Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Page 14
14 Fréttir Erlent Helgarblað 11.–14. mars 2016
Dalvegi 2, 201 Kópavogi Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði
eldbakaðar eðal pizzur
sími 577 3333
Nota samfélagsmiðla
til að selja framandi dýr
n Refapar og órangútan sérstaklega vinsæl heimilisdýr n Dýraverndunarsinnar hafa
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Þ
eir sem vilja komast yfir
dýr í útrýmingarhættu eða
sjaldgæf dýr til að eiga í
einkasöfnum sínum, eða
jafnvel girnast hluta dýr
anna nota samfélagsmiðla eins
og Facebook til að skiptast á og
selja dýrin. Þetta er sérstaklega
algengt í Asíu þar sem ólögleg
kaup og sala á dýrum fer fram á
Instagram og Facebook. Þetta er
sérstakt áhyggjuefni þar sem dýr
in eru notuð sem heimilisdýr, jafn
vel sem djásn eigenda sinna en svo
eru afurðir þeirra stundum notað
ar í lyf og eru taldar hafa lækninga
mátt.
Sölumennirnir virðast vera að
færa sig upp á skaftið, nota samfé
lagsmiðlana til að ná til kaupenda
og nota svo aðra samfélagsmiðla
til að ganga frá sölunni. Þeir virð
ast hafa lítið að óttast og í auglýs
ingunum reyna þeir varla að fela
sig, þeir segjast bjóða dýrin til sölu
og bjóða jafnvel heimsendingu á
vörunni. Þetta vekur óhug meðal
dýraverndunarsinna sem fjalla um
málið, en alþjóðlegur dagur dýra
var haldinn þann 3. mars síðast
liðinn.
Fylgjast með
Sjötíu og sjö nashyrningshorn
voru seld á lokuðum svæðum
á samfélagsmiðlum á einum
mánuði í Kína, fílabein í þúsunda
tali og gríðarlegur fjöldi sjald
gæfra fuglategunda var auglýstur
til sölu. Traffic er hópur sem fylgist
með sölu villtra dýra. Hann fylgist
sérstaklega með sölumönnum í
Malasíu þar sem Facebook er afar
vinsæl sölusíða. Þeir fylgdust með
kaupum og sölum í yfir 50 klukku
stundir í fyrra þar sem þeir sáu 200
auglýsingar birtast og hverfa þar
sem lifandi villt dýr voru boðin
til sölu, bæði sjaldgæfar fugla
tegundir og jafnvel órangútan.
Oftar en ekki eru auglýsingarnar
settar á Facebook eða Instagram,
en svo fer salan sjálf í gegnum smá
forritið WhatsApp. „Sölumennirn
ir virðast frekar afslappaðir og þeir
gefa upp miklar upplýsingar um
sjálfa sig. Þeir bjóðast jafnvel til
þess að flytja dýrið heim til kaup
andans,“ segir í skýrslu Traffic.
Kettir og hundar ekki nóg
„Það virðist ekki vera nóg að eiga
hunda og ketti lengur. Fólk vill eign
ast óvenjuleg og framandi dýr,“ segir
Elisabeth John, talskona Traffic, og
bætir við að ref apar væru skyndi
lega sérstaklega vinsæl heimilisdýr.
Nashyrningur Nashyrningshorn þykja sérstaklega eftirsóknarverð og eru talin hafa
lækningamátt. Nashyrningar eru í útrýmingarhættu vegna þessa. MyNd EPA
Órangútan Ótrúlegt en satt þá vilja sumir
hafa órangútan sem heimilisdýr. MyNd EPA
Láttu þér ekki vera kalt
Sími 555 3100 www.donna.is
hitarar og ofanar
Olíufylltir ofnar 7 og 9
þilja 1500W og 2000 W
Keramik hitarar
með hringdreifingu
á hita
Hitablásarar
í úrvali
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf