Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Síða 22

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Síða 22
Sjúkrahússtjórn: Þar höfðum við þrjá kennara, sem voru framkvæmdastjórar sjúkra- húsa. Einn þeirra kenndi al- menna stjórnunarfræði og spjallaði síðan um ýmis hagnýt atriði, sem hvergi finnast í kennslubókum. Annar talaði um uppbyggingu brezku heilbrigð- isþjónustunnar. Síðan var hópn- um skipt, og við útlendingarnir fengum ýmis almenn undir- stöðuatriði í sjúkrahúsrekstri, sem kom okkur að meira gagni en nákvæm yfirferð á „skýrslu- gjörðum" Bretanna. Þriðji kennarinn var sérfræðingur í sjúkrahúsbyggingum. Aðalmál innan brezku heil- brigðisþjónustunnar er gjör- breyting á stjórn hennar, sem koma á til framkvæmda 1974. Nú eru það þrír aðilar, sem vinna að heilbrigðisþjónustu: Sjúkrahúsin, sem eru öll ríkis- sjúkrahús, heilsuvernd og önn- ur þjónusta á vegum bæjarfé- laganna og í síðasta lagi heim- ilislækna- og sérfræðingaþjón- usta, sem lýtur sérstakri stjórn. Nú er stefnt að því að setja alla þessa aðila undir sömu stjórn og sameina þjónustuna, svo að sjúklingar hafi einn aðila að snúa sér til í stað þriggja. Mikil óvissa ríkir ennþá um það, á hvern hátt þetta verði fram- kvæmt. En jafnframt þeirri skipulagningu, sem ennþá hvil- ir hula yfir, hefur fólkið, sem er í starfi og þessi umskipti munu mest bitna á, hafið sinn undirbúning. Bæjar- og heilsu- verndarhjúkrunarkonur hafa nú fengið greiðari aðgang að sjúkrahúsum til þess að kynn- ast sjúklingunum, áður en þeir eru sendir heim. Annars staðar fara deildarhjúkrunarkonur inn á heimili sjúklings til þess að sjá aðstæður, áður en hann er útskrifaður. Þannig er reynt að brúa bilið milli sjúkrahúss og heimilishjúkrunar. 1 héraði eru læknar, hjúkrunarkonur og fé- lagsráðgjafar farnir að halda fundi og ræða störf og verksvið hver annars. Hjúkrunarkonur í æðstu stöðum sjúkrahúsa og heilsuverndarstöðva halda reglulega fundi til þess að ræða sameininguna og skipulags- málin. Hjúkrunarmenntunin var ein aðalnámsgreinin. Kennararnir voru skólastjórar. Fengum við yfirlit yfir, hvernig hjúkrunar- menntuninni er háttað í dag og hvað er framundan í þeim efn- um. Nefnd, sem vinnur að end- urskipulagningu námsins, á að skila áliti nú í haust. Búizt er við róttækum breytingum. Hjúkrunarnemar eru ennþá að- alvinnukrafturinn á flestum sjúkrahúsum. Reynt hefur ver- ið að brúa bilið milli skólans og sjúkrahússins, m. a. með því, að læknirinn, sem sæti á í skóla- nefnd, sé starfandi læknir sjúkrahússins. Þar eiga einnig sæti 2-3 deildarhj úkrunarkon- ur. „Vinnubókarnefnd", sem starfar stöðugt að endurbótum á starfsbók sjúkrahússins, er jafnt skipuð hjúkrunarkennur- um, starfandi hjúkrunarkonum og forstöðukonu sótthreinsunar- deildar. Á síðustu árum hefur verið til heimild fyrir sjúkrahús að setja á stofn tilraunaskóla, sé vissum grundvallarskilyrðum fylgt, til þess að kanna nýjar leiðir til hjúkrunarmenntunar. Því eru nú fyrir hendi fjölmargar leið- ir til þess að ljúka námi og þá með mismunandi sérhæfingu að námi loknu. Sálarfræðin, sem kennd var, er sú grein sálarfræðinnar, sem lýtur að stjórnun. Er þar fjall- að um ráðningu starfsfólks, mat á störfum þess og önnur sam- skipti. Nemandinn fær undir- stöðuatriði þess, hvernig stofn- uninni þarf að vera stjórnað til þess að standast rás tímans. Þótt þessi námsgrein væri byggð á stjórnun iðnfyrirtækja, var hún að sjálfsögðu heimfærð upp á sjúkrahúsþjónustu. Sálarfræðin gefur okkur inn- sýn í mannleg samskipti, hvers við megum vænta, hvernig við eigum að bregðast við, og hún varpar Ijósi á hið mismunandi atferli einstaklingsins. Siðfræði: Sívaxandi siðfræði- leg vandamál innan hjúkrunar- og læknisþjónustu hafa leitt til þess, að siðfræðin er orðin aðal- námsgrein. Voru þetta einu fyr- irlestrar skólastjórans. 1 fyrir- lestrunum var gefið yfirlit yfir siðfræðikenningar fjögurra heimspekinga. Síðan áttu nem- endur að hugleiða hin ýmsu vandamál í ljósi þessara kenn- inga og mynda sér sínar eigin skoðanir. Vandamálin eru mörg, en hægt væri að nefna vefja- flutninga, heimild til þess að stytta fólki aldur og þá sér í lagi gömlu fólki, hvað á lengi að halda fólki lifandi, t. d. í önd- unarvélum, þegar í rauninni allri líkamsstarfsemi er lokið, og að síðustu vil ég nefna fóst- ureyðingar, sem eru ört vax- andi vandamál fyrir hjúkrun- arkonur og lækna, síðan fóstur- eyðingalögin frá 1967 gengu í gildi. Sjúkrahúsheimsóknir: 1 nám- inu voru innifaldar þrjár sjúkrahúsheimsóknir. Náminu var skipt í þrjár annir, og fóru nemendur í eina heimsókn í hverri önn. Stóð hver heimsókn í tvær til þrjár vikur. Nemend- ur fóru tveir eða í stærri hóp- um á sjúkrahús um allt Bret- land og einnig til Skotlands. Á hverju sjúkrahúsi fengu nemendur vel skipulagða dag- skrá. Rætt var við fjölmarga aðila, fyrst og fremst hjúkrun- arkonur, sem við stjórnunar- störf unnu, svo og forstöðumenn sjálfboðaliðastarfs, svo að eitt- hvað sé nefnt. Reynt var að gefa nemendum sem bezta heildar- yfirsýn yfir sjúkrahúsrekstur- inn. Fundarsetur nemenda voru eftir því sem til féll, t. d. fundir deildarhj úkrunarkvenna ákveð- inna eininga - segjum lyflækn- 138 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.