Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Síða 34
Helgarblað 29. apríl–2. maí 20166 Gæða gólfefni - Kynningarblað Kjaran: Grátt og hrátt útlit T ískan í gólfefnum er alltaf að breytast. Á heimilum landsmanna hafa parket og steinn notið mikilla vinsælda undanfarna áratugi og lit­ brigði og form þessara efna hafa ver­ ið í stöðugri þróun. Kjaran ehf. er heildverslun með gólfefni og skrif­ stofutæki. Fyrirtækið á sér langa sögu sem hófst þegar heildverslun Magn­ úsar Kjaran var stofnuð árið 1930 og er hún því með elstu heildsölum lands­ ins. „Gólfefni er ein aðalvaran okk­ ar,“ segir Arnar R. Birgisson fram­ kvæmdastjóri. Hann segir að mikil reynsla og þekking hafi myndast hjá fyrirtækinu á þessum tíma og starfs­ menn þess sinni þörfum og óskum viðskiptavina af fagmennsku.“ Lökkuð, flotuð gólf Nýjustu form steingólfa eru lökkuð flotuð gólf, en útlit þeirra er grátt og hrátt og þau falla vel að tísku dags­ ins. Að sögn Arnars er spennandi nýj­ ung hjá fyrirtækinu. „Það er BetonDe­ sign frá hollenska fyrirtækinu Eurocol sem inniheldur öll nauðsynleg efni til að fullvinna flotað og lakkað steingólf og við bjóðum upp á átta litbrigði. Við höfum árum saman selt undirlags­ og viðgerðarefni frá Eurocol og þau eru þekkt á meðal fagmanna hér á landi sem fyrsta flokks vara. Annar valmöguleiki hjá okkur fyr­ ir þá sem sækjast eftir útliti flotaðra steingólfa er Concrete vörulínan frá Forbo sem inniheldur 16 steingrá lit­ brigði af linoleum gólfdúkum. Kostir linoleum gólfdúka eru hlýtt yfirborð, mýkt, slitstyrkur og hljóðdempandi eiginleikar. Linoleum er algjörlega náttúrulegt efni og mjög umhverfis­ vænt.“ Mikið úrval vínylgólfefna „Grátt og brúnt hefur verið ráðandi í litavali á gólfefnum undanfarin ár en nú merkjum við breytingu. Fólk er far­ ið að velja fjölbreyttari og líflegri liti. Þegar sömu mynstrin og litirnir hafa verið vinsælir í ákveðinn tíma koma viðskiptavinirnir aftur og leita að nýj­ um möguleikum. Við erum alltaf að fá inn nýjar vörur og vörulínur,“ segir Arnar. „Auk þess höfum við mikið úrval vínylflísa og vínyldúka sem líta algjör­ lega út eins og náttúruleg gólfefni og vinsældir þessara gólfefna hafa aukist mjög á síðustu árum um allan heim. Vínylflísarnar eigum við til í útliti steinflísa og fjölbreyttra viðartegunda. Kostir vínylgólfefna eru þau að efnið er vatnshelt og draga ekki í sig raka. Þau þenjast því ekki og dragast saman eins og náttúrulegur viður, auk þess sem vínyl þarf aldrei að slípa, lakka eða bóna,“ segir hann. (Sjá mynd af sýnishornabókum á langborði).“ Kjaran býður upp á alla þjónustu, hjálpa við að velja rétta efnið, senda menn á staðinn til að taka mál, gera tilboð og útvega fagmenn í verkið. n Kjaran ehf., Síðumúla 12–14, 108 Reykjavík. Sími: 515 – 5500.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.