Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Síða 31
Helgarblað 29. apríl–2. maí 2016 Kynningarblað - Gæða gólfefni 3 S tarfsfólk Teppabúðarinnar- Litavers býr að mikilli fag- þekkingu og byggir á ára- tuga reynslu. Þar er alltaf leitast við að ráðleggja fólki um endingargóðar lausnir og hag- kvæmar. Fjölbreytt vöruúrval af gæðavöru á hagstæðu verði er aðals- merki fyrir tækisins. Að sögn Bram Zomers verslunarstjóra er verslunin með ágætis úrval af teppum á lager, allt frá einföldum filt-teppum til mjög vandaðra gerviefna og ullarefna sem henta vel á gólf í stofum, stigum og í herbergjum. „Við bjóðum upp á öfluga sér- pöntunarþjónustu og ef óskað er eftir einhverju sem er ekki til á lager get- um við sérpantað það fyrir viðskipta- vininn. Við erum líka með stök teppi/ mottur, vínyldúka og margar gerðir af dreglum og auðvitað veggfóður sem hægt er að gera ýmislegt ævintýralegt með,“ segir hann. „Við vinnum mikið með viðskiptavinum sem eru með stærri rými eins og t.d. skrifstofur en þar eru aðallega lagðar teppaflísar sem eru mjög slitsterkar og þola mik- ið álag. Okkar teppaflísar eru með hljóðdempandi og umhverfisvænum efnum, sem stuðla að hávaðaminna og þægilegra vinnu-umhverfinu. Hótel Bram bendir á að Teppabúðin - Lita- ver er í góðu samstarfi við arkitekta og hönnuði og starfar með fyrirtækj- um sem sérhæfa sig í framleiðslu á teppum fyrir hótel og gistiheimili. Þar er hægt að búa til hvaða mynstur eða lógó sem er, eða gera breytingar á lita- samsetningu á þeim 4.500 mynstrum sem til eru nú þegar. Hótelteppin eru til í ýmsum verðflokkum, gæðin eru þó alltaf höfð í fyrirrúmi. Hér er að sjálfsögðu lögð áhersla á efni sem eru auðveld í þrifum, þola mikið álag og eru m.a. framleidd samkvæmt stöðl- um norræna svansmerkisins, sem er vottun umhverfisvænnar vöru og framleiðslu. Gólfefnatískan í dag „Tískusveiflur eru í gólfefnum, hvort heldur er hjá hótelum, á skrifstofum eða heimilum, sem í dag fylgir skandinavískum straumum, unnið er með stílhrein mynstur, sérstaklega á hótelum. Meiri eftirspurn er eftir veg- legum, massívum teppum fyrir heim- ili sem eru loðnari, þykkari og þéttari. Tískan breytist á milli ára, bæði áferð og litir. Í tísku í dag eru mjúkir, hlýir grábrúnir tónar, en t.d. fyrir 5 árum síðan var meiri eftirspurn eftir gráum kaldari litatónum. Stigahús/sameignir „Stigahúsateppi eru stór þáttur í starfsemi okkar og við þjónustum stigahús og sameignir frá A til Ö og höfum gert í 50 ár. Við sjáum um til- boðsgerð, afrif, förgun og lögn á há- gæða stigahúsateppum. Við bjóðum m.a. upp á Epoca, sem eru ofnæmis- prófuð, slitsterk, hágæða dönsk teppi frá EGE, sem auðvelt er að þrífa og hafa verið seld hér á landi í meira en 35 ár. Einnig gerum við tilboð í máln- ingarvinnu fyrir stigahús, sé þess ósk- að. Starfsfólkið okkar hefur safnað saman mikilli reynslu og þekkingu á mörgum árum sem nýtist viðskipta- vinum okkar mjög vel,“ segir Bram að lokum og hvetur fólk til að koma í heimsókn á Grensásveginn þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi; frá frekar ódýrum, einföldum lausnum til hágæðavara og að sjálfsögðu allt þar á milli. Í Teppabúðinni - Litaver er þjónustan ávallt í fyrsta sæti. n Litaver & Teppabúðin Grensásvegi 18, 108 Reykjavík Símar: 568-1950 og 581–2444 www.litaver.is Teppabúðin - Litaver: Öflug sérpöntunarþjónusta og úrval lausna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.