Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Page 24

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Page 24
FULL TR UAFUNDUR SSN LFLNNLANDL Samvinna hjúki'unarkv enna á Norðurlöndum hélt árlegan full- trúafund sinn á Hótel Ruissalo í Ábo dagana 19.-22. september s.l. Höfuðviðfangsefni fundar- ins var staða og verksviö hjúkr- unarkonunnar í framtíðinni. Samtökin hafa innan vébanda sinna yfir 100 þúsund hjúkr- unarkonur. Setniug fumlarins. Toini nousiainen, formaður finnska hjúkrunarfélagsins, bauð fulltrúa velkomna til Finn- lands, og formaður SSN, Gerd Zetterström Lagervall, setti fundinn og lagði m. a. áherzlu á, að nú á tímum mikilla athafna og snöggra breytinga veitti það okkur bæði öryggi og styrk að geta hitzt oftar en áður, skipzt á skoðunum og reynslu, rætt sameiginleg vandamál og reynt að finna lausn þeirra. Einnig ræddi formaður ýtar- lega samstarf SSN og GNOE, sem er svæðasamband hjúkrun- arfélaga Vestur-Evrópu, og lagði áherzlu á, að bæði SSN og GNOE þyrftu að vera vel á verði til þess að hafa áhrif á ákvarð- anir Efnahagsbandalagsins um stöðu, menntun og starfssvið hjúkrunarkvenna í Evrópu, sér- staklega með tilliti til hugsan- legrar aðildar Danmerkur og Noregs að Efnahagsbandalag- inu. Að síðustu sagði formaður: „Þýðing umhverfisins fyrir manninn og starf hans hefur síðasta áratug oft verið við- fangsefni í vísindarannsóknum, stundum verið ákaft deiluefni í stéttarfélögum, milli vinnuþega og vinnuveitenda og meðal ráða- manna á ýmsum sviðum. Það umhverfi, sem Hjúkrun- arkvennasamband Finnlands - Suomen Sairaanhoitajaliitto - hefur veitt okkur tækifæri til að vinna í þessa daga, og rækileg- ur undirbúningur að þessum fundi er hvatning fyrir okkur að vinna undir merki samstarfs, svo að samtök okkar verði sterk og áhrifarík." llópvinna. Fyrirhugað var að starfa í 5 umræðuhópum, en fram komu óskir um. að 6. hópurinn yrði valinn og hefði hann undir stjórn Ingrid Hámelin það hlut- verk að aðstoða hina fyrrnefndu 5 hópa og samræma niðurstöð- ur. I þennan hóp var kjörinn 1 fulltrúi frá hverju landi, ásamt einum fyrir hönd hjúkrunar- nema. Umræðugrundvöllur var V. skýrsla Alþj óðaheilbrigðismála- stofnunarinnar, er fjallar um heilsugæzlu, varnir gegn auk- inni hættu fyrir heilsuna, leit að sjúkdómum á frumstigi, og hjúkrun sjúkra og endurhæf- ingu. Frainlíifarmarkmið lieilsugæzlu hjúkrunar. Hjúkrunarstarfið. Nokkur sjónarmið úr skýrsl- um umræðuhópanna skýrð og felld saman af samvinnuhópn- um. A. Markmið: Fullnægjandi „gæzla heil- brigðra“, sem felur í sér um- önnun um heilsu einstaklings- ins. Starf: Hj úkrunarkonan starfar á grundvelli sérþekkingar sinn- ar í hópi, sem vinnur að þessu úrlausnarefni. B. Markmið: Sem mest starfsgeta einstakl- ingsins. Starf: Hjúkrunarkonan starfar að því í samfélaginu að afstýra ásamt öðrum hópum þeim hættum, sem steðja að heil- brigði einstaklingsins. C. Markmið: Heilbrigðiseftirlit og leitar- starf sem óaðskiljanlegur hluti heilsugæzlu og hjúkrun- ar - nær til allra. Starf: Hjúkrunarkonan tekur þátt í stjórnun og rannsóknum, starfar einnig sem ráðgjafi og milliliður. D. Markmið: Hjúkrun og einstaklingsbund- in heilsugæzla með hliðsjón af fjárframlagi, starfsmanna- haldi og menntun, sem tök eru á innan þjóðfélagsins. Starf: Hj úkrunarkonan er ábyrg um hjúkrun, segir til um gæzlu- þörfina, áætlar, fræðir um og tengir saman hjúkrunarstarf- ið. Tekur þátt í og vinnur að rannsóknum á hjúkrunarsvið- inu. 140 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.