Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Side 55
Helgarblað 29. apríl–2. maí 2016 Menning 47
Sérmerktu
persónulegu
gjafavörurnar
ALLT MERKILEGT
GarðatorG 3, Garðabæ - S: 555 3569 - Sala@alltmerkileGt.iS - alltmerkileGt.iS
Pantaðu í netversluninni
Hægt er að fá bæði sent heim
eða sækja í nýju versluninni okkar!
Allt
merkilegt
10 árA
Opið virka daga 10 - 18,
Laugardaga 11 - 16,
Sunnudaga Lokað
Rauðarárstígur 12 - 14
sími 551-0400
www.myndlist.is
Við leitum að verkum eftir frumherjana í íslenskri myndlist.
Sérstaklega eftir Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval,
Kristínu Jónssdóttur, Louisu Matthíasdóttur, Þórarinn B.
Þorláksson, Svavar Guðnason og Nínu Tryggvadóttur.
Ennfremur er mikil eftirspurn eftir verkum Georgs
Guðna, Kristjáns Davíðssonar, Gunnlaugs Blöndal
og Gunnlaugs Scheving.
Áhugasamir geta haft samband
í síma 551-0400
Erum að taka á móti verkum
á næsta listmunauppboð
Við leitum að
listavErkum
Rauður dagur í Moskvu
Ofbeldið í Hardcore Henry er yfirgengilegt á köflum
Á
hve marga vegu er hægt að
drepa mann? Þetta er rann-
sóknarspurningin sem virð-
ist lagt upp með í Hardcore
Henry. Áður en kreditlistan-
um lýkur er kominn nokkuð tæm-
andi úttekt og er þá myndin rétt að
byrja.
Ilya Naishuller er þekktur í Rúss-
landi fyrir störf sín með hljóm-
sveitinni Biting Elbows, og ekki síð-
ur fyrir fyrstu persónu myndböndin
sem hann hefur gert á hennar veg-
um. Mynd þessi er að öllu leyti sýnd
frá fyrstu persónu sjónarhóli. Þetta
form virðist ætla að verða þreytandi
í fyrstu, en gengur þó upp, ekki síst
þar sem hasarnum linnir ekki fyrr
en yfir lýkur.
Ofbeldið er svo yfirdrifið að það
verður nánast kómískt á köflum.
Upplifunin er eins og að horfa á ein-
hvern spila tölvuleik, sem þarf ekki
að vera svo slæmt, en gallinn er sá
að myndin er harðbönnuð innan
16 ára og því er helsti markhópur-
inn útilokaður úr bíói. Hópur ung-
lingspilta fékk ekki inngöngu þegar
blaðamaður var viðstaddur.
Það er hægt að telja vísanirnar ef
maður vill, siðblindi albínóinn, hálf-
vélmenni í anda Robocop, skot-
bardagi í hóruhúsi, en orkan heldur
þessu öllu gangandi. Tæknileg færni
er nú víða orðin svo mikil að ekki
þarf lengur að reiða sig á Hollywood
fyrir afþreyingarmyndir af þessu
tagi, og gaman að hafa Moskvu í
stað bandarískra stórborga í bak-
grunninum. Það er ágætis til-
breyting að fá rússneska hasarmynd
í bíó, og nú er norsk stórslysamynd
næst.
Vonandi verða ekki allar spennu-
myndir í framtíðinni undir svo aug-
ljósum áhrifum frá tölvuleikjum, en
það er gaman að sjá þessa útfærslu
svona einu sinni. n
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kvikmyndir
Hardcore Henry
IMDb 7,0 RottenTomatoes 49% Metacritic 51
Handrit og leikstjórn: Ilya Naishuller
Aðalhlutverk: Sharlto Copley, Danila
Kozlovsky og Haley Bennett
96 mínútur
Fyrsta persóna
Rússneska spennu-
myndin Hardcore
Henry er innblásin af
ofbeldisfullum fyrstu
persónu skotleikjum.