Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Page 44
FRÉTTIR og TILKYlllAR
CirciAsluáwlliiii ívrir
Gjöld:
Laun, 2 skrifstofustúlkur.................................... kr. 456.000,00
Húsaleiga, ræsting, rafmagn ................................... — 63.000,00
Póstur og sími................................................. — 50.000,00
Félagsgj. til ICN, SSN o. fl................................... — 40.000,00
Risna, stjórnar-, félagsf. o. fl............................. — 18.000,00
Pappír, prentun, þýð. o. fl. á skrifst......................... — 50.000,00
Endursk., lögfr.aðstoð ........................................ — 40.000,00
Gjaldheimtan .................................................. — 50.000,00
Auglýsingar ................................................... — 18.000,00
Keypt tímarit og bæklingar .................................... — 4.500,00
Hiti, viðhald.................................................. — 25.000,00
Munaðarnes, vextir og afb. lífeyrisl........................... — 56.000,00
Trúnaðarm.ferðast. (nú 29 þús.)................................ — 100.000,00
Ljósritunarv.pappír o. fl...................... 23.000,00
eftirlit 9.100,00
32.100,00
seld ljósritun 4.100,00 — 28.000,00
Endurgr. félagsgj. til deilda .................................. — 40.000,00
Laun formanns HFÍ .............................................. — 20.000,00
Tímarit HFÍ: laun ritstj........................................ — 216.000,00
Lífeyrissjóðsgr. HFÍ ............................................ — 13.000,00
Pappír, prentun, klisiur, póstgj., þýð., ritlaun o. fl. 4 eintök — 640.000,00
Ferð ritstj. til SSN fulltrúaþings.............................. — 34.000,00
Áætlað 7% hækkun árið 1973 ..................................... — 137.000,00
Mismunur, tekjuafgangur ......................................... — 280.000,00
Kr. 2.378.700,00
Aliiicimur íélagsÉiiiMlui' IIFÍ
var haldinn mánudaginn 2. október
s.l. í Átthagasal Hótel Sögu.
Fundarefni:
1. Nýir félagar boðnir velkomnir.
2. Jónas Bjarnason: Þróun í skyndi-
hjálparkennslu.
Formaður setti fundinn og bauð
hinar nýútskrifuðu hjúkrunarkonur
velkomnar í félagið, en þær voru 21
að þessu sinni. Er félagatala nú 1149.
Þessi samhenti hópur sendi for-
stöðukonum Landspítalans og Borg-
arspítalans tilkynningu um, að þær
muni ekki starfa hjá nefndum sjúkra-
húsum, nema launaákvæðum um
starfsþjálfunarþrep verði breytt, þar
sem nýútskrifaðar hjúkrunarkonur
taki strax sjálfstæðar vaktir og þar
með sé brostinn grundvöllurinn und-
an þessum ákvæðum um launaþrep.
Formaður minntist á mál þetta á
fundinum og kvaðst skilja afstöðu
þeirra.
Guðrún Marteinsson flutti ávarp
til hinna nýútskrifuðu hjúkrunai'-
kvenna, og Jón Oddgeir Jónsson færði
þeim að gjöf nýútkomna bók sína
„Hjálp í viðlögum". Margir nýir kafl-
ar eru í þessari útgáfu. Bókina prýð-
ir fjöldi ágætismynda, einkum af
hjúkrunarkonum við hin ýmsu hjálp-
arstörf.
Jónas Bjarnason, er starfar hjá
rannsóknarlögreglunni, sýndi fræðslu-
mynd um þróun í skyndihjálp, sem
aðallega er notuð sem hjálpargagn
við kennslu. Myndin var á vegum
Rauða kross Islands.
Fundi slitið kl. 23.00.
Fundinn sóttu 110 félagar.
Fricáslufumlir Ilcilsuvorndar-
stödvar Itoykjavíkur haustid
11172.
Síðari hluti fræðslufunda Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur hófst
miðvikudaginn 27. sept. s.l.
Verða 12 fyrirlestrar og að síðustu
kaffiveitingar.
Fundirnir hafa verið mjög vel sótt-
ir, en eins og kom fram í frétt um
fyrri hluta þeirra í 1. tölublaði Tíma-
rits Hjúkrunarfélagsins, eru þeir ætl-
aðir hjúkrunarkonum Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavikur og hjúkrunar-
konum, sem starfa við heilsugæzlu í
nágrenni Reykjavíkur, einnig er ann-
að starfsfólk stöðvarinnar velkomið á
þá fundi, sem haldnir eru í stöðinni.
Efni fyrirlestra og fyrii'lesarar eru
þessir:
1. Bótaréttur einstæðra foreldra:
Kjartan Guðnason afgreiðslu-
stjóri, Tryggingastofnun ríkisins.
2. Ungbarnavernd: Halldór Hansen
læknir, Pálína Sigurjónsdóttir
heilsuverndarhjúkrunarkona.
3. Heilsugæzla í skólum: Magnús
Þorsteinsson læknir, Bergljót
Líndal heilsuverndarhjúkrunar-
kona.
4. Sjóngallar hjá börnum: Eiríkur
Bjarnason augnlæknir.
5. a) Berklavarnir: dr. Óli Hjalte-
sted læknir.
b) Mæðravernd: Guðjón Guðna-
son læknir.
6. Ellisjúkdómar og vandamál aldr-
aði-a: Þór Halldórsson læknir.
7. Tannvernd: Ólafur Höskuldsson
tannlæknir.
8. Heyrnarhjálp: Gylfi Baldursson
heyrnarfræðingur.
9. Heimsókn í Heyrnleysingjaskól-
ann, Öskjuhlíð v/Reykjanesbraut.
10. Kennsla í notkun á loftspelkum
og fleira: Ólafur Ingibjörnsson
læknir.
11. Heimsókn í Hjartavernd, Lág-
múla 9.
12. Húðsjúkdómar og ofnæmi: Sæ-
mundur Kjartansson læknir.
FranihaldsniYnlfundur.
Framhaldsaðalfundur HFÍ var
haldinn 15. okt. s.l. í Domus Medica
og hófst kl. 14. Fundarefni voru laga-
breytingar og önnur mál.
Formaður setti fundinn og harm-
aði lélega fundarsókn.
Á aðalfundi HFÍ 7. maí s.l. gerði
formaður grein fyrir þeim breyting-
um á lögum félagsins, sem í undir-
búningi voru. Síðan voru lögin ásamt
breytingartillögum birt í 3. tölubi.
Tímarits HFÍ, er út kom í ágústlok,
með það fyrir augum að gefa félög-
um tækifæri til að kynna sér sem bezt
þær breytingar, sem í undirbúningi
voru.
Formaður innti fundarkonur eftir
því, hvort fresta skyldi fundi vegna
lítillar þátttöku, en fram komu óskir
um að halda fundi áfram og taka
lagabreytingarnar fyrir. Lög félags-
ins voru því tekin til endurskoðunar
og samþykktar ýmsar breytingar á
þeim.
Félagsgjöld 1973.
Samkvæmt samþykkt aðalfundar
HFÍ 1971 eru félagsgjöld reiknuð 9%
156 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS