Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2016, Page 25
Helgarblað 22.–25. júlí 2016 Kynningarblað - Verslunarmannahelgin 5
Halldór hjá Húsinu spjallar um Mýrar-
boltann og verslunarmannahelgina
V
eitinga- og skemmtistað-
urinn Húsið er til húsa að
Hrannargötu 2 á Ísafirði og
blasir við um leið og ekið er
inn í bæinn. Halldór ræður
ríkjum í Húsinu og er oftast kennd-
ur við staðinn. Mikið er um að vera
á staðnum hans sem og alls staðar í
bænum um verslunarmannahelgina
en það er Mýrarboltinn sem knýr fjör-
ið áfram þessa helgi. Halldór sjálfur
er vel kunnugur Mýrarboltanum og er
nú að taka þátt í tíunda – og að hans
sögn síðasta skipti.
„Maður er kominn á aldur og ég
ætla að hafa þetta síðasta skipti. Ég
keppi með liðinu FC Kareaoki sem
verður brátt sögufrægt enda er ver-
ið að gera heimildamynd um það,“
segir Halldór, en Mýrarboltinn er nú
haldinn í 12. skipti.
Halldór segir að keppnin hafi
stækkað gífurlega í gegnum árin:
„Í upphafi voru þetta bara fimm
til sex lið en núna eru um 80 lið búin
að skrá sig til leiks,“ segir Halldór.
Það má því eiga von á mörg hundruð
keppendum um verslunarmanna-
helgina en auk keppendanna koma
fjölmargir áhorfendur. Segir Halldór
að ekki megi í milli sjá hvort sé meiri
skemmtun, að taka þátt í keppninni
eða að horfa á hana. Hvort tveggja
sé ógleymanlega upplifun: „Fólk ætti
endilega að skreppa vestur og upplifa
þetta, það verður ekki svikið af því,“
segir Halldór.
Geysilega margt verður í boði á
Ísafirði um verslunarmannahelgina.
Er þar jafnt um að ræða fjölskyldu-
skemmtanir sem næturdansleiki. Á
stað Halldórs, Húsinu, verður mikið
um að vera og má þar meðal annars
nefna dansleik með hljómsveitinni
Boogie Trouble, aðfaranótt mánu-
dags, en hún spilar þá frá miðnætti
til klukkan 4 um nóttina. Fyrr um
kvöldið verður lítil brenna þar sem
fólk safnast saman og Páll Óskar og
fleiri tónlistarmenn koma fram. Það
verður líka stórt ball í Edinborgarhús-
inu um helgina þar sem Páll Óskar
stígur líka á svið.
Það er alltaf mikið að gera í
veitingasalnum hjá Halldóri um
verslunarmannahelgina og raunar
er mikið að gera hjá honum allt sum-
arið. Má búast við því að hvert borð
verið setið alla helgina. Matseðillinn
er fjölbreyttur, frá réttum á borð við
grænmetisbökur og hamborgara upp
í fínustu nautasteikur. Einnig er fiskur
dagsins og súpa dagsins mjög vinsæl
á staðnum. n
„Fólk ætti
endilega
að skreppa
vestur og
upplifa þetta“
Mýrarbolti, matur og menning
um verslunarmannahelgina
Hamraborg
H
amraborg á Ísafirði var
stofnuð árið 1968 og var þá
hefðbundin nýlenduvöru-
verslun. Á næstu áratugum
þróaðist hún í takt við tím-
ann og þarfir viðskiptavinanna. Gísli
Úlfarsson er annar eigenda Hamra-
borgar en hinn er Úlfar bróðir hans.
Að sögn Gísla fæst nú allt milli
himins og jarðar í versluninni – sem
er veitingastaður að auki. „Hjá okkur
fást ýmsar gerðir skyndibita, pítsur,
hamborgarar, pylsur, matvörur, sæl-
gæti og fjölmargt fleira. Við segjum
gjarnan að við séum góðir í öllu – en
sterkastir erum við í pítsunum! Því
get ég lofað,“ segir hann hlæjandi.
„Það verður að vera eitthvað fyrir
alla. Svo er Hamraborgarísinn alltaf
vinsæll enda mjög góður.“
Gítarar, grillmatur og gotterí
Þegar fjölbreytt vöruúrval verslun-
arinnar berst í tal, segir Gísli að ekk-
ert sé heilagt í þeim efnum. „Ef við
bjóðum ekki upp á vöruna sem við-
skiptavinurinn óskar eftir, þá ein-
faldlega reddum við henni bara. Það
er gaman að segja frá því að eitt sinn
kom hingað í Hamraborg kona sem
vildi kaupa fiðlu. Við útveguðum
fiðlu og meðan hún var hér uppi á
hillu í versluninni og beið kaupanda
síns, seldum við hana þrisvar sinn-
um, þ.e. við þurftum alltaf að panta
nýja jafnóðum. Við seljum líka gítara
og því er óhætt að segja að hér sé
fjölbreytni vörutegunda í fyrirrúmi.“
Evrópukeppnin í Mýrarbolta og
landsfrægir tónlistarmenn
„Evrópukeppnin í Mýrarbolta verð-
ur svo haldin hjá okkur á Ísafirði
um verslunarmannahelgina eins og
venjulega og er búist við að á bil-
inu 1.500–2.500 manns komi vest-
ur þessa fyrstu helgi ágústmánaðar.
Það verða alls sjö vellir, með hágæða
drullu sem ætti að tryggja meirihátt-
ar upplifun bæði keppenda og
áhorfenda.“
Mýrarboltinn er ekki einungis
drullubolti því í kringum hann eru
ýmsir menningartengdir viðburðir í
gangi. Það er þó fyrst og fremst tón-
listinni sem verður gert hátt und-
ir höfði en nú í ár mæta Úlfur Úlf-
ur, Erpur, Sesar A, Emmsjé Gauti,
Agent Fresco, Ultra mega, Playmo,
Mammút, Jón Jónsson og Frikki Dór
sem munu halda uppi fjörinu.
„Við hvetjum fólk til þess að
heimsækja Ísafjörð um verslun-
armannahelgina, mæta á Mýrar-
boltann og njóta góðra veitinga hjá
okkur í Hamraborg,“ segir Gísli að
lokum. n
Hamraborg
Hafnarstræti 7,
400 Ísafjörður
Sími: 456-3166
Opið alla daga 09.00–23.30
Netfang: hamraborg@heimsnet.is