Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Side 31
Helgarblað 29. apríl–2. maí 2016 Kynningarblað - Gæða gólfefni 3
S
tarfsfólk Teppabúðarinnar-
Litavers býr að mikilli fag-
þekkingu og byggir á ára-
tuga reynslu. Þar er alltaf
leitast við að ráðleggja fólki
um endingargóðar lausnir og hag-
kvæmar. Fjölbreytt vöruúrval af
gæðavöru á hagstæðu verði er aðals-
merki fyrir tækisins. Að sögn Bram
Zomers verslunarstjóra er verslunin
með ágætis úrval af teppum á lager,
allt frá einföldum filt-teppum til mjög
vandaðra gerviefna og ullarefna sem
henta vel á gólf í stofum, stigum og í
herbergjum.
„Við bjóðum upp á öfluga sér-
pöntunarþjónustu og ef óskað er eftir
einhverju sem er ekki til á lager get-
um við sérpantað það fyrir viðskipta-
vininn. Við erum líka með stök teppi/
mottur, vínyldúka og margar gerðir af
dreglum og auðvitað veggfóður sem
hægt er að gera ýmislegt ævintýralegt
með,“ segir hann. „Við vinnum mikið
með viðskiptavinum sem eru með
stærri rými eins og t.d. skrifstofur en
þar eru aðallega lagðar teppaflísar
sem eru mjög slitsterkar og þola mik-
ið álag. Okkar teppaflísar eru með
hljóðdempandi og umhverfisvænum
efnum, sem stuðla að hávaðaminna
og þægilegra vinnu-umhverfinu.
Hótel
Bram bendir á að Teppabúðin - Lita-
ver er í góðu samstarfi við arkitekta
og hönnuði og starfar með fyrirtækj-
um sem sérhæfa sig í framleiðslu á
teppum fyrir hótel og gistiheimili. Þar
er hægt að búa til hvaða mynstur eða
lógó sem er, eða gera breytingar á lita-
samsetningu á þeim 4.500 mynstrum
sem til eru nú þegar. Hótelteppin eru
til í ýmsum verðflokkum, gæðin eru
þó alltaf höfð í fyrirrúmi. Hér er að
sjálfsögðu lögð áhersla á efni sem eru
auðveld í þrifum, þola mikið álag og
eru m.a. framleidd samkvæmt stöðl-
um norræna svansmerkisins, sem
er vottun umhverfisvænnar vöru og
framleiðslu.
Gólfefnatískan í dag
„Tískusveiflur eru í gólfefnum, hvort
heldur er hjá hótelum, á skrifstofum
eða heimilum, sem í dag fylgir
skandinavískum straumum, unnið er
með stílhrein mynstur, sérstaklega á
hótelum. Meiri eftirspurn er eftir veg-
legum, massívum teppum fyrir heim-
ili sem eru loðnari, þykkari og þéttari.
Tískan breytist á milli ára, bæði áferð
og litir. Í tísku í dag eru mjúkir, hlýir
grábrúnir tónar, en t.d. fyrir 5 árum
síðan var meiri eftirspurn eftir gráum
kaldari litatónum.
Stigahús/sameignir
„Stigahúsateppi eru stór þáttur í
starfsemi okkar og við þjónustum
stigahús og sameignir frá A til Ö og
höfum gert í 50 ár. Við sjáum um til-
boðsgerð, afrif, förgun og lögn á há-
gæða stigahúsateppum. Við bjóðum
m.a. upp á Epoca, sem eru ofnæmis-
prófuð, slitsterk, hágæða dönsk teppi
frá EGE, sem auðvelt er að þrífa og
hafa verið seld hér á landi í meira en
35 ár. Einnig gerum við tilboð í máln-
ingarvinnu fyrir stigahús, sé þess ósk-
að. Starfsfólkið okkar hefur safnað
saman mikilli reynslu og þekkingu á
mörgum árum sem nýtist viðskipta-
vinum okkar mjög vel,“ segir Bram
að lokum og hvetur fólk til að koma
í heimsókn á Grensásveginn þar sem
allir finna eitthvað við sitt hæfi; frá
frekar ódýrum, einföldum lausnum
til hágæðavara og að sjálfsögðu allt
þar á milli. Í Teppabúðinni - Litaver
er þjónustan ávallt í fyrsta sæti. n
Litaver & Teppabúðin
Grensásvegi 18, 108 Reykjavík
Símar: 568-1950 og 581–2444
www.litaver.is
Teppabúðin - Litaver:
Öflug sérpöntunarþjónusta
og úrval lausna