Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Blaðsíða 32

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Blaðsíða 32
Fulliuegmtí ú kröfum u|> ski|»u- lagning ii;iiiösyiili‘|>r;ir hoilsu- ^irzlu- o" Iijúkrunur]tjónuslu. Án nokkurs tillits til þess, hvernig heilsugæzlu- og hjúkr- unarþjónustukerfi okkar er, get- um við gengið að því vísu, að það sé á Norðurlöndum, svo sem í mörgum öðrum löndum heims, í stöðugri þróun. Heilsugæzlu- og hjúkrunar- þjónusta er nú þegar eitt af flóknustu viðfangsefnum þjóð- félagsins. I æ minni mæli er um að ræða félagslegt starf ein- göngu, heldur kemur hér til greina í heild hin gífurlega læknisfræðilega og tæknilega þróun, með afstöðu einstaklinga og hópa, með mati, reglum og siðfræði. Sjúkdómur er ekki ein- ungis líkamlegt og tilfinninga- legt vandamál, heldur einnig fjárhagslegt og þjóðfélagslegt vandamál. Nútíma heilsugæzla (læknandi og afstýrandi) krefst mikillar skipulagningar til að geta fullnægt þeim stöðugt auknu kröfum, sem gerðar eru til þessarar þjónustu, sem við teljum til mannréttinda að fá að njóta. Sjálfvirkni, tölvur, flókinn tækjabúnaður og tæknileg hjálp- artæki hafa þegar haslað sér völl á sviði heilsugæzlu og hjúkr- unar, og ekkert lát er á stór- stígum framförum. Nýir starfs- hópar hafa æ stærra hlutverki að gegna á því sviði, sem við höfum áður eignað okkur. Hvaða úrræði höfum við til að mæta kröfum framtíðarinn- ar? Hvaða möguleika höfum við og að hve miklu leyti erum við reiðubúnar sjálfar að reyna að koma á nauðsynlegum breyting- um og hafa áhrif á þjóðfélagið - sér í lagi ef það þýðir, að við þurfum að breyta hugsunar- hætti okkar, ef til vill játa, að við höfum ekki fylgzt með tím- anum, jafnvel að við nú þegar stöndum ekki í stöðu okkar? Sú spurning vaknar, hvort við höfum gert of mikið að því Ingrid Hdmelin. að hugsa um nútíðina - sem fyrr en varir er liðin tíð - í stað þess að hugsa langt fram í tímann. Hættir okkur til að halda of fast í þá stöðu, sem við höfum náð og okkur, eins vanafastar og við er- um, finnst þýðingarmikil sem stendur? Lokum við augunum fyrir þeim breytingum, sem verða í þjóðfélaginu og á okkar eigin starfssviði, hvort sem við viljum það eða ekki? Einn háttur að bregðast við og ekki alveg óþekktur er að láta sér nægja að segja, að of mikil skipulagning heilsugæzlu og hjúkrunar stríði á móti okk- ar (í reyndinni oft mjög svo innantómu) slagorðum um „hjúkrun einstaklingsins“, - eða reyna að halda í þann óraun- hæfa skilning, að hjúkrunar- konan ein gæti veitt alla þá um- önnun, sem einstaklingurinn (sjúklingurinn) þarf með, ef hún aðeins hefði tíma til þess. Það er einnig almennt álitið, að við gætum sjálfar unnið betur þau störf, sem við af tímaskorti eða öðrum orsökum höfum eft- irlátið öðrum starfshópum, sem komið hafa inn á okkar fyrra starfssvið. I stað þessarar varnarstöðu væri ef til vill heillavænlegra og árangursríkara, að við tækjum aðstöðu okkar til gagngerðrar endurskoðunar, horf ðumst í augu við sannleikann, stundum beisk- an, og tækjum virkan þátt í skipulagningu og þróun heilsu- gæzlukerfisins. Er það ekki lið- ur í starfi okkar að gæta hags- muna einstaklingsins (sjúkl- ingsins), svo að hann verði ekki fórnardýr kerfisins, heldur njóti þjónustu þess? Að endingu verðum við einnig að gera okkur ljóst, að einar saman komumst við ekkert áleiðis. Við verðum að skríða úr híðinu, þar sem við höfum verið í valdaaðstöðu, og læra að umgangast og koma á betra sambandi fyrst og fremst við hinn mislita fjölda þeirra, er njóta heilsugæzlu og hjúkrunar, við annað starfslið heilbrigðis- þjónustunnar, við stjórnmála- menn og félagslega leiðtoga, við embættismenn, kennara, félags- fræðinga, hagfræðinga, verk- fræðinga, arkitekta, þjóðfélags- skipuleggjendur og aðra sér- fræðinga, sem starfa beint eða óbeint að heilsugæzlu og hjúkr- un í víðtækustu merkingu þeirra orða. Hér er hægt að koma lýð- ræði að, og ég vil gerast svo djörf að segja, að við hjúkrun- arkonur getum hér sjálfar lært heilmikið. Erum við tilbúnar og höfum við einlægan áhuga á að skil- greina, hvaða starfskrafta kerf- ið krefst, hvernig skipta á verk- efnunum og hvaða vinnutilhög- un ber að stefna að til þess að ná fram þeirri samvinnu, sem er grundvöllur sem mestrar og beztrar heilsugæzlu- og hjúkr- unarþjónustu? Eitt atriði, sem orðið er mjög aðkallandi hjá okkur, — þar sem nýja heilbrigðislöggjöfin leggur þunga áherzlu á hina frjálsu gæzlu,.en þróun þessa oft mann- úðlegra gæzluforms virðist stöðvuð vegna læknaskorts, - er þörfin á að skýra og skil- greina þátt hjúkrunarkonunnar í mismunandi gæzluformum. Þar sem ég álít, að norrænar 144 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.