Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Page 32
Helgarblað 11.–14. mars 201628 Sport - Leiðandi á leiksvæðum jh@johannhelgi.is • johannhelgi.is HEILDARLAUSNIR FYRIR LEIKSVÆÐI Uppsetningar, viðhald og þjónusta • Útileiktæki • Girðingar • Gervigras • Hjólabrettarampar • Gúmmíhellur • Fallvarnarefni Tilboð á Lappset útileiktækjum 2016 Leitið til sölumanna í síma 565 1048 „Ég braut reglurnar heima til að geta mætt“ F losrún Vaka, eins og svo margar aðrar afrekskonur, prófaði sig áfram í nokkrum greinum áður en hún fann sig loksins á skautasvellinu. „Karate, ballett og fimleikar – en ég fann mig aldrei í neinu ákveðnu,“ seg- ir hún. Hún var þrettán ára þegar hún hitti stelpur sem voru að æfa íshokkí á skautasvellinu í Laugardalnum. Þær spurðu hana hvort hún hefði áhuga á að æfa og hún hélt það nú. „Ég hafði alltaf hangið á skautum á föstudagskvöldum. Þá voru þarna hokkístelpur sem voru á skautum og buðu mér að koma og prófa. Mér hafði aldrei svo mikið sem dottið í hug að æfa íshokkí fyrr en þær spurðu mig,“ segir hún. „Þetta er kannski skrítin ástæða – ég var bara spurð hvort ég vildi prófa,“ bætir hún við og hlær. Brautryðjandi Á þessum tíma hafði deild fyrir konur aðeins verið starfrækt í um ár og er Flosrún því einn af brautryðjendum hokkísins á Íslandi. „Þar sem þetta var svona nýtt voru þær að leita sér að fleiri félagsmönnum og þetta var besta leiðin – spyrja fólkið á ísnum. Mamma var nú reyndar ekkert sér- staklega hrifin af þessu og hafði áhyggjur af því að ég myndi meiða mig. Hún endaði á því að kaupa allan gallann á mig og bað mig um að halda mig við þessa grein því gallinn var frekar dýr,“ segir hún. Flosrún fann að kunnátta hennar á skautum gaf henni ákveðið forskot. „Ég mætti á fyrstu æfinguna og þá sá þjálfarinn að ég kunni að skauta. Diskó-föstudagarnir í Skautahöllinni höfðu borgað sig. Svo hélt ég áfram.“ Hún þurfti fyrst og fremst að læra að beita kylfunni. Hún byrjaði í vörn en var svo færð til og spilar nú yfirleitt framherja- stöðu og á vængnum. „Ég vann mig upp í vænginn og svo framherjastöðu. Ég spila oft þá stöðu sem vantar í og bý að því að hafa spilað ólíkar stöður,“ segir hún. Braut reglurnar Flosrún Vaka æfði með Skautafé- laginu Birninum í Reykjavík og drösl- aðist með stóru íshokkítöskuna sína í strætó seint á kvöldin og steyptist niður brekkuna að Laugardalnum í öllum veðrum. Hún sveikst aldrei um að mæta á æfingarnar og stork- aði jafnvel foreldrum sínum þegar þeir vildu að hún gerði eitthvað ann- að. „Ég braut reglurnar heima til að geta mætt.“ Hún hafði fundið sig og vissi ná- kvæmlega hvað það var sem hún vildi gera – æfa íshokkí. Hún fór í litla upp- reisn gegn félaginu eina önn þegar henni ofbauð æfingatíminn sem kon- unum var úthlutaður á ísnum og færði sig yfir í Skautafélag Reykjavíkur, þar sem hún æfði með drengjum. Svo sneri hún aftur og æfði með Birn- inum áfram þar til hún fluttist til Danmerkur árið 2006. Ævintýraleit Þá hafði hún nýlokið stúdentsprófi og var í leit að nýjum áskor- unum. Hún og vin- kona hennar ákváðu að flytja tvær saman til Danmerkur og freista gæfunnar. Flosrún gekk til liðs við danska félagið Herlev Hornets. „Mig langaði að gera eitthvað skemmtilegt áður en ég færi í háskólanám. Ég var sterk í hokkíinu og tók gallann með mér út. Ég fann lið, sem reyndist vera eitt sterkasta lið Danmerkur, og fékk að ganga til liðs við það. Það gerði mig að betri leik- manni,“ segir hún. „Þetta var mjög gott fyrir mig, í liðinu voru átta stelpur úr danska landsliðinu. Að fá að spila með svona sterkum, reyndum leikmönnum sem spila með sínu landsliði þremur deildum ofar okkar íslenska var mik- il og góð reynsla í reynslubankann,“ segir hún. En þetta voru mikil viðbrigði. Flosrún hafði verið burðarás í ís- lensku hokkíi, var orðin þekktur leik- maður og þótti mjög sterk. Í Dan- mörku þurfti hún hins vegar að byrja á botninum og vinna sig upp. Það tók á bæði andlega og líkamlega. „Ég vann mig svo fljótt upp heima. Úti var ég bara kennitala sem þurfti að hafa fyrir hlutunum. Ég byrjaði aftar, mætti á allar æfingar og þurfti að vinna mig upp,“ segir hún. „Ég sá að ég varð að gera meira, æfa meira en hinar. Ég mætti á auka þrekæf- ingar til dæmis – það er auka æfingin sem skapar meistarann.“ En það borgaði sig líka og hún vann sig upp. Liðið varð tvö- faldur Danmerkur- meistari. Auk þess spilaði Flosrún einnig hokkí með liði sem keppti á línuskautum og varð Evrópumeistari með liðinu Gentofte Rattlesnakes. Vængbrotin Eftir tvö ár í Danmörku sneri hún aftur til Íslands að leita sér að verk- efnum. Hún staldraði stutt við í við- skiptafræði en gekk svo til liðs við Iceland Express sem flugfreyja. „Það var ótrúlega skemmtilegur tími í flug- inu,“ segir hún en hún varði með- al annars sumri á Ítalíu á vegum félagsins og fór svo þaðan til Sádi- Arabíu þar sem hún starfaði sem flugfreyja í pílagrímsferðum. Hún tók sér hálfs árs leyfi frá æfingunum og sinnti vinnunni. Það var ágætis hvíld og ferðalögin reyndust ómetan- leg reynsla. Þegar hún kom aftur á skautasvellið fann hún að það var gott að vera komin aftur heim og reima á sig skautana. „En ég var svo- lítið vængbrotin og fann að ég þurfti að leggja mikið á mig til að komast aftur í mitt fyrra form og jafnvel betra. Ég ákvað þá að þegar ég æfði hokkí þá myndi ég alltaf leggja mig alla fram.“ Þegar hún kom heim fann hún líka hvað það var sem hún vildi leggja fyrir sig að atvinnu. Hún skráði sig í nám við tannsmíði við Háskóla Ís- lands og komst að því að námið átti svona ljómandi vel við hana. Henni tókst að samræma æfingar og nám og útskrifaðist svo í fyrra sem tann- smiður. Skyndilega þjálfari Eftir útskrift sá Flosrún að at- vinnumöguleikar hennar sem tann- smiður voru ekki það miklir hér á landi. Þegar kærasta hennar bauðst staða leikmanns og aðstoðarþjálf- ara í Noregi ákvað hún að fara með honum út. Hún fann svo sjálf fljót- lega lið, Sparta Warriors, í Sarpsborg í Noregi og byrjaði að spila með því. Þar reyndust þó leikmanna- og þjálf- aramál vera í miklum ólestri. „Ég var að orðin mjög þreytt á þessu. Um tíma vorum við alveg þjálfaralausar, sem er mikil synd því þetta er gott lið þar sem framtíðar landsliðsmenn Norðmanna leynast. Æfingarnar fóru því algjörlega til spill- is. Ég fékk algjörlega nóg. Ég sagðist eiginlega ekki nenna að æfa und- ir þessum kringumstæðum og bauð mig fram sem aðalþjálfara. Ég hafði reynslu af því að þjálfa ungmenni, en hafði ekki þjálfað á meistaraflokks- stigi áður. Forsvarsmönnum liðsins leist samt vel á mig og sömdu við mig um að ég yrði þjálfari og leikmað- ur,“ segir hún. „Þetta var stór áskor- un en á sama tíma var þjálfarahlut- verkið einmitt það sem ég þurfti og hefur breytt hugsun minni og sýn á leikinn. Sjónarsvið mitt á hokkí er miklu breiðara. Þetta er verk efni sem ég ætla að læra mikið á,“ segir hún, en framundan er keppni í úrslitum um norska meistaratitilinn. „Mitt fyrsta verk var að kenna liðinu að spila eftir kerfum. Liðið hafði ekki haft góðan þjálfara síð- ustu tvö ár og tapað þar af leiðandi næstum öllum leikjum. Fjórum vik- um eftir að ég tók við liðinu unnum við okkar fyrsta leik og eins og stað- an er núna höfum við unnið tvo leiki og gert eitt jafntefli. Þetta er því allt á réttri leið,“ segir hún og bætir við að liðin sem þær keppa við séu mjög Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is Bauð sig fram Flosrún Vaka gafst upp á þjálfara skortinum og bauðst til að taka starfið að sér. Mynd TíMariT hÁSkóla íSlandS /kriSTinn ingVarSSon – BirT Með leyfi kona leiksins Hér má sjá verðlaun Flosrúnar fyrir frammistöðu hennar í fyrsta leik á HM. Mynd Úr einkaSafni „Ég sagðist eiginlega ekki nenna að æfa undir þessum kringumstæðum og bauð mig fram sem aðalþjálfara. „Viltu prófa að æfa íshokkí?“ spurðu félagsmenn Bjarnarins í Reykjavík Flosrúnu Vöku Jóhannesdóttur þegar hún var þrettán ára á diskókvöldi í Skautahöllinni í Laugardalnum. Hún sló til og er einn af brautryðjendum íshokkí- íþróttarinnar á Íslandi. Á nýafstöðnu heimsmeistaramóti var hún valin kona leiksins eftir fyrsta leik og mikilvægasti leikmaður íslenska landsliðsins á mótinu. Um þessar mundir prófar hún sig áfram í stöðu spilandi aðalþjálfara norsks liðs með tilheyrandi áskorunum. Hún ræddi við Ástu Sigrúnu Magnúsdóttur um diskókvöldin, landsleikina og aukaæfinguna sem gerir gæfumuninn. Verðmætur leikmaður Flosrún var valin besti leikmaður íslenska landsliðsins. Mynd Úr einkaSafni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.