Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Síða 27

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Síða 27
Nýútskrifaðar hjúkrunarkomir mótmæla starf sþ j álfunarþrepunum Hjúkrunarkonur, er brautskráðust frá HSÍ í sept. s.l., sendu forstöðukonum Landspítalans og Borgarspítalans tilkynningu um, að þær muni ekki starfa hjá nefndum sjúkrahúsum, nema launaákvæðum um starfsþjálfunarþrep verði breytt, sem kváðu svo á að þær skyldu starfa samkv. 14. og 15. launafl. fyrsta starfsárið eftir útskrift. 1 tilefni af þessu máli sendi stjóm Hjúkrun- arfélags íslands frá sér eftirfarandi athuga- semd, til fjölmiðla. „1 Morgunblaðinu fimmtud. 5. okt. er frétt um að nýútskrifaðar hjúkrunarkonur hafi eng- ar ráðið sig á Borgarspítalann þrátt fyrir þörf spítalans fyrir vinnu þeirra. Samkvæmt kjarasamningalögunum hefur BS- RB með höndum samninga fyrir alla ríkisstarfs- menn með föst laun, vinnutíma og laun fyrir yfirvinnu, og þá einnig hj úkrunarkonur, en Hjúkrunarfélag Islands er beinn samningsaðili við Reykjavíkurborg. Við síðustu kjarasamninga við Reykjavíkur- borg var vitanlega reynt að ná hagstæðari samn- ingum, en viðsemjendur töldu sig ekki geta vik- ið neitt sem héti frá grundvallaratriðum í samn- ingnum milli BSRB og ríkisins. Þessi vandamál voru rædd á stjórnar- og fé- lagsfundum HFl. Voru þar samþykktar ályktan- ir um óánægju um ýmis samningsatriði og þær sendar ráðamönnum og fjölmiðlum. 1 því sam- bandi var lögð áherzla á að hjúkrunarkonur al- mennt væru vanmetnar til launa. Ákvæðin um að hjúkrunarkonur ættu að vera fyrsta starfsárið á Tilkynning um aðalfund Á STJórnarfundi 16. nóv. 1972 voru eftirtaldar hjúkrunarkonur kosnar í nefndanefnd (uppstill- ingarnefnd), en samkvæmt félagslögum ber stjórn HFl að tilnefna þessa nefndaraðila fjór- um mánuðum fyrir aðalfund. Þorbjörg Friðriksdóttir, HSl, Mjóuhlíð 12, sími 20945, Þórhildur Gunnarsdóttir Hólm, Bsp., Skriðu- stekk 7, sími 37553, Sigríður Katrín Júlíusdóttir, Lsp., Hraunbæ 58, sími 84389. Aðalfundur 1973 verður í seinni hluta marz n.k. og verður þá kosinn nýr formaður félags- starfsþjálfunarlaunum, voru talin óviðunandi, þar eð þeim væru strax falin vandasöm og ábyrgðarmikil störf, vegna hjúkrunarkvenna- skorts. Hjúkrunarnemar fá mikla starfsþjálfun í sínu verklega námi á deildum sjúkrahúsa ó þriggja ára skólatímabili. Leitað hefur verið eftir leiðréttingu og hefur Hjúkrunarfélag Islands notið stuðnings BSRB í þeirri viðleitni. Það er eðlilegt að nýútskrifaðar hjúkrunar- konur ráði sig frekar þar sem sanngjamari laun eru í boði, á meðan ráðamenn ríkisins og Reykja- víkurborgar treysta sér ekki til að gera leið- réttingar, sem eru óumflýjanlegar, og viður- kenna hj úkrunarkvennaskortinn“. Síðar í október sendi heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytið bréf til skrifstofu ríkisspít- alanna, þar sem bent er á fyrstu málsgr. 16. gr. kjarasamnings milli fjármálaráðherra og kjara- ráðs BSRB frá 19. des. 1970, þar sem segir: „Hverju starfi verði ákveðinn launaflokkur, miðað við að starfsmaður hafi næga þjálfun til starfans til að geta gegnt því svo fullnægj- andi sé“. 1 framhaldi af þessu segir síðan í bréfinu: „Samkvæmt þessu lítur ráðuneytið svo á, að hverja þá hjúkrunarkonu, sem ráðin er m. a. til að starfa sjálfstætt á vöktum, megi ráða á óskert byrjandalaun“. Skrifstofa ríkisspítalanna hefur ákveðið að notfæra sér þessa heimild og greiðir hjúkrun- arkonum á 1. starfsári, sem taka sjálfstæðar vaktir, samkvæmt 16. launafl. frá 1. nóv. 1972. ins. Með tillögur um formann svo og tillögur um hjúkrunarkonur í nefndir ber að snúa sér til nefndanefndar fyrir 20. febrúar 1973. Athygli hjúkrunarkvenna er vakin á því að samkvæmt breyttum félagslögum HFl eiga deild- ir að senda fulltrúa á aðalfund félagsins. 1 lok janúar eða snemma í febrúar n.k. er ráðgert að halda félagsfund og stofna Reykja- víkurdeild HFÍ. Hin nýju lög HFÍ eru send sérprentuð með þessu blaði, og eru allir félagar beðnir að kynna sér þau vel.

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.