Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2016, Page 19
Vikublað 26.–28. júlí 2016 Sport 15
Í takt við tímann
• Við erum flutningsmiðlun og sjáum um að koma vörum milli landa.
• Við byggjum á víðtækri reynslu úr flutningaheiminum.
„Þetta
hefur verið
frábært
ferðalag“
Katrín Tanja Davíðsdóttir er hraustasta kona heims 2016
Þ
etta er fyrir þig. Saman, að
eilífu og alltaf“ Katrín Tanja
Davíðsdóttir er hraustasta
kona heims í annað sinn.
Áður en hún steig á crossfit-
völlinn á sunnudag tileinkaði hún
ömmu sinni, Hervöru Jónsdóttur,
baráttuna. Þær voru afar nánar, en
Hervör lést á árinu. Katrín, sem er
aðeins 23 ára, hefur lagt gríðarlega
mikið á sig til að ná þessum magnaða
árangri. Hún fær að launum 35
milljónir íslenskra króna.
Katrín fór með sigur af hólmi í fjór-
um keppnisgreinum, en vann mótið á
stigafjölda. Mótið er þannig að kepp-
endur þurfa að ljúka fimmtán grein-
um, á fjórum dögum. Framganga
hennar þykir afar glæsileg, en hún
fór mjög einbeitt inn í mótið og sagð-
ist hafa unnið mjög mikið að því að
vera á réttum stað andlega til að tak-
ast á við það. Heimsleikarnir í cross-
fit eru haldnir af Reebok ár hvert og
keppa konur, karlar og blönduð lið um
titlana.
Jafnaði Anníe
Katrín er önnur íslenska konan til
að vinna þetta afrek, en áður hafði
Anníe Mist Thorsdóttir orðið tvöfald-
ur heimsmeistari, árin 2011 og 2012.
Þetta voru fjórðu leikar Katrínar. Hún
varð í 30. sæti árið 2012, í 24. sæti árið
2013 og svo í því fyrsta í fyrra. Hún
komst ekki í gegnum úrtökukeppnina
árið 2014 og sór þess þá eið að koma
tvíefld til baka, sem hún og gerði. Þá
sagðist hún hafa lært af reynslunni.
„Ég fór að vinna meira með þjálfar-
anum mínum, Ben Bergeron, sem
hjálpaði mér ekki bara að komast í
mitt besta form, heldur líka
að gera mig sterkari and-
lega. Ég held að það
sé mikil vægast.
Allir geta verið
hraustir og æft
mikið,“ sagði
hún í viðtali
við ESPN árið
2015 og bætti
við að það
þyrfti hins
vegar að hafa
hugann við
efnið.
Þótt Katrín
hafi staðið sig afar
vel á mótinu var ekki
ljóst fyrr en alveg undir
það síðasta hver færi með
sigur af hólmi. Þær Ragnheiður
Sara Sigmundsdóttir og Tia-Clair
Toomey veittu henni harða baráttu.
Ragnheiður Sara varð í þriðja sæti, en
Toomey í öðru. Fá stig skildu á milli
fyrsta og annars sætis.
Í viðtali við medium.com segist
Katrín Tanja vera í skýjunum með ár-
angurinn – svo hamingjusöm væri
hún að hún kæmi því varla í orð.
„Þetta hefur verið frábært ferðalag.“
Keppniskona
Katrín er mikil keppniskona. Í við-
tali við DV síðastliðið haust sagð-
ist hún eiginlega alltaf vera að keppa
við eitthvað og sjálfa sig. „Já, ég er
mikil keppnismanneskja. Þegar ég var
krakki skipti engu máli hvað ég var að
gera, ég var stöðugt í keppni. Ég keppti
um það hver væri fljótastur út að leika.
Ég var alltaf að búa til keppnisbraut og
hoppa yfir hitt og þetta. Mér fannst það
skemmtilegast. Ég setti klukku á gólfið,
stóð í handstöðu og mældi hvað ég gat
verið lengi. Ég var alltaf að keppa við
sjálfa mig,“ sagði hún. n
Hraustust Katrín lærði
af ósigrinum 2014 og
lagði allt í sölurnar.
MynD SigTryggur Ari „Þetta er
fyrir þig.
Saman, að eilífu
og alltaf.
gleði Hér má sjá Katrínu
koma í mark eftir sigur í einni
af fimmtán keppnisgreinum.
MynD THe CroSSFiT gAMeS /FACebooK
Sigurreif
Katrín var að
vonum sæl með
sigurinn.
MynD TwiTTer
einbeitt Hér má sjá
Katrínu einbeitta á mótinu.
MynD THe CroSSFiT gAMeS /FACebooK
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is