Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2016, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2016, Blaðsíða 15
Laus störf í Djúpavogshreppi Tónlistarkennari við Tónskólann Tónskólinn auglýsir eftir tónlistarkennara í 50% starf frá 1. janúar 2017. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir í síma 470-8713 eða á skolastjori@djupivogur.is Deildarstjóri við Tónskólann Tónskólinn auglýsir eftir deildarstjóra í 100% starf frá 1. janúar 2017. Nánari upplýsingar í síma 470-8713 eða á skolastjori@djupivogur.is Organisti og kórstjóri Sóknarnefnd Djúpavogskirkju auglýsir eftir organista og kórstjóra fyrir Djúpavogskirkju og fleiri kirkjur í prestakallinu. Starfið er hlutastarf sem hefur undanfarin ár verið sinnt meðfram starfi við Tónlistarskóla Djúpavogs. Við Djúpavogskirkju er virkur áhugamannakór sem æfir reglulega yfir vetrartímann og hefur verið duglegur að halda tónleika og fara í söngferðir. Launakjör eru skv. samningi FÍO. Frekari upplýsingar veitir Ásdís Þórðardóttir í síma 894- 8919. Umsóknir sendist á formann sóknarnefndar asdisth@eldhorn.is Grunnskólakennari Grunnskólinn á Djúpavogi óskar eftir að ráða kennara í 50% stöðu við kennslu í 3. bekk. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir í síma 470-8713 eða á skolastjori@djupivogur.is Læknir Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða lækni til starfa með aðalstarfsstöð á Heilsugæslustöðinni Djúpavogi og sem jafnframt þjóni Breiðdalsvík og Stöðvarfirði. Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2016. Sjá nánar á www.hsa.is og starfsauglýsingavef ríkisins starfatorg.is. Nánari upplýsingar gefur Pétur Heimisson framkvæmdastjóri lækninga í síma 470-3052 og 860-6830, og í netfanginu petur@hsa.is Hjúkrunarfræðingur Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing á heilsugæslu HSA sem sinnir Djúpavogi, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði, ásamt nærsveitum. Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2016. Nánari upplýsingar gefur Nína Hrönn Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar í síma 470-3054 & 862-1030 og í netfangin ninahronn@hsa.is. Rafrænt umsóknarform er á vef HSA www. hsa.is. Sjá einnig www.starfatorg.is. Deildarstjóri á leikskólann Bjarkatún Leikskólinn Bjarkatún óskar eftir að ráða deildarstjóra á yngri barna deild og auk þess óskast leikskólakennari til starfa. Báðar stöður eru lausar frá 1. janúar 2017. Við voginn Starfsmaður óskast til almennra þjónustustarfa í versluninni og veitinga- staðnum Við voginn frá og með 1. janúar 2007. Starfshlutfall 80-100%. Unnnið er á vöktum. Laun skv. kjarasamningi. Viðkomandi þarf að búa yfir mikilli þjónustulund og frumkvæði í vinnu, geta unnið sjálfstætt og í hóp. Jákvæðni og brosmildi eru skilyrði. Hvetjum heilsuhrausta karla og konur til að sækja um. Reynsla er kostur. Áhugasamir sendi umsókn og ferilskrá til vidvoginn@simnet.is Í Djúpavogshreppi er samheldið og öflugt samfélag fólks sem kýs að búa í litlu sveitarfélagi úti á landi. Umhverfisstefna sveitarfélagsins er metnaðarfull, náttúra þess einstök og möguleikar til útivistar og heilsuræktar fjölbreyttir. Við erum stolt af því að vera eina Cittaslow sveitarfélagið í landinu. Markmið Cittaslow er að auka lífsgæði og ánægju fólks með því að veita hnattvæðingu, einsleitni og hraðaáráttu í borgum og bæjum nútímans viðnám. Vinalegur og vistvænn Ný 2017 Hobby hjólhýsi og húsbílar á sanngjörnu verði Mun breiðari og vandaðri inngönguhurð og nokkrar fleiri breytingar á 2017 hjólhýsunum. Góður tími til að fá verð og panta fyrir vorið. Facebook: B1 innflutningur bíla og hjólhýsa Email: boas@b1.is / Miðvangur 1-3 700 Egilsstöðum / Upplýsingar gefur Bóas Eðvaldsson í síma 777 5007

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.