Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Blaðsíða 39
Nemendur
Hjúkrunarskóla
Islands
brautskráðir
30. september 1972
Laugardaginn 30. september
voru kvaddir 25 nemendur frá
Hjúkrunarskóla Islands. Þar af
höfðu 22 lokið námi til fulls, en
3 luku námi skömmu síðar.
Skólastjóri HSÍ, frk. Þor-
björg Jónsdóttir, gerði grein
fyrir skólastarfinu, afhenti
prófskírteini og skólamerkið
og árnaði nemendum velfarn-
aðar.
Ingibjörg K. Ingólfsdóttir
hjúkrunarkona las hjúkrunar-
heit Hjúkrunarskóla Islands.
Afhent voru verðlaun úr
Minningarsjóði Kristínar Thor-
oddsen, en hún var fyrsti skóla-
stjóri skólans. Verðlaunin eru
bronzpeningur með ágrafinni
mynd af Kristínu, hannaður af
Sigurjóni Ólafssyni myndhöggv-
ara. Voru verðlaunin veitt fyrir
mjög góðan námsárangur, og
hlaut þau Hanna Þórarinsdótt-
ir. Guðrún Árnadóttir hjúkrun-
arkona afhenti verðlaunin.
Magnús Jónsson óperusöngv-
ari söng við undirleik Skúla
Halldórssonar, en Skúli vígði við
þetta tækifæri nýjan flygil. Er
ánægjulegt til þess að vita að
þessi draumur skuli vera orðinn
að veruleika, en safnað hefur
verið til þessara kaupa í mörg
ár, en það sem á vantaði lagði
menntamálaráðuneytið til.
Sigurhelga Pálsdóttir hjúkr-
unarkennari og Magnús Karl
Pétursson læknir ávörpuðu hin-
ar nýju hjúkrunarkonur og að
lokum kvaddi Kristín Aðal-
steinsdóttir skólann fyrir hönd
félaga sinna. Fyrir hönd hinna
nýútskrif uðu h j úkrunarkvenna
afhenti Guðný Bjarnadóttir
formanni Hjúkrunarnemafélags
Islands, Elinborgu Jónsdóttur,
stofnsjóð til styrktar hjúkrun-
arnemum sem taka þátt í fund-
um og mótum hjúkrunarnema
á Norðurlöndum. Viðstaddar
voru hjúkrunarkonur braut-
skráðar frá HSI fyrir 10 árum,
og færðu þær skólanum kr. 20
þúsund að gjöf, í Minningar-
sjóð Kristínar Thoroddsen.
Reglugerð
Tímarits
Hjúkrunarfélags
Islands
Ritstjórn tímaritsins samdi
eftirfarandi reglugerð fyrir
Tímarit HFl og var hún sam-
þykkt á stjórnarfundi félagsins
6. nóv. 1972.
1. gr.
Tímarit Hj úkrunarf élags Is-
lands er gefið út af Hjúkrunar-
félagi Islands og greiðir félag-
ið allan kostnað af útgáfu þess.
2. gr.
Samkvæmt félagslögum ræð-
ur stjórnin ritstjóra og ákveður
laun hans. Ritstjórinn er
ábyrgðarmaður tímaritsins.
3. gr.
I samráði við stjórn félags-
ins er ritstjóra heimilt að skipa
þviggja manna nefnd sér til
i'áðuneytis og aðstoðar, til
Iveggja ára í senn. Skipa skal
einn varamann fyrir hvern full-
trúa nefndarinnar.
4. gr.
Ritstjórinn ber ábyrgð á því
gagnvart stjórninni, að efni
ritsins hafi faglegt gildi og svari
þörf félagsmanna fyrir upplýs-
ingar um starfsemi félagsins.
5. gr.
Ritstjórinn hefur rétt til að
hafna greinum, sem hann telur
brjóta í bága við 4. gr.
6. gr.
Greinar, sem ritstjórinn er í
vafa um hvort hafna eigi, skulu
ávallt lagðar fyrir ritnefnd til
umsagnar og síðan fyrir stjórn
félagsins.
7. gr.
Þegar ritstjóri telur nauðsyn
til bera, skal kveðja ritnefnd til
fundar. Komi til atkvæða-
greiðslu innan ritnefndar og at-
kvæði eru jöfn, ræður atkvæði
ritstjóra.
8. gr.
Til setu á fundum ritnefndar
má, eftir því sem nefndin telur
æskilegt, kveðja sérfræðinga á
mismunandi sérgreinasviðum
sjúkra- og heilsugæzlu.
9. gr.
Tímarit Hjúkrunarfélags Is-
lands skal koma út eigi sjaldn-
ar en ársfjórðungslega. Heim-
ilt er þó að gefa út 2 tölublöð
saman ef ritstjórn telur æski-
legt og stjórn félagsins er því
samþykk.
10. gr.
Brot tímaritsins skal vera 20
X27.5 cm.
11. gr.
Ritstjóra ber að gæta þess,
að tímaritið sé prentað á sem
hagkvæmastan hátt hver j u
sinni, og leita tilboða í prentun
blaðsins, ef hann telur ástæðutil.
12. gr.
Varðandi auglýsingar og dreif-
ingu blaðsins fer eftir sam-
komulagi milli stjórnar félags-
ins og ritstjóra tímaritsins
hverju sinni.
13. gr.
Breytingar á reglugerð tíma-
ritsins skulu gerðar á aðalfundi
HFl.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 151