Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2016, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2016, Side 18
Vikublað 10.–12. maí 20166 Ferðalok - Kynningarblað Persónuleg þjónusta og handbragð myndhöggvara Steinsmiðja Akureyrar Í Steinsmiðju Akureyrar samein- ast mikil reynsla og framúrskar- andi fagkunnátta í legsteina- gerð. Stofnandi fyrirtækisins, Þórir Barðdal, hefur unnið að höggmyndalist og steinsmíði í um 30 ár. Hann er lærður mynd- höggvari, nam við Myndalista- og handíðaskóla Íslands og við Lista- akademíuna í Stuttgart í Þýska- landi. Hann starfaði um skeið við höggmyndalist í Houston í Texas í Bandaríkjunum og í Portúgal. Fluttist síðan aftur til Íslands árið 1996 og hefur síðan þá starfað við höggmyndalist og legsteinagerð þar sem síðarnefnda greinin hefur náð yfirhöndinni. „Ég hanna þessa steina mikið til sjálfur. Sumir byggja á ákveðnum staðli en á hverju ári kem ég með nýja útfærslu sem er alveg ný hönnun. Sumar gerðir ná miklum vinsældum en aðrar minni, eins og gengur,“ segir Þórir. Steinsmiðja Ak- ureyrar er staðsett að Glerárgötu 36 á Akureyri en þjónustusvæðið er allt Norðurland, sem og Austurland og Austfirðir. Þórir fer um allt Norður- land og setur niður steina, en steina sem pantaðir eru á Austurlandi og Austfjörðum sendir hann til við- takenda. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði, fyrir tækið tekur hann á sig. Sama verð gildir fyrir allt Norðurland og allt Austurland. Granít og stuðlaberg Steinsmiðjan Akureyri vinnur leg- steina úr tveimur steintegundum, graníti og stuðlabergi. Að sögn Þór- is henta þessar steintegundir best til legsteinagerðar vegna endingar sinnar og vegna þess að þær stand- ast vel íslenskar aðstæður. „Stuðlaberg er eina íslenska efnið sem hægt er að nota í leg- steina enda er það mjög þétt í sér. Granítið hefur hins vegar vinn- inginn hvað varðar liti og áferð, en það er til í öllum litum,“ segir Þór- ir. Mun meira er pantað af granít- steinum en steinum úr stuðlabergi. Steinsmiðjan Akureyri sinnir líka merkingum á legsteina: „Stundum kemur fólk bara með stein af hlaðinu heima eða úr fjallinu fyrir ofan bæinn. Þá aðstoðum við með merkingarnar og gerum steinana þannig úr garði að þeir virki sem legsteinar. Þarf þá kannski að saga neðan af þeim og slípa þá til. Og síðan að grafa í þá,“ segir Þórir. Þetta er óneitanlega mjög persónuleg þjónusta og segir Þór- ir að fyrirtækið leggi mikið upp úr því og sé alltaf reiðubúið að sinna séróskum viðskiptavina. Þjónustan verður að vera persónuleg, sveigj- anleg og umfram allt traust: „Þetta er þjónusta sem fólk leit- ar í örsjaldan á ævinni og það má ekkert bregðast. Við leggjum afar mikla áherslu á að allt standist – alltaf. Það má ekki bregðast,“ segir Þórir með þunga. Steinsmiðjan Akureyri býður einnig upp á úrval af luktum, vös- um og fuglum. Fróðlegt er að kynna sér úrvalið á heimasíðunni, minn- ismerki.is. Sem fyrr segir er Steinsmiðja Akureyrar staðsett að Glerárgötu 36 á Akureyri. Opið er virka daga frá 13 til 17, en lokað um helgar. Síminn er 466-2800. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.