Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Side 34

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Side 34
Heimsókn á Borgarsiúkrahús Aboborgar Að loknu fulltrúamóti SSN var okkur, þ. e. a. s. Maríu Péturs- dóttur, Sigurlínu Gunnarsdótt- ur, Aðalheiði Árnadóttur, Guð- rúnu M. Þorsteinsdóttur og Ingi- björgu Árnadóttur, boðið að skoða Borgarsjúkrahúsið, og þáðum við það með þökkum. Frumkvæði að heimsókn þess- ari átti finnska hjúkrunarkonan Leena Kulju. Leena og forstöðu- kona sjúkrahússins voru áður fyrr bekkjarsystur, svo að það voru hæg heimatökin. Til gam- ans má geta þess, að fyrir dyr- um stóðu borgarstjórnarkosn- ingar í Ábo og var Leena þar í framboði. Forstöðukonan, Raija Kaisla, tók á móti okkur og notaði með glöðu geði frítíma sinn til að veita okkur alla þá fyrirgreiðslu, sem við óskuðum, enda bæði stolt og glöð að sýna hinn nýja hluta sjúkrahússins, er tók til starfa 1971. Það vakti athygli okkar, að allar hjúkrunarkonurnar voru „kappalausar", en „kappinn" hafði verið felldur niður hjá hjúkrunarkonum í öllu Finn- landi fyrir nokkrum árum. Aft- ur á móti mættum við sjúkra- liðum með kappa á höfðinu. Við skoðuðum eina af almenn- um lyflækningadeildum sjúkra- hússins, þar sem áherzla var lögð á hvers konar endur- þjálfun. Yfirlæknirinn, Ilmari Ruikka, er mjög vel þekktur í heimalandi sínu fyrir mikinn þátt í uppbyggingu orkulækn- inga. Hver deild var miðuð við 37 sjúklinga, karla og konur, og voru sjúkrastofur frá 1-4 manna. Þrjú skolherbergi voru á deildinni, og voru þau mjög vel staðsett. Á hverri deild var leikfimi- salur, lítil borðstofa fyrir þá sjúklinga, er höfðu fótavist, og var hún einnig nýtt sem sjón- varpsherbergi og fundarher- bergi fyrir starfsfólk, setustofa, símaklefi o. fl. fyrir utan þær vistarverur, sem sérstaklega voru ætlaðar hjúkrunarkonum og læknum. Deildin hafði á að skipa, auk lækna, sex hjúkrunarkonum, átta sjúkraliðum, þrem ganga- stúlkum, einum ritara, ásamt einni konu, sem aðstoðaði við böðun sjúklinga. Á næturvakt var sjúkraliði á hverri deild og hjúkrunarkona yfir hverjum þrem deildum, en geta má þess, að um enga „akút“ móttöku var að ræða. Fyrir hverjar 6 deildir var sendisveinn. Heimsóknai-tími var daglega frá kl. 8-6. Við inntum for- stöðukonuna eftir því, hvort þessi langi heimsóknartími hamlaði ekki um of starfsemi deildarinnar, en hún kvað það ekki vera og sagði reynslu þeirra vera þá, að auðveldara væri að hafa einn langan heim- sóknartíma en tvo stutta. Einn- ig þótti þetta vera heppileg lausn með tilliti til ættingja sjúklinganna, ef hafðar eru í huga hinar miklu vegalengdir. Allur rúmfatnaður á deild- inni var úr mynztruðum og lit- ríkum efnum. Gerði það sjúkra- stofurnar hlýlegar og heimilis- legar. Sjúkra- og iðjuþjálfunardeild- in var á neðstu hæð hússins, og var hún sérstaklega vel búin tækjum og öðrum búnaði, þann- ig að öll stig endurþjálfunar var hægt að veita. 146 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.