Svava - 01.09.1902, Síða 26
128
SVAVA
F,3.
liið mikla íshaf. Á leið sinni liöfðu þeir veitt töluvert
af lax og skotið nokkui' moskusdýr, en alt fyrir það, voru
nú vistabirgðir þeirra mjög rýrar. Nú voru þeir um 384
mílur frá Fort Enterprise; og meira en þriðja hlutann af
þessari vegalengd,höfðu þeir orðið að draga léttibátana og
farangurinn. En þrátt fyrir allan þann tíma, sem ferð-
in til þessa hafði tekið þá, og allar þær hörmungar, or
þeir höfðu orðið að þola, og allar þcer hættur sem þejm
liöfðu mætt, þá voru þeir nú ekki komuir lengra áleiðis,
en ú þann stað, sem upphaflega var áformað, að þeir byrj-
uðu rannsókuir sínar.
Eftir að þeir höfðu hvílt s:g í nokkra daga við ár-
mynnið, lögðu þeir ú stað austur með ströndinni á tveim
bátum, og höfðu með sér vistir til 15 daga. Fyrstu fjéra
daganagekk t'erðin vel. Þeir héldu með landi fram,fundu
töluverðan jurtagróða, og urðu lítið varir viðís. En á
fimtíi degi ráku þeir sig á ísfláka og urðu ísteftir í marga
dnga. Ströndin fór nú líka að verða hrjóstugri og snauðari
af jurtalífl. Nokkrir menn voru sendir á land,og hepa-
aðist þeim að veiða nokkur dýr, og auka ineð því vista-
forða sinu. Strax og tækifæri gafst,héldu þeir Franklín
áfram ferð sinni. Þeir höfðu vonast eftir, að þegar
þeir kæmu austur fyrir Kater-höfðann, myudu þeir fiuna
Skrrelingja-bygð, en sú varð ekki reyndin. Landið var