Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Blaðsíða 24
Helgarblað 11.–14. mars 20162 Komdu í steik - Kynningarblað
S
teikhúsið var opnað í júní
2012 og frá þeim tíma leit-
uðu eigendur staðarins
logandi ljósi að nauta-
kjöti sem myndi upp-
fylla ströngustu gæðakröfur og
falla óaðfinnan lega að vinnslu- og
eldunaraðferðum þeirra. Að sögn
Atla Más Sigurðssonar veitinga-
stjóra lauk ríflega tveggja ára leit
hjá fyrirtækinu Creekstone Farms
í Bandaríkjunum. „Þar með hófst
tími ánægjulegra uppgötvana hjá
gestum okkar sem hafa notið góðs
af þessu dýrindis kjöti.“
Black Angus-steikurnar –
þær bestu í bænum
„Black Angus-steikurnar okkar
eru einfaldlega úr úrvals hráefni
og njóta mikilla vinsælda. Það
má segja að við sérhæfum okkur í
þessari steikargerð. Við erum með
steikurnar í hægmeyrnunarskáp
þar sem þær þroskast afbragðs vel,
meyrna og bragðast frábærlega
enda innihalda þær bæði mikla fitu
og mikið bragð. Sú allra vinsælasta
er nautalund sem er 200 grömm en
steikhúsveislan okkar inniheldur
einmitt hana og hefur fallið einkar
vel í kramið hjá viðskiptavinum
okkar sem eru á aldrinum 25–55
ára. Við erum með fjölbreytt úrval
af nautasteikum til að mæta fjöl-
breyttum smekk gesta okkar. Bæði
Íslendingar sem og erlendir ferða-
menn njóta veitinga hjá okkur en
þó eru Íslendingar í meirihluta um
helgar.“
Gómsætar og spennandi
nýjungar í næstu viku
Þegar Atli er inntur eftir hvers
konar steikingu hann mæli með
er því auðsvarað: „Að mínu mati
ætti að steikja allt nautakjöt „medi-
um rare“, hrossalund „rare“, hrefnu
„rare“, lambafillet „medium“ og
lambaprime „medium well“.
Við kynnum til leiks nýjungar á
matseðli okkar í næstu viku; rétti
eins og skötusels-kinnar í „steamy
-bun“ (nokkurs konar lauflétt
brauðbolla), bleikju með reyktri
hollandaise-sósu og broccolini
(sem er fíngert spergilkál með
lengri og grennri stilk) auk fjölda
annarra gómsætra rétta,“ segir Atli
og lofar spennandi nýjungum.
Steikhúsið,
Tryggvagata 4–6,
101 Reykjavík
Sími: 561-1111
Netfang: steik@steik.is
Opnunartími:
Sunnudaga–fimmtudaga
kl. 17.00 til 22.00
Föstudaga–laugardaga
kl.17.00 til 23.00
Steikhúsið: Sérhæfing
í safaríkum steikum
Margverðlaunaður matreiðslu-
meistari leggur steikarlínurnar
Kitchen & Wine:
Á
veitingastaðnum Kitchen
& Wine, sem staðsettur er á
101 hóteli ræður ríkjum yfir-
matreiðslumeistarinn Hákon
Már Örvarsson sem er einn af
færustu matreiðslumönnum lands-
ins. Hann hefur unnið til ýmissa al-
þjóðlegra verðlauna, t.d. hreppti hann
bronsverðlaun í French Bocuse d’Or
auk þess sem hann fékk bronsverð-
launin í keppninni Matreiðslumaður
Skandinavíu.
Hákon hefur starfað á Michelin-
stöðum víðs vegar um heiminn og er
því með eindæmum hæfileikaríkur
og fróður. Að hans sögn er boðið
upp á þrjár sérvaldar gerðir af steik á
Kitchen & Wine.
„Þetta eru flottur íslenskur lamba-
hryggur á beini (250 g), hollensk Rib
Eye kálfasteik (250 g) og Black Angus
Strip loin nautasteik frá Bandaríkjun-
um (300 g).
Steikurnar okkar eru alltaf grillaðar
á glóandi heitu Robata-grilli sem gefur
sérlega gott grillbragð og eru einnig
penslaðar með kryddsmjöri áður
en þær eru bornar fram. Steikurnar
koma svo bæði með bearnaise- og
rauðvíns sósu, ásamt fersku grænmeti
og sveppum,“ segir hann.
Flottasti kokteilbarinn
„Við leggjum upp úr einfaldleikanum
og vinnum með gæðahráefni,“ segir
Hákon. „Verðlagningu okkar er stillt í
hóf sérstaklega þegar mið er tekið af
gæðunum sem við bjóðum gestum
okkar upp á.
Þess ber að geta að á matseðlinum
er líka lögð mikil áhersla á humarrétti
en það er nokkuð sem margir kunna
vel að meta.“
Hákon vekur athygli á því að á
Kitchen & Wine er líka flottasti kok-
teilbar Reykjavíkur: „Þar erum við
með gott úrval af hvítvíni, rósavíni
og rauðvíni – hvort tveggja í glasi og
á flöskum auk fjölbreytts úrvals af
girnilegum kokteilum. Slegið er upp
Happy hour alla daga frá kl. 16.00 til
19.00 sem hefur mælst mjög vel fyrir
hjá gestum okkar en þá bjóðum við
m.a. upp á rósavín, rauðvín og hvítvín,
sem og kampavín og ýmsa spennandi
kokteila.“
Kitchen & Wine Restaurant
101 hótel Hverfisgötu 10
101 Reykjavík
Sími: 580-0103
www.kitchenandwine.is
Myndir ÞorMAr ViGnir GunnArsson