Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2016, Blaðsíða 32
Vikublað 1.–3. nóvember 201628 Menning
Er skipulagið í lagi...?
Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki
Brettarekkar
Gey
mslu
- og
dekk
jahi
llur
Mikil burðargeta
Einfalt í uppsetningu
KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609
S
viðslistahópurinn ST/una
frumsýndi fyrir stuttu ein
leikinn Ég vil frekar að
Goya haldi fyrir mér vöku
en einhver djöfulsins fá
viti. Nafn verksins er forvitnilegt og
vel heppnað, enda felur það í sér
bæði ögrun og spennu. Höfundur
þess, Rodrigo García, er fæddur í
Argentínu en fluttist til Spánar árið
1986. Hann hefur skrifað fjölmörg
verk sem vakið hafa bæði áhuga og
andúð áhorfenda og verk hans hafa
verið sýnd víðs vegar um Evrópu.
Það er dýrmætt fyrir íslenskt menn
ingarlíf að fá sýnishorn af því mark
verðasta sem fram kemur í nútíma
leikritagerð beggja vegna Atlants
hafsins. Slíkum sýningum mætti
gjarnan fjölga, ekki síst með það að
markmiði að höfða til yngri áhorf
enda.
Í stuttu máli fjallar leikritið um
mann sem glímir við þunglyndi og
ofsa. Í kröftuglegu sjálfseyðingar
kasti tekur hann út ævisparnað sinn,
nokkur hundruð þúsund krónur, til
þess að fara til Madrídar og brjót
ast inn í Pradosafnið eftir lokun.
Þar hyggst hann eyða nóttinni í að
horfa á hinar óhugnanlegu svörtu
myndir Goya, sem sýna heim
inn til helvítis farinn. Með í partíið
býður hann sex og ellefu ára sonum
sínum. Þeim hugnast reyndar betur
að heimsækja Disneyland Parísar
en fallast á ferðalagið eftir mjög
áhugaverðar samningaviðræður. Til
að auka enn fjörið og klára örugg
lega allan sjóðinn er splæst í áfengi,
kókaín, þýskan heimspeking, dýra
hótelgistingu, kjötlokur og margra
klukkutíma leigubílarúnt.
Una Þorleifsdóttir fer einfalda
leið í sviðsetningunni, salurinn er
reykfylltur þannig að áhorfendur
sjá lítið frá sér þegar þeir ganga að
sætum sínum. Leik
arinn stendur nán
ast í sömu sporun
um allan tímann
í ljósrákum sem
skera reykinn.
Upphafsatriðið
reynir töluvert á
þolinmæði áhorf
enda og hefði al
veg mátt missa sín.
Sýningin fer ekki af
stað fyrr en textinn
byrjar að hljóma.
Stefán Hallur talar
ýmist í hljóðnema
eða beint til áhorf
enda, sem sitja í
mikilli nálægð við
hann. Hljóðnem
inn virkar vel í
persónulegustu samtölunum, því
með hárnákvæmri raddbeitingu
leikarans er eins og hljóðkerfið
magni hugsanir fremur en rödd.
Stefán er lunkinn við að brjóta upp
bæði hljómfall og hraða þannig að
frásögnin dettur sjaldnast niður.
Hann veltir upp
misáhugaverð
um meinum á
staðalsamfé
laginu og stekkur í hlutverk sona
sinna þegar hann rífst við þá. Texti
drengjanna er mjög fullorðinslegur,
jafnvel leiðinlega skynsamlegur og
súrrealískt að ímynda sér þá ræða
við skapofsamanninn, föður sinn, á
þessum nótum.
Sýningin er á margan hátt tækni
lega mjög vel unnin af bæði leik
ara og leikstjóra. Áhorfendur kynn
ast spennandi leikskáldi og sjá nýja
hlið á Stefáni Halli, sem leikur hlut
verk sitt af mikilli list. Verkið er ekki
hefðbundið, taumlaus textinn er
gagnrýninn á veruleika okkar en
býður ekki upp á neinar lausnir
og persóna verksins tekur engum
breytingum.
Fjölmargir hafa reynslu af því að
hafa einhvern tímann á lífsleiðinni
tekið þá meðvituðu ákvörðun að
sturta lífi sínu niður með heimsku
legum hætti. Það stendur upp úr eftir
þessa sýningu að munurinn á okkur
og öðrum Evrópubúum í síkum hug
leiðingum, er helst sá að á meðan þeir
taka út ævisparnaðinn til að kosta
sjálfseyðingarpartíið þá bætum við
einu láni til viðbótar í safnið. n
Flóttinn
til helvítis
Bryndís Loftsdóttir
ritstjorn@dv.is
Leikhús
Ég vil frekar að Goya
haldi fyrir mér vöku en
einhver djöfulsins fáviti
Höfundur: Rodrigo García
Leikstjóri: Una Þorleifsdóttir
Leikari: Stefán Hallur Stefánsson
Lýsing: Magnús Arnar Sigurðarson
Tónlist: Oddur Júlíusson
Sýnt í Kúlunni í
Þjóðleikhúsinu
Satúrnus étur son sinn Eitt
af þeim málverkum Goya sem
aðalpersóna leikritsins mun sjá í
Pradó-safninu í Madríd.
Að sturta lífi sínu niður
Stefán Hallur sýnir á sér nýja
hlið í hlutverki manns sem
tekur út ævisparnað sinn í
kröftugu sjálfseyðingarkasti
og ákveður að taka syni sína
til Madrídar og brjótast inn í
Prado-safnið eftir lokun.
Samfélagskrafan
er að listamenn
séu malandi
gæludýr
Hannes Lárusson gagnrýnir stöðu myndlistarinnar
B
einskeytt orð Hannesar Lárus
sonar um íslenska myndlist
sem hann lét falla í viðtali á dv.
is um helgina hafa vakið nokkra
athygli í listaheiminum. Tilefni viðtals
ins var sýningin Kwitcherbellíakin sem
hann stóð að ásamt Tinnu Grétars
dóttur og Ásmundi Ásmundssyni – en
það er sami hópurinn og stóð að einni
umdeildustu listsýningu síðustu ára,
Koddu, árið 2009.
Ræddi Hannes meðal annars um
gagnrýnisleysi íslenskra listamanna
og hversu óáberandi þeir væru í um
ræðunni, en þar með sé það fyrst og
fremst markaðurinn og pólitíkin sem
ákvarði hvaða farangur íslenskt samfé
lag taki með sér inn í framtíðina.
„Það er engin andstaða lengur inn
an listaheimsins og engin gagnrýni
kemur almennt frá listamönnum; sem
reyndar er ekki von þar sem tilvistar
grundvöllur þeirra er mjög þröngt
skammtaður. Listamenn eru alltaf að
reyna að gera hosur sínar grænar fyrir
utanaðkomandi öflum og missa smám
saman sjónar á einhverjum dýpri
veruleika. Það er ekki viðurkennt leng
ur í þessari menningu – og alls ekki á Ís
landi – að listamenn séu hugsandi ver
ur. Ef þið flettið upp í dagblöðum frá 20,
30 eða 40 árum síðan þá eru löng viðtöl
við listamenn því þeir voru álitnir hafa
eitthvað til málanna að leggja, þetta er
útilokað í dag! Ef þeir halda að þeir séu
svolítið gáfaðir þá leika þeir sig meira
að segja heimska svo eitthvert mark
verði tekið á þeim. Þetta leiðir svo aftur
til þess að alvarlegum fræðimönnum
eða hugsandi fólki dettur varla lengur
í hug að fá myndlistarmenn í umræð
ur eða pallborð um pólitík, eða sam
félagsmál, jafnvel ekki einu sinni um
arkitektúr eða stefnumótun í eigin fagi.
Samfélagskrafan virðist vera að lista
menn séu grínaktugir, eilífðar popp
arar og „afþreyjarar“ sem umfram allt
eru þægir ljáir í þúfu, malandi gæludýr.
Fólk virðist ekki lengur vilja sækja vit og
visku í listirnar heldur staðfestingu og
réttlætingu á eigin hringavitleysu.“ n
Lestu viðtalið í heild sinni á www.
dv.is/menning
kristjan@dv.is
Mynd SigTryggur Ari