Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Síða 28
Helgarblað 29. apríl–2. maí 201628 Fólk Viðtal
» Loftsíur
» Smurolíusíur
» Eldsneytissíur
» Kælivatnssíur
» Glussasíur
Baldwin® hefur sérhæft sig í
smur-, loft- og hráolíusíum.
Við bjóðum upp á Baldwin® síur í
flestar gerðir þungavinnu- og sjóvéla á
hagstæðum verðum.
Verkstæði og viðgerðarþjónusta
Aðalsmerki Bætis er verkstæðið og
viðgerðarþjónustan.
Á verkstæði okkar erum við með öll tæki
til endurbyggingar á allt að 1750 hestafla
vélum.
Túrbínur
Bætir ehf. býður upp
á viðgerðarþjónustu
fyrir flestar gerðir
túrbína. Sími 567-2050 - Smiðshöfði 7 - 110 Reykjavík
„Þú hefðir átt að detta
úr rússíbananum“
H
austið 2013 ákváðu faðir
Aldísar, Sveinn Sigfússon,
og stjúpmóðir, Hulda Guð-
jónsdóttir, að bjóða öllum
börnunum sínum til Spánar
um sumarið. Með í för voru albræð-
ur Aldísar, Anton Ingi og Andri Freyr,
stjúpsystkini þeirra, Daníel og Írena,
og yngsta systirin í hópnum, Frey-
dís. Með í för var vinur systkinanna,
Hilmir.
Þegar Aldís byrjar að segja blaða-
manni frá atburðunum voveiflegu á
Spáni sumarið 2014, er greinilegt að
þeir eru henni í fersku minni, og það
reynir mikið á hana að rifja upp at-
burðarásina sem fór í gang eftir slys-
ið sem breytti lífi fjölskyldunnar til
frambúðar.
„Á sjöunda degi ákváðum við
að fara í Terra Mitica sem er einn
vinsælasti skemmtigarðurinn á
Benidorm,“ segir Aldís en eftir að
hafa eytt drjúgum tíma í garðinum
ákvað hluti fjölskyldunnar að fara í
stærsta rússíbanann, sem heitir In-
ferno.
„Einhvern veginn var okkur raðað
upp þannig að Andri sat við hliðina á
Hilmi og ég sat ein í vagninum fyrir
aftan þá. Stjúpmamma mín og stjúp-
bróðir komust ekki með í ferðina
heldur áttu að fara í þá næstu.“
Aldís rifjar upp að mikið óöryggi
hafi komið yfir hana þegar hún sett-
ist í tækið. Hún hafði sterklega á til-
finningunni að eitthvað ætti eftir að
fara úrskeiðis en bældi hugsanirnar
niður með því að einbeita sér að því
að öll tívolítæki væru örugg.
„Það næsta sem ég man er að
bróðir minn hrapar úr tækinu sem
var á fullri ferð og skellur í jörðina.
Mér datt helst í hug að garðurinn
væri að gera at í okkur. En um leið og
ég leit á milli sætanna og sá Andra
liggja á jörðinni vissi ég að þetta væri
ekkert grín.“
„Vægast sagt skelfilegt“
Í framhaldinu upphófst mikið fár,
bæði í vagninum sem stöðvaðist ekki
alveg strax, sem og meðal annarra
gesta í garðinum sem horfðu á Andra
detta 18 metra niður á steinsteypta
jörðina.
„Ég gjörsamlega fríkaði út. Þegar
vagninn stöðvaðist loksins var það
beint fyrir ofan staðinn þar sem
Andri lá þannig að alltaf þegar ég
leit á milli sætanna horfði ég beint á
hann. Það var vægast sagt skelfilegt.“
15 mínútur liðu þar til vagninn
komst aftur niður á jörðina og far-
þegarnir voru leystir úr tækinu. Allan
Aldís Elva Sveinsdóttir hefur upplifað raunir sem fæstir 16 ára unglingar
geta ímyndað sér. Hún varð vitni að því þegar bróðir hennar féll úr rússíbana árið
2014. Þá var Aldís aðeins 13 ára. Til að bæta gráu ofan á svart varð hún fyrir öðru
áfalli nokkrum dögum síðar. Þá sá Aldís að henni höfðu borist mörg nafnlaus
skilaboð. Þar var hún til dæmis ásökuð um að hafa drepið bróður sinn.
Kristín Clausen
kristin@pressan.is
Lífið stefnir í rétta átt
Aldís býr að lífsreynslu sem
fæstir á hennar aldri þekkja.
Mynd Sigtryggur Ari
Andri Freyr Sveinsson
Fæddur 2. apríl 1996 Dáinn 7. júlí 2014