Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Qupperneq 46
Helgarblað 11.–14. mars 2016
nýjar
vörur
í hverri viku
alltaf eitthvað nýtt
og spennandi
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
Sími: 571-5464
Sjáðu úrvalið á
www.tiskuhus.is
Hæ sæti
hvað
færð þú að
borða?
Smáralind • Kringlunni
Reykjanesbæ • Sími 511 2022
www.dyrabaer.is
42 Fólk
L
eikverkið Made in Children
verður frumsýnt í apríl í
Borgarleikhúsinu en verkið
er, eins og titillinn gefur til
kynna, búið til af börnum
sem einnig leika öll hlutverk.
Matthildur Björnsdóttir, 12 ára, og
Jörundur Orrason, 10 ára, tilheyra
leik hópnum sem samanstendur af
tíu börnum á aldrinum 8 til 12 ára.
Þau segja sköpun verksins mjög
skemmtilegt ferli og að þau séu farin
að hlakka til að frumsýna afrakstur-
inn.
Alveg sama hvað öðrum finnst
Matthildur og Jörundur eru afar
glaðlynd og hress þegar blaðamann
ber að garði á æfingu fyrir leikverkið
Made in Children. Nú styttist í frum-
sýningu og því hafa þau fengið leyfi
frá skóla frá hádegi til þess að sinna
stífum æfingum.
„Ég sakna þess stundum að vera
meira í skólanum því þar er oft verið
að gera eitthvað skemmtilegt eftir
hádegi en það er líka svo rosalega
gaman hér í leikhúsinu þannig að
það gerir ekkert til,“ segir Matthildur
sem hefur aldrei áður stigið á svið
en er óhrædd við þessa frumraun.
Jörundur hefur tekið þátt í skóla-
leikritum og segir að hann elski að
leika ýktar persónur, gera stórar
hreyfingar og detta inn í skrítin hlut-
verk sem hann hefur ekki áður próf-
að. „Mér er eiginlega alveg sama
hvað öðrum finnst þegar ég er að
Út fyrir
kassann
Kristín Tómasdóttir
skrifar
„Hjálpar ekki neitt
að vera stressaður“
n Matthildur og Jörundur leika fullorðna í Made in Children
Gaman
að leika
Matthildur
og Jörundur
eru ekki alveg
viss um það
hvort þau
ætli að verða
leikarar þegar
þau verða
stór, en þykir
mjög gaman
að kynnast
leikhúsinu.
„Þetta er búið að
vera rosalega
gaman og allir eru svo
skemmtilegir.