Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Síða 42

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Síða 42
MTKYlllG Ritstjórnin vill vekja athygli hjúkrunarkvenna á eftirtöldum bókum: II.IÁLP i VIIH.ÖM M, Jón Oddgeir Jónsson tók saman. Gefin út að til- hlutan Slysavarnafélags Islands. Bókin er fá- anleg í flestum bókaverzlunum og kostar kr. 262,00. 1 formála bókarinnar, segir Páll Gísla- son læknir m. a.: Það mun hafa verið fyrir rúmum 40 árum, að fyrst var farið að kenna „Hjálp í viðlögum“ hér á landi og þá fyrst aðallega meðal skáta, enda í anda kjörorðs þeirra „vertu viðbúinn". Upp úr þessum jarðvegi kom Jón Oddgeir, sem alla tíð síðan hefur verið tengdur kennslu í „Hjálp í viðlögum“. Margir nýir kaflar eru í þessari útgáfu. Alfreð Gíslason læknir skrifar um bráð sjúkdómsein- kenni og eitranir. Þá er kafli um fæðingarhjálp í viðlögum, skyndilegt hjartakast og hagræðing slíks sjúklings þar til næst til læknis. Talsvert hefur verið aukið við kaflann um lífg- un; bæði með blástursaðferð og ytra hjarta- hnoði hvað snertir lesmál, ljósmyndir og teikn- ingar. Allt stuðlar þetta mjög til aukins nota- gildis bókarinnar bæði á námskeiðum og til lest- urs í heimahúsum“. MEXGIJX, útgefendur eru Landvernd, landgræðslu- og nátt- úruverndarsamtök Islands. í þessari bók er að finna erindi þau, sem flutt voru á ráðstefnu um mengun, er haldin var í Reykjavík dagana 27. og 28. febrúar 1971. Má þar nefna m. a. erindi um gerilmengun í vatni, mengun frá sorpi og holræsum, mjólkurvörur og mengun, mengun og atvinnurekstur, reglugerð um heilbrigðiseft- irlit, eiturefni og mengun o. fl. Bókin kostar 154 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS ---- kr. 300,00 og fæst í skrifstofu Landverndar, Skólavörðustíg 25, Rvík, en mun einnig komin í flestar bókaverzlanir. IXTEXSIV VÁRD, höfundar: Áke Wáhlin, Lars Westermark, Ansje van der Vliet. Utgefandi er Almquist & Wiksell Boktryckeri AB, Uppsala, og er síðasta útgáfa frá árinu 1971. Fjallar bók þessi um gjörgæzlu- hjúkrun á mjög greinagóðan hátt, og er óhætt að mæla með henni. Hægt er að panta bókina hjá Snæbirni Jónssyni & Co„ Hafnarstræti 9, Rvík og er verð hennar kr. 1286,00. ( AIIE OF THK AOI I.T PATIEXTT, Medical-surgical nursing, höfundar: Dorothy W. Smith, Carol P. Hanley Germain, Claudia D. Gips. Utgefandi er J. B. Lippincott Company, Philadelphia, U.S.A., og er 3. útgáfa bókarinnar frá árinu 1971. Hægt er að panta bókina hjá Snæbirni Jónssyni & Co„ Hafnarstræti 9, Rvík, og er verð henn- ar kr. 1635,00. TIIE MEIUJK MAXI'AL OF IIIAGXOSIS AXB THEIIAPY, höfundar: Charles E. Lyght, Chester S. Keefer, Francis D. W. Lukens o. fl. Útgefandi er Merck Sharp & Dohme Research Laboratories, Pitts- burgh, West Point, Pensylvania, U.S.A., og er 11. útgáfa frá árinu 1971, Hér er um að ræða uppsláttarbók í sjúkdómsgreiningum, rannsókn- um og meðferð. Hægt er að panta bókina hjá Snæbirni Jónssyni & Co„ Hafnarstræti 9, Rvík, og er verð henn- ar kr. 952,00.

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.