Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Side 4
4 Fréttir Helgarblað 11.–14. mars 2016
Sími 568-5556 www.skeifan.is
Eysteinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali / Sími: 896-6000
eysteinn@skeifan.is / skeifan.is
Magnús Hilmarsson
Sölumaður / Sími: 896-6003
magnus@skeifan.is / skeifan.is
Sigurður Hjaltested
Löggiltur fasteignasali / Sími: 821-5400
sigurdur@skeifan.is / skeifan.is
Föst
söluÞÓKNuN
Sími 568-
5556 www
.skeifan.is
1% + vsk.Vegna mikillar sölu vantar allar stærðir eigna á skrá
Vandað einbýlishús
óskast til langtímaleigu
Hannes Steindórsson
löggiltur fasteignasali
Ég er með góða fjölskyldu sem vantar
vandað einbýlishús til leigu. Pottþétt
umgengni, mikil greiðslugeta.
Vinsamlega hafið samband:
hannes@fastlind.is eða s. 699 5008.
Lind Fasteignasala ehf.
Hlíðasmári 6, Kópavogur
Sími 510 7900 - www.fastlind.is
M
yndbönd, sem sýna þrjá
nakta unga karlmenn
í búningsklefa Laugar
dalslaugar og tekið er
með falinni myndavél,
voru birt í síðustu viku á einni vin
sælustu og mest sóttu klámsíðu
veraldar. Forsvarsmaður Laugar
dalslaugar segir að um grafalvar
legt mál sé að ræða. Málið er ekki
komið inn á borð kynferðisbrota
deildar lögreglunnar.
Grunlausir þolendur
Fyrra myndbandið er rúm mínúta
að lengd og virðist tekið í laumi af
gesti í Laugardalslaug. Þar má sjá
ungan mann standa fyrir framan
skáp sinn nakinn um stund og síð
an klæða sig. Myndatökumaðurinn
beinir þá upptökutæki sínu að öðr
um nöktum ungum manni í sama
rými og tekur upp athafnir hans.
Báðir virðast fullkomlega grunlaus
ir um að verið sé að taka af þeim
myndband. Er myndbandið, sem DV
barst ábending um, merkt sérstak
lega þannig að um falda myndavél í
búningsklefa sé að ræða og tilgreint
að þar megi sjá íslenska karlmenn
nakta. Myndbandið var birt á þekktri
klámsíðu þann 3. mars síðastliðinn.
Tvö myndbönd
Annað, en heldur styttra, myndband
hefur einnig verið birt á síðunni af
sama notanda úr karlaklefa Laugar
dalslaugar. Þar má sjá ungan pilt
nakinn að þurrka sér og klæða. Sá er
augljóslega mun yngri en mennirnir
á hinu myndbandinu. Raunar virð
ist hann það ungur að ekki er hægt
að útiloka að hann kunni að vera
undir lögaldri.
Hundruð ef ekki þúsund
ir sambærilegra erlendra
hrelliklámsmyndbanda úr bún
ingsklefum má finna á umræddri
klámsíðu, sem heimilar notend
um að hlaða upp sínu eigin efni.
Notandinn sem setti inn mynd
bandið af hinum meintu íslensku
mönnum gefur upp að hann sé
frá Íslandi og búsettur í Reykjavík.
Ein stærsta vefsíða heims
Vefsíðan sem um ræðir er, sam
kvæmt netumferðarsíðunni Al
exa.com, ein af hundrað vinsæl
ustu vefsíðum internetsins og því ljóst
að veruleg umferð er um síðuna. Á
fimmtudagsmorgun höfðu mynd
böndin tvö fengið samtals hátt í 5
þúsund áhorf. Ekki verður gefið upp
hér um hvaða vefsíðu er að ræða, til
að vernda þá sem á ofangreindum
myndskeiðum birtast enda eru
myndgæðin það góð að auðvelt
myndi reynast að bera kennsl á
þolendur sundlaugarperrans, ef
einhver þekkti til þeirra. Sam
kvæmt ábendingu sem DV barst um
myndböndin ganga þau nú manna á
milli hér á landi á netinu. Ljóst er að
um gróft brot gegn sundgestunum er
að ræða.
Grafalvarlegt mál
„Þetta er náttúrlega óforsvaranlegt og
grafalvarlegt mál ef menn eru að taka
upp og birta svona,“ segir Logi Sig
urfinnsson, forstöðumaður Laugar
dalslaugar. Honum var ekki kunnugt
um tilvist myndbandanna þegar DV
leitaði eftir viðbrögðum hans en seg
ir að svona mál hafi ekki komið upp
áður. Hann minnist þess þó þegar er
lendur ferðamaður var gripinn við að
taka myndir á klósetti Laugardals
laugar. Það atvik átti sér stað í ágúst
2013. Um var að ræða ítalskan mann
sem tók farsímamyndbönd af barn
ungum stúlkum á klósettinu. Hlaut
hann sex mánaða skilorðsbundinn
dóm fyrir.
Starfsfólk fær skítkast
Logi segir reglurnar skýrar. Ef
fólk tekur upp síma í búningsklef
um þá verði það tilkynnt til lög
reglu. Vanalega séu um einn til
tveir starfsmenn í klefum en eft
irliti þeirra sé oft mætt með hortug
heitum. „Almenningur þarf að vera
meðvitaður um að þetta getur verið
að gerast. Það er mikilvægt að fólk
virði reglurnar og sé ekki að taka
upp símann og virði viðbrögðin hjá
starfsfólki okkar þegar það gerist.
Starfsfólk hefur ítrekað fengið yfir
sig skít og skömm fyrir að skipta sér
af. En hér eru skilti úti um allt sem
banna notkun farsíma og að það
verði tilkynnt til lögreglu.“
Aðspurður hvort það hafi komið
til tals að skera upp herör í málinu og
hreinlega gera fólki að skilja farsíma
og myndavélar eftir í hólfi í afgreiðslu,
segir Logi að það sé ekki komið á það
stig. „Ekki enn sem komið er. En þetta
er því miður einfalt í dag. Það eru all
ir með topptæki og ef brotaviljinn er
einbeittur þá er erfitt að stöðva það.“
Árni Þór Sigmundsson, yfir
maður kynferðisbrotadeildar lög
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu,
segir málið ekki hafa komið inn á
borð til deildarinnar og sé því ekki til
rannsóknar. n
Sundperri dreifir myndefni
úr klefa laugardalSlaugar
n Myndböndum af ungum mönnum deilt á stórri klámsíðu n „Óforsvaranlegt“
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Mjög ungur Á seinna myndbandinu má sjá ungan pilt nakinn í búningsklefa laugarinnar. Ekki er hægt að útiloka að hann sé undir lögaldri.
Gróft brot Ungur maður tekinn upp á
myndband í búningsklefanum.
Annar í sama myndbandi Þegar fyrri
maðurinn hafði klætt sig sneri upptökuníð
-
ingurinn sér að öðrum ungum manni sem v
ar
að athafna sig í klefanum.