Ráðunautafundur - 12.02.1979, Page 50
130
, RADUNAUTAFUNDUR 1979
SJÚKDÖMAR OG MEINDÝR í GÖRÐUM
öli Valur Hansson
BúnaÖarfélagi íslands.
Stutt ágrip
Gefið er eftirfarandi yfirlit yfir helstu lífverur sem
orsakaö geta sjúkdóma á hérlendum garöagróðri, bæöi á mat-
jurtum og skrúðgarðaplöntum.
B. Meindýr
Blaðlúsategundir
Barrköngulingur
Furulús
Grasmaðkur
Kálfiðrildi
Ranabjöllutegundir
Sitkalús
Skógarmaðkar
Sniglar
A. sveppir
Blettasveppir
Grásveppur
Kálmyglusveppur
Skaðvaldar Kálæxlasveppur
Lerkisveppur
Reyniátusveppur
Ryðsveppategundir
Um lifnað og hegðun
Sumir skaðvaldar eru vægir t.d. blettasveppir, grásvepp-
ur og af meindýrum, kálfiðrildi og ranabjöllutegundir. Aðrir
eru atlöguharðir gróðri sbr. kálæxlasveppur, reyniátusveppur,
og af meindýrum blaðlýs og skógarmaðkar. Smitmáttur vissra
sveppa er mjög mikill og smit þeirra getur reynst langlíft,
sbr. kálæxlasveppur.
Umræddir skaðvaldar lifa og valda nær einungis sýnilegum
skemmdum á ofanjarðarhlutum plantna. Undantekningar eru kál-
æxlasveppur og ranabjalla. Fyrrnefnd meinvera skaðar ein-
göngu rætur plantna eða þann hluta stönguls sem er undir yfir-
borði jarðvegs. Af öðrum þræði verða því raunverulegar
skemmdir duldar, en ofanjarðarhlutar bera fyrr eða síðar
merki þess að ódöngun muni á ferð. Lirfa ranabjöllutegunda