Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Side 26

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Side 26
að hún fullnægi hinum nýju kröfum, sem fram hafa komið í sambandi við þróunina í heilsu- gæzlu og hjúkrun. Skapa þarf verklegar og fjárhagslegar for- sendur fyrir rannsóknastarf- semi á sviði hjúkrunar. Fulltrúafundurinn ákvað að beina þeim tilmælum til aðild- arfélaganna, að þau undir- byggju meðferð eftirtalinna mála fyrir fulltrúafund ársins 1973: a) rannsókna varðandi hjúkr- unarstarfið, b) aðgerða til að fá hjúkrunar- starfið viðurkennt sem sér- stakt réttinda- og ábyrgðar- svið. Ennfremur var samþykkt að skipa sérfræðingahóp til að halda áfram skilgreiningu á hjúkrunarsviðinu á grundvelli skýrsina starfshópanna og skýrslu h j úkrunarsér f ræðinga Alþjóðaheilbrigðismálastofnun- arinnar. Ákveðið var að þýða grein- argerð þá, sem samin hefur ver- ið í Finnlandi um starfssvið hjúkrunarkvenna (Aili Lemin- in: Mita sairaanhoitajat teke- vát), til þess að aðildarfélögin geti haft hennar not. Sljóriiarkosning. Á árinu 1971 kom stjórn SSN saman þrisvar sinnum, tvisvar á skrifstofu samtakanna í Stokkhólmi og einu sinni í Os í Noregi, í tengslum við full- trúafundinn 1971. öll stjórn SSN var endurkos- in, en hana skipa: Gerd Zetter- ström Lagervall, Svíþjóð, for- maður. María Pétursdóttir, Is- landi, 1. varaformaður, Helga Dagsland, Noregi, 2. varafor- maður, Kirsten Stallknecht, Danmörku, og Mona Donner, Finnlandi. I>átlliikciulur frá Islnmli. Kjörnir fulltrúar voru: María Pétursdóttir, formaður, Rögn- valdur Stefánsson, svæfingar- hjúkrunarmaður, Aðalheiður Árnadóttir, heilsuverndarhj úkr- unarkona, Guðrún Margrét Þorsteinsdóttir, h j úkrunar- kennari, og Sigurlína Gunn- arsdóttir, forstöðukona. Auk þeirra Ingibjörg R. Magnús- dóttir, frá heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytinu, og Ingi- björg Árnadóttir, frá Tímariti HFÍ. Alls voru þátttakendur á fundinum um 75. Næsti fulltrúafundur verður haldinn í Svíþjóð að ári liðnu. Vcrkfall lijá lijiikruuarkoiium I Xorcfjl. Vegna verkfalls hjúkrunar- kvenna í Noregi, er hófst dag- inn áður en fulltrúafundurinn skyldi hefjast, urðu margir af norsku fulltrúunum að tilkynna forföll, m. a. formaður hjúkr- unarfélagsins, Helga Dagsland. Verkfallið hófst með því, að 311 hjúkrunarkonur í Osló lögðu niður vinnu að morgni hins 18. sept. Síðan skyldi vinnustöðvunin breiðast út um Noreg. 26. sept. náði verkfallið til 600 hjúkrunarkvenna, og 2. október var fyrirhugað, að 700 hjúkrunarkonur bættust við. Verkfallinu var þó aflýst 1. október, eftir að ríkisstjórnin hafði lofað að fjalla um kröfur hjúkrunarkvenna í þinginu. Norska hjúkrunarfélagið, sem er samningsbundið, gat ekki stofnað til verkfallsins, heldur hópur einstaklinga. Voru að- gerðirnar ólöglegar, og er ekki enn vitað, hver árangur verður af verkfallinu. Það er að sjálfsögðu samstaða meðal allra norskra hjúkrunar- kvenna um að fá verulegar lag- færingar á kjörum sínum svo sem þarna var stefnt að. Tekið saman af I. Á. □ FRÉTTATILKYNIVIIVG frá hcilbriiíóis- o;i tryijglnlamálaráðuncytinu. Dagana 18.-22. sept. var 22. þing Evrópusvæðis Alþjóðaheil- brigðismálastofnunarinnar haldið í Kaupmannahöfn. Þingið var haldið í Kaup- mannahöfn í boði dönsku ríkis- stjórnarinnar og til þess að vígja formlega til notkunar ný húsa- kynni fyrir Evrópustofnunina, sem danska ríkið hefur gefið. Evrópunefndin hefur haft starfsstöð í Kaupmannahöfn síðan 1957, en húsakynni voru fyrir löngu orðin of þröng og undanfarin ár hefur staðið yfir bygging mjög veglegra húsa- kynna, sem rúma skrifstofur Evrópustofnunarinnar og húsa- kynni fyrir fundahöld. Fulltrúar frá öllum löndum Evrópusvæðisins, en þau eru 31, þ. e. öll Evrópulöndin ásamt Al- sír og Marokkó, áttu fulltrúa við athöfnina og á þinginu, sem haldið var á eftir. Af Islands hálfu sátu þingið Magnús Kjartansson, heilbrigð- is- og tryggingamálaráðherra, Páll Sigurðsson, ráðuneytis- stjóri og Páll Ásmundsson, læknir á Landspítala, sem frá byrjun hefur stjórnað nýrna- sj likdómadeild lyflæknisdeildar- innar og þar með gervinýrum Landspítalans, en hann er einn- ig fulltrúi heilbrigðisráðuneyt- isins í norrænni samstarfsnefnd, sem fjallar um fræðileg efni. Enda þótt danska ríkið hafi gefið þá byggingu, sem nú er risin fyrir starfsemi Evrópu- deildarinnar, hafa fjölmörg ríki innan Evrópusvæðisins gefið eitthvað til byggingarinnar, annað hvort til gagns eða skrauts og hefur Island gefið málverk eftir Þorvald Skúlason, listmálara, til að skreyta bygg- inguna með. 142 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS TSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.