Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Page 8
8 Fréttir Helgarblað 11.–14. mars 2016
Fiskur er okkar fag
- Staður með alvöru útsýni
Opið allt árið, virka daga,
um helgar og á hátíðisdögum
Kaffi Duus • Duusgata 10 • 230 Keflavík • Sími: 421 7080 • duus@duus.is • Opið frá k l. 10:30 - 23:00 alla daga
Allt það besta í íslenskri og indverskri matargerð
Óttar og Jóhannes Rúnar fá 35
milljónir á mann fyrir stjórnarsetu
Ó
ttar Pálsson, hæstaréttarlög
maður og einn eigenda
LOGOS, og Jóhannes
Rúnar Jóhannsson, for
maður slitastjórnar Kaup
þings, munu hvor um sig fá 250 þús
und evrur, jafnvirði um 35 milljóna
króna, í þóknun fyrir stjórnarsetu
í eignarhaldsfélaginu Kaupþingi á
þessu ári. Fjögurra manna stjórn
félagsins, sem mun halda utan
um óseldar eignir slitabús Kaup
þings að fjárhæð hundruð millj
arða króna, tekur formlega til starfa
á fyrsta hluthafafundi Kaupþings
hinn 16. mars í næstu viku.
Samkvæmt heimildum DV er
gert ráð fyrir því í tillögum fyrir hlut
hafafundinn að þóknun stjórnar
formanns Kaupþings, sem verð
ur bandaríski lögmaðurinn Alan
J. Carr, verði 500 þúsund evrur,
jafnvirði 70 milljóna króna, á ári.
Þóknun annarra stjórnarmanna
verður 250 þúsund evrur en auk
Óttars og Jóhannesar Rúnars tekur
Paul Copley sæti í stjórn Kaupþings.
Hann var á meðal þeirra sem stýrðu
fjárhagslegri endurskipulagningu
fjárfestingabankans Lehman
Brothers í Evrópu. Paul Copley
verður jafnframt framkvæmdastjóri
eignastýringar Kaupþings. Ekkert
verður af því að Bretinn Matthew
Turner, sem átti upphaflega að vera
í stjórn Kaupþings, taki við starfinu
eins og áður hafði verið áformað.
Þá mun Bandaríkjamaðurinn
John P. Madden, sem hefur stýrt
framtakssjóðum hjá Arcapita Bank
í London, starfa fyrir Kaupþing í
tengslum við sölu á eignum félags
ins. Var hann fenginn til liðs við
Kaupþing nýlega fyrir tilstuðlan
Keith Magliana, sjóðsstjóra hjá vog
unarsjóðnum Taconic Capital, sem
var helsti kröfuhafi Kaupþings, sam
kvæmt heimildum DV. Eignir Kaup
þings nema nærri 370 milljörðum
og munar þar mestu um 87% hlut
í Arion banka sem er metinn á um
170 milljarða. Hugmyndir áhrifa
mestu kröfuhafa Kaupþings gera
núna ráð fyrir að erlendar eignir fé
lagsins, einkum fasteignir og hlutir
í breskum félögum, verði seldar
hraðar en áður var ráðgert, líklega
innan tólf til átján mánaða.
Mikilvægasti ráðgjafi kröfuhafa
DV greindi fyrst frá því í október á
liðnu ári að áhrifamestu kröfuhafar
Kaupþings hefðu boðið Óttari að
taka sæti í stjórn eftir að slitabúið
lyki nauðasamningum. Sú ákvörðun
kom ekki á óvart enda hefur Óttar
verið einn allra mikilvægasti ráð
gjafi – hvort sem litið er til erlendra
eða innlendra aðila – stærstu kröfu
hafa gömlu bankanna á síðustu
árum. Þannig var Óttar viðstaddur
alla þá upplýsingafundi sem kröfu
hafar slitabúanna og helstu ráð
gjafar þeirra áttu með ráðgjafahópi
stjórnvalda í haftamálum síðastliðið
vor. Þar féllust kröfuhafar Kaup
þings á að uppfylla stöðugleikaskil
yrði stjórnvalda sem fólst meðal
annars í framsali innlendra eigna
sem voru bókfærðar á 135 milljarða
í árslok og að koma að fjármögnun
Arion banka í erlendri mynt til langs
tíma.
Auk þess að starfa sem ráðgjafi
kröfuhafa Glitnis og Kaupþings
undanfarin ár stýrði Óttar Straumi
Burðarás, núna ALMC, í gegnum
nauðasamninga sumarið 2010 sem
forstjóri félagsins og tók hann í kjöl
farið sæti í stjórn ALMC. Hefur Óttar
fengið mjög ríflegar greiðslur fyrir
setu sína í stjórn ALMC en þannig
námu þóknanir til þriggja manna
stjórnar félagsins á árinu 2014 sam
tals 943 þúsund evrum, jafnvirði um
140 milljóna króna. Að meðaltali
námu stjórnarlaunin því um 46,5
milljónum króna á mann sem gerir
tæplega 3,9 milljónir á mánuði.
Hundruð milljóna bónus
Þá var Óttar, eins og upplýst var
um í forsíðufrétt DV í síðasta
mánuði, einnig í hópi þeirra 20–30
núverandi og fyrrverandi starfs
manna gamla Straums sem fengu
í lok síðasta árs samtals yfir þrjá
milljarða króna í bónusgreiðslur.
Þannig námu bónusar til Óttars og
nokkurra annarra lykilstjórnenda
ALMC um hundruðum milljóna á
mann. Óttar hafði áður, í ágúst árið
2009, skrifað grein í Morgunblaðið –
undir fyrir sögninni „Lögðum rangt
mat á veruleikann“ – þar sem hann
baðst afsökunar á óformlegum hug
myndum á þeim tíma um bónus
greiðslur upp á allt að tíu milljarða
króna til lykilstarfsmanna félagsins.
Jóhannes Rúnar, sem verður
starfandi stjórnarmaður í Kaup
þingi, hefur verið formaður
slitastjórnar undanfarin ár. Á síð
asta ári námu þóknanir til þriggja
manna slitastjórnar Kaupþings
samtals 288 milljónum króna og
hækkuðu greiðslurnar um 45% frá
fyrra ári. Að meðaltali fengu með
limir slitastjórnar því um 8 milljónir
króna á mann í þóknun á mánuði
fyrir störf sín. Þá samþykktu kröfu
hafar Kaupþings að setja að lág
marki tíu milljarða króna í sér
stakan sjóð til að tryggja skaðleysi
slitastjórnar í allt að tólf ár eft
ir nauðasamning. Geta meðlimir
slitastjórnar þannig gengið á sjóð
inn til að standa straum af ýmsum
kostnaði sem kann að falla á þá
vegna mögulegra málsókna.
ESÍ í hópi stærstu hluthafa
Helstu eigendur Kaupþings eftir
nauðasamning eru bandarísku
vogunarsjóðirnir Taconic Capital,
Abrams Capital og York Global.
Samtals voru rúmlega tvö þúsund
kröfuhafar hluti af nauðasamningi
Kaupþings og verða því hluthafar
í hinu nýja eignarhaldsfélagi. Á
meðal þeirra er Eignasafn Seðla
banka Íslands (ESÍ) en hlutur þess
verður tæplega 6% sem gerir ESÍ
að fjórða stærsta einstaka hluthafa
Kaupþings. Fyrirséð er hins vegar að
hluthöfum fækki mikið á komandi
mánuðum og misserum samhliða
því að stærstu eigendur Kaupþings
munu kaupa út smærri aðila. n
n Tillögur gera ráð fyrir að stjórnarformaður Kaupþings fái 70 milljónir á ári n Aðrir stjórnarmenn helmingi minna
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
Stjórnarmenn Glitnis
fá enn hærri laun
Þrátt fyrir að hafa yfir að ráða umtalsvert
meiri eignum þá eru þóknanagreiðslur
til handa stjórnarmönnum Kaupþings
lægri borið saman við þær greiðslur sem
hluthafar Glitnis HoldCo samþykktu að
borga til þriggja manna stjórnar félagsins
á hluthafafundi í janúar síðastliðnum. Fá
stjórnarmenn Glitnis HoldCo, eins og greint
var frá í DV, samtals um 175 milljónir króna
fyrir stjórnarsetu á þessu ári.
Þannig fær Bretinn Mike Wheeler 525
þúsund evrur, jafnvirði ríflega 70 milljóna
króna, í þóknun fyrir að gegna starfi
stjórnarformanns. Aðrir stjórnarmenn
Glitnis HoldCo, Daninn Steen Parsholt og
Norðmaðurinn
Tom Grøndahl,
fá hvor um sig
350 þúsund
evrur, jafnvirði
50 milljóna króna, í þóknun fyrir stjórnarsetu
á árinu 2016. Fram kemur í fundargerð, sem
DV hefur undir höndum, að fyrir utan einn
hluthafa, sem á aðeins um 0,02% hlut í
félaginu, þá hafi tillagan um þóknun fyrir
stjórnarsetu hlotið samþykki allra hluthafa
sem mættu á fundinn og greiddu atkvæði.
Fulltrúi Eignasafns Seðlabanka Íslands, sem
er í hópi stærstu hluthafa Glitnis HoldCo, sat
hins vegar hjá við atkvæðagreiðsluna.
Nýtt félag Greidd verða
atkvæði um tillögur að launum
stjórnarmanna Kaupþings á
fyrsta hluthafafundi félagsins
á miðvikudaginn í næstu viku.
MyNd STEfáN KArlSSoN
Jóhannes R.
Jóhannsson
35 millj.
Paul Copley
35 millj.
Alan J. Carr
70 millj.
Óttar Pálsson
35 millj.