og því sérstakur ávinningur fyrir okkur að kynn- ast henni. Seinni vikuna vorum við í Gautaborg. Einn daginn fylgd- umst við með störfum við heilsu- verndarhjúkrun í Ökerö, sem er lítil eyja í'étt fyrir utan borg- ina. Var þetta byggðarlag sér- stætt fyrir, hve margt gamalt fólk bjó þar. Áður hafði verið þar mikil vélbátaútgerð, sem nú hefur lagzt niður, en gömlu sjó- mennirnir kusu helzt að dvelj- ast áfram á eyjunni sinni, og er allt gert til að gera þeim það mögulegt. Við fórum með heilsu- verndarhjúkrunarkonu í heima- vitjanir, og veitti hún alls kon- ar aðhlynningu. Vakti það at- hygli okkar, hve algengt var, að dætur eða tengdadætur tækju að sér umönnun rúmfastra gam- almenna, og sagði hjúkrunar- konan okkur, að þær fengju greiðslu fyrir frá því opinbera, sem borgaði sig betur en að greiða með því á elliheimili. Hina dagana, sem við vorum í Gautaborg, fylgdumst við með störfum á tveimur heilsugæzlu- stöðvum, sem voru svipaðar þeirri, er við höfum áður lýst, nema stærri í sniðum, og hafði önnur aðstöðu til sjúkraþjálf- unar. Ferðin var í heild okkur til gagns og óblandinnar ánægju. Þó að aldursmunur okkar sé töluverður, önnur útskrifuð 1971, en hin 1949 (skólasystir Framh. á bls. 152. 136 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.