Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Page 34
30 Menning Helgarblað 11.–14. mars 2016
Þ
að var listhúsið Mengi sem
hlaut Menningarverðlaun DV
2015 í flokki tónlistar. Í rök-
stuðningi dómnefndar segir:
„Menningarsetrið Mengi hefur
á undanförnum árum haldið úti
kraumandi og vandaðri dagskrá við-
burða af öllu tagi. Á örfáum fermetr-
um á Óðinsgötu hafa verið haldnir ár-
lega hátt á annað hundrað viðburða;
tónleika, myndlistar-, dans- og leik-
sýninga. Hvað tónlist varðar hefur
Mengi skapað fágætan vettvang fyrir
samtal og sköpun óháð formi, tíma
eða stað, þar sem á einum mánuði
má heyra innlenda sem erlenda lista-
menn flytja rokk, raftónlist, barokk,
þjóðlög, samtímatónlist, djass eða
allt í senn. Á nýju ári bættist barna-
starf í tilrauna- og fræðslustarfsemina
sem fyrir var, sem gert hefur Mengi
að ómetan legum suðupotti uppgötv-
unar og upplifunar fyrir listamenn og
neytendur.“
Vettvangur fyrir verk í vinnslu
Mengi, sem er staðsett á Óðinsgötu
2, var opnað árið 2013 af Bjarna
Gauki Sigurðssyni og Elísabetu
Jónsdóttur, en tónlistarmaðurinn
Skúli Sverrisson hefur verið listrænn
stjórnandi frá upphafi og tónlistar-
konan Ólöf Arnalds virkur þátttak-
andi í starfseminni. Auk þeirra starfa
Ragnheiður Elísabet Þuríðardóttir
sem viðburðastjóri og Elísabet Indra
Ragnarsdóttir sem verkefnastjóri
rýmisins.
Skúli segir að hugmyndin hafi
kviknað þegar þeir Bjarni Gaukur
fluttu báðir heim til Íslands eftir
búsetu erlendis og fannst vanta
menningarhús sem gæti boðið upp
á reglulega dagskrá og verið eins
og rauður þráður milli hinna fjöl-
breyttu hátíða sem haldnar eru í
Reykjavík árið um kring.
„Markmiðið var að endurspegla
þetta litríka menningarlíf sem er til
staðar í Reykjavík,“ segir Skúli. „Hug-
myndin var ekki að vera með fast-
mótaða stefnu hvað varðar tegund
eða tónlist, heldur vildum við bara
bjóða listamönnum upp á þetta
rými. Það er oft flókið mál að leigja
sal, hljóðkerfi og annað slíkt fyrir tón-
leika. Það tekur langan tíma að sækja
um á tónlistarhátíðum eða skipu-
leggja tónleika, en við vildum búa
til hraðara ferli sem endurspeglaði
þetta líf reglulega. Það eru alls konar
verkefni sem fæðast og mótast mjög
fljótt, og við hugsuðum að væri gam-
an að fylgjast með þessu í þróun,“
segir Skúli.
„Við leggjum sérstaklega áherslu á
að listamenn sem eru að fást við mús-
ík sem leitar yfirleitt ekki til áhorf-
enda eða finnur sér ekki farveg inni
á hátíðum eða hjá plötuútgáfum geti
haldið áfram að þróa sín verkefni.
Svo höfum við hvatt listamenn til að
prófa nýja hluti, jafnvel þó að þeir séu
ekki fullmótaðir – það má koma inn
með verkefni sem er í þróun.“
Skúli segir að þeir viðburðir sem
standi helst upp úr hjá honum séu
slík verkefni í vinnslu. „Það er mjög
gaman að fylgjast með slíkri þróun.
Það er jafnvel efni sem hefði ekki
fundið sér farveg án Mengis. Mér
finnst það standa upp úr.“
Þekkt stærð á alþjóð-
legum vettvangi
Tónleikar eða aðrir við-
burðir eru haldnir að
minnsta kosti þrisvar í
viku, á fimmtudegi, föstu-
degi og laugardegi og seg-
ir Skúli að þeir séu ef-
laust orðnir meira en þrjú
hundruð talsins. Tónleik-
arnir hefjast alltaf á aug-
lýstum tíma og aðgangseyrir ávallt
2.000 krónur.
„Við viljum fyrst og fremst leggja
áherslu á innihaldið. Þeir sem koma
í Mengi eru sérstaklega komnir til að
hlýða á tónlistina eða sjá það sem er
að gerast. Við höfum líka lagt áherslu
á að það kosti inn svo að listamaður-
inn geti fengið einhver laun fyrir það
sem hann hefur verið að þróa,“ segir
Skúli.
„Viðtökurnar hafa verið alveg
ótrúlega góðar og það er ljóst að það
var þörf fyrir stað eins og Mengi,“
segir Skúli og bendir á að hér hafi
skapast nokkuð samfélag íslenskra
listunnenda sem mæta reglulega í
Mengi auk þess sem hróður menn-
ingarhússins hafi borist út fyrir land-
steinana.
„Í upphafi hringdum við mikið í
fólk og hvöttum það til að koma og
spila. En nú hefur fólk samband og
biður um að fá að spila. Þetta orðin
þekkt stærð. Það eru ekki margir
staðir af þessu tagi á alþjóðlegum
vettvangi þannig að athyglin erlendis
verður mjög fljótt til og eykst stöðugt,“
segir Skúli.
Fjölmargir virtir og þekktir lista-
menn hafa þannig komið fram í
þessu örlitla listarými við Óðinsgötu
og kunna þeir sérstaklega að meta
nálægðina og andrúmsloftið.
Skúli segir hópinn vera ánægðan
með viðurkenninguna sem felst í
Menningarverðlaunum DV. „Við
þurfum hvatningu og við viljum að
fólk viti af Mengi og mæti á tónleika
– það eykur laun listamannsins. Öll
hvatning er sérstaklega kærkomin og
ánægjuleg. Ég er aðallega þakklátur
fyrir fólkið sem lætur sjá sig og fylgist
með því sem er að gerast.“
Ómetanlegur suðu-
pottur uppgötvunar
Menningarhúsið Mengi hlýtur Menningarverðlaun DV í flokki tónlistar
Tónlist
„Við höfum
hvatt listamenn
til að prófa nýja hluti,
jafnvel þó að þeir séu
ekki fullmótaðir – það
má koma inn með verk-
efni sem er í þróun.
O
rkustykkið Jungle Bar hlaut
menningarverðlaun DV
2015 í flokki hönnunar.
Í rökstuðningi sínum
sagði dómnefndin: „Orkustykkið
Jungle Bar, sem meðal annars er
búið til úr krybbum, er hugarfóstur
þeirra Búa Bjarmars Aðalsteins-
sonar, Stefáns Atla Thoroddsen og
Frosta Gnarr Jónssonar. Jungle Bar
er meðal annars ætlað að vekja fólk
á Vesturlöndum til umhugsunar
um þá ókönnuðu möguleika sem
felast í því að rækta skordýr til mat-
vælagerðar. Búi vakti áður athygli
fyrir uppfinninguna „Fly factory“,
vélrænt skordýrabú sem hefur það
að markmiði að ala lirfur í matar-
gerð. Með þessum verk efnum seg-
ist hann vilja útvíkka hugmyndir
um starf hönnuðarins. Það verkefni
var, líkt og Jungle Bar, að einhverju
leyti innblásið af lestri skýrslu FAO,
landbúnaðar arms Sameinuðu
þjóðanna, um stöðu landbúnað-
ar í Evrópu. Öll þróunarvinna fyr-
ir Jungle Bar var unnin á Íslandi,
meðal annars með styrkjum frá Ný-
sköpunarmiðstöð Íslands, Tækni-
þróunarsjóði og Startup Reykjavík.“
Þarf að breyta hugarfarinu
Jungle Bar er fyrsta afurðin frá
matvælafyrirtækinu Crowbar
Protein sem einbeitir sér að fram-
leiðslu matvæla úr skordýrum.
Búi Bjarmar og Stefán Atli stofn-
uðu Crowbar, en auk þeirra tekur
Frosti Gnarr virkan þátt í fyrirtæk-
inu. Rán Flygenring og Guðbjörg
Tómasdóttir koma að útlitinu og
Hinrik Carl Ellertsson kokkur hef-
ur aðstoðað við að þróa bragðgóða
blöndu úr skordýrunum.
Búi segir verðlaunin sérstak-
lega mikilvæg fyrir fyrirtækið til
að auka traust almennings á nýt-
ingu skordýra í matvæli enda sé
oft erfitt að sannfæra fólk um þá
kosti sem felast í skordýraáti.
Ef matvælaframleiðslu heims-
ins verður ekki umturnað mun
landbúnaðarland Evrópu brátt
verða uppurið, en aukin neysla
skordýra gæti hins vegar snúið
þessari þróun við. Búi byrjaði að
velta fyrir sér möguleikanum á nýt-
ingu skordýra í matargerð þegar
hann stundaði nám í vöruhönnun
við Listaháskóla Íslands. Sem loka-
verkefni þróaði hann vélrænt skor-
dýrabú og í kjölfarið ákvað hann
að stofna fyrirtæki sem hefði það
að markmiði að þróa bragðgóð og
girnileg matvæli sem innihalda
skordýr. Stærsta áskorunin fólst þó
í að breyta hugarfari fólks varðandi
neyslu á dýrunum.
Vinsælt í Bandaríkjunum,
bannað á Íslandi
Búi segir viðskipti vera eitt helsta
form samskipta fólks í milli í dag
og því hafi hann ákveðið að beita
hönnuninni á þeim vettvangi í
viðleitni sinni til að bæta heim-
inn – hann verði þó tilbúinn þegar
byltingarkallið kemur. Hann segir
að í sínum huga snúist hönnun
ekki bara um að skapa fallega hluti
heldur sé það leið til að bregðast
við vanda í umhverfinu. Þannig
mætti mun oftar kalla til hönnuði
til að leita lausna á vandamálum
sem steðja að – til dæmis væri
kjörið að fá hönnuði til að finna
lausnir á öryggisvanda á ferða-
mannastöðum.
Skordýrin sem eru notuð í
Jungle Bar eru ræktuð í Kanada og
þar fer öll framleiðsla orkustykkj-
anna fram. Fyrirtækið stefnir fyrst
og fremst inn á Bandaríkjamarkað
og þó að aðeins sé mánuður frá því
að sala á Jungle Bar hófst eru stykk-
in nú þegar komin í sölu í tólf versl-
unum vestanhafs – og segir Búi að
áhuginn sé meiri en þeir hafi þorað
að vona.
Enn sem komið er er ekki hægt
að kaupa orkustykkin í verslunum
hérlendis, þar sem reglugerð
Evrópusambandsins, sem bannar
sölu matvæla sem innihalda skor-
dýr, hefur nýlega verið innleidd.
Stykkin er þó hægt að panta í gegn-
um vefsíðu fyrirtækisins.
Útvíkka hugmyndir
um starf hönnuðarins
Skordýra-prótínstykkið Jungle Bar
Menningarverðlaun DV voru afhent í 37.
skipti í Iðnó 9. mars. Verðlaunin voru veitt í
níu flokkum: bókmenntum, fræðum, byggingarlist, danslist, hönnun, kvikmyndalist,
leiklist, myndlist og tónlist, auk þess sem tilkynnt var um sigurvegara úr netkosningu
dv.is. Forseti Íslands veitti heiðursverðlaun DV, en þau hlaut Þorsteinn frá Hamri.
Hönnun