Svava - 01.11.1898, Page 24
Leo Tolstoi.
Hið heimsfrœga, rússneska skáld var 70 ára
9. septembtr síðast liðinn.
-----:o:----
t YEFF eða LEO TOLSTOI fæddist 28. ágúst, að
Tl rússnesku tímatali; en það er, að roru tímatali 9.
september.
Tolstoi er einn liinna merkustu manna heimsins.
Hann er, ef til vill, frægastur rithöfundur 'þessarar aldar
—Ibsen og Zola ekki undanskildir— og þó er skáldið
Tolstoi ekki jafn-frægt, sem heimspekingurinn og um-
bótamaðurinn Tolstoi.
Hann misti snemma foreldra sína, on ættingjar hans,
er voru af aðli, ölu hann upp. I æsku lians datt þó
engum í hug, að í honurn lægi það, er síðar kom fram.
I skóla skaraði hann ekki fram úr í neinni námsgrein,
og var alls ekki sólginn í bækur. Þetta einkenni hefir
fylgt honum alla æfi—ef það má einkenni kaíla—; hann
hefir sem sé ætíð fyrirlitið lærdóm.