Svava - 01.11.1898, Page 7

Svava - 01.11.1898, Page 7
MYNDUM FJALLANNA 199 Lækkun sjávarkofnsins, aðrensli og fylling lægðar- innar veldur og öflugum þiýstingi nær því láréttum, að eins lítið eitt lröllum upp á við, inn að meginlandinu. f'rýstingur þessi myndar appalachisku hrukkurnar. Hann er mestur á svæðinu milli 500 og 1600 rasta frá sjávar- ströndinni, og þar af leiðandi eru flest fjöll á þessu svæði. Þrýstingurinn og umhrotin í jarðskurninu, sem hann veldur, koma á stað miklum liita, einkum í neðri jarðlög- unum, sem gerir skiljanlega. ummyndun fjallefnanna 1 steinkristalla, gegnvætingu þeirra af vatnsgufu og gosi bráðinna fjallefna. Fyrir því eru flest eldfjöll langs með ströndum meginlandanna. Eldfjöllin eru að eins yfir- borðs-fyrirhrigði, sem einnig stafa af þrýstingnum. I öllum heimsálfum eru flestar fjallmyndanir bundn- ar við ákveðin jarðfræðistímabil. Eldri jarðfræðin áleit að fellingarnar og hrukkurn- ar hafi náð í gegnum alt jarðskurnið. Sú skoðun er nú úr gildi gengin. Felllngarnar og hrukkurnar, sem mynda fjallaklasa heimsins, eiga sér að «ins stað á yfir- borði jarðskurnsins; þær eru að eins yfirborðs-dlbrigði er ná skamt ofan í jarðskurnið, en undir þeim er að lík- indum deigkent fjallefni í hálf-bráðnu ásigkomulagi. Þetta er í fám orðum nú verandi kenning um myndun fjallanna.

x

Svava

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Svava
https://timarit.is/publication/1264

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.