Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2016, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2016, Blaðsíða 25
Vikublað 1.–3. nóvember 2016 Sport 21 101 milljón evra á síðustu þremur árum. Þó ber að hafa í huga að þessi félög hafa einnig selt leikmenn á móti á meðan RB Leipzig hefur ekki selt leikmenn svo neinu nemur. Félagið óvinsælt Knattspyrnuunnendur eiga það til að hrífast með og samgleðjast klúbb­ um sem synda gegn straumnum og ná góðum árangri, þvert á væntingar. Gott dæmi um þetta er Leicester sem varð Englandsmeistari á síðustu leik­ tíð. Þó að RB Leipzig sé ungt félag fer því fjarri að það sé það vinsælasta meðal þýskra knattspyrnuunnenda eins og kom fram í umfjöllun Guard­ ian um félagið í september síðastliðn­ um. Fyrsti heimaleikur RB Leipzig í efstu deild var gegn Borussia Dort­ mund í ágúst. Fyrir leik ákváðu stuðn­ ingsmenn Dortmund að ferðast ekki til Leipzig. Að sögn talsmanna stuðn­ ingsmanna var þetta gert til að mót­ mæli því hvernig staðið er að mál­ um hjá RB Leipzig. „Auðvitað græðir Dortmund peninga. En við gerum það til að geta spilað fótbolta á hæsta stigi. Leipzig spilar fótbolta til að selja vöru og ákveðinn lífsstíl. Það er mun­ ur þar á,“ sagði Jan­Henrik Gruszecki, stuðningsmaður Dortmund og einn þeirra sem skipulögðu mótmælin. Keyptu lið í fimmtu deild Áður en RB Leipzig komst í eigu Red Bull hét félagið SVC Markranstädt og lék í fimmtu efstu deild Þýskalands. Félagið var lítt þekkt og jafnvel heima fyrir, í Neðra­Saxlandi, var það á vör­ um fárra. Árið 2009 komu forsvars­ menn Red Bull að máli við stjórn­ endur félagsins, festu kaup á því og skiptu um nafn. Samkvæmt þýskum lögum mega íþróttafélög ekki heita eftir styrktaraðilum og því ákváðu stjórnendur félagsins að nefna fé­ lagið Rasen Ballsport Leipzig, eða RB Leipzig sem stjórnendur vilja að allir noti. Glöggir lesendur átta sig eflaust á því að RB er vísun í Red Bull. Reglur gera liðum erfitt fyrir Það eru ekki markaðsaðferðir RB Leipzig sem stuðningsmenn annarra liða eru ósáttir við, heldur miklu frekar sú hætta sem þeir telja að þýsk­ um fótbolta stafi af félaginu og öðrum líkum. Hingað til hefur heilbrigt eignarhald einkennt þýskan fótbolta og eru reglur í gildi sem gera vellauð­ ugum fjárfestum erfitt fyrir að taka yfir heilu félögin. Samkvæmt hinni svonefndu 50+1 reglu verða félög sem spila í þýsku deildarkeppnunum að ráða yfir meirihluta atkvæða sem varða félög­ in. Reglunni var komið á árið 1998 til að tryggja að meðlimir félaganna, stuðningsmenn, hefðu völdin og til að koma í veg fyrir að til dæmis erlendir fjárfestar gætu eignast meirihluta í fé­ lögunum. Í tilfelli Borussia Dortmund þýðir þetta til dæmis að þeir 139 þús­ und stuðningsmenn sem greiða ár­ gjald til félagsins hafa mikil áhrif og geta meðal annars komið í veg fyr­ ir miðahækkanir. Forsvarsmenn RB Leipzig komust ekki hjá því að hlíta þessari reglu þótt þar á bæ hafi menn reynt ýmislegt til að fara á svig við hana. Árgjaldið fyrir stuðnings­ menn RB Leipzig er þúsund evrur, 125 þúsund krónur, á meðan árgjaldið hjá Dortmund er 62 evrur, 7.700 krón­ ur. Í umfjöllun Guardian í september kom fram að meðlimir Leipzig, sem hafa atkvæðis rétt ef svo má segja, séu einungis 17 talsins, þar af er meirihluti hátt settir starfsmenn Red Bull. Brekkan á köflum brött Allt þetta hefur hleypt illu blóði í stuðningsmenn annarra liða og hefur brekkan á köflum verið brött fyrir forsvarsmenn RB Leipzig. Í leik gegn Union Berlin árið 2014 tóku stuðn­ ingsmenn Berlínarliðsins sig til og klæddust svörtum regnstökkum. Þeir þögðu svo fyrstu fimmtán mín­ útur leiksins. Í leik gegn Dynamo Dresden í þýska bikarnum í byrjun leiktíðar köstuðu nokkrir stuðnings­ menn Dresden­liðsins nautgripa­ hausum inn á völlinn. Og stuðn­ ingsmenn Hoffenheim, sem hefur stundum verið kallaður plastklúbb­ ur vegna eignarhaldsins á félaginu, mættu með borða á leik gegn Leipzig fyrr á tímabilinu sem á stóð: „Við viljum krúnuna okkar aftur – mest hataði klúbbur Þýskalands.“ Áður en að leiknum gegn Dortmund kom meinaði Dortmund forsvarsmönnum RB Leipzig að nota lógó gestaliðsins á trefla og annan varning sem jafnan er seldur fyrir leiki. Þó að félagið sé ekki það vin­ sælasta í Þýskalandi er það vin­ sælt meðal margra íbúa Leipzig. RB Leipzig er eina fótboltaliðið frá fyrr­ verandi Austur­Þýskalandi sem spilar í efstu deild og það fyrsta í áraraðir frá Leipzig sem nær einhverjum árangri. Liðið spilar á glæsilegum heimavelli, Red Bull Arena, sem var byggður árið 1954 en tekinn í gegn fyrir HM í Þýskalandi árið 2006. Völlurinn tekur um 42 þúsund áhorfendur og er upp­ selt á nær alla leiki liðsins. Spila flottan fótbolta Forsvarsmenn og áhangendur RB Leipzig hafa svarað gagnrýnisrödd­ um fullum hálsi og bent á að félag­ ið sé ekki frábrugðið öðrum þýskum félögum. Ralf Rangnick, sem er öll­ um hnútum kunnugur í þýskum fót­ bolta, er yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu og hefur úrslitavald varð­ andi kaup og sölu á leikmönnum. Knattspyrnustjórinn heitir Ralph Ha­ senhuttl og er 49 ára. Hann lék á sín­ um tíma nokkra landsleiki fyrir Aust­ urríki og hafði áður gert ágæta hluti með FC Ingolstadt og komið liðinu í deild þeirra bestu. Undir þeirra stjórn hefur liðið spilað áferðarfallegan og skemmtilegan fótbolta. Á undan­ förnum árum hefur félagið fjárfest að langstærstum hluta í ungum leik­ mönnum, yngri en 24 ára, og má til að mynda geta þess að hinn ungi Jos­ hua Kimmich sló fyrst í gegn hjá fé­ laginu áður en hann gekk í raðir FC Bayern fyrir síðasta tímabil. Hann hefur blómstrað hjá Bayern á þessari leiktíð og er talinn ein bjartasta von Þjóðverja. Þetta fyrirkomulag hefur gefist vel hjá RB Leipzig og á meðan Ralf Rangnick ræður ríkjum sem yfir­ maður knattspyrnumála má búast við því að félagið haldi áfram að gefa ungum leikmönnum tækifæri og verði hugsanlega næsta stórlið Þýskalands. n n RB Leipzig enn taplaust við topp deildarinnar í Þýskalandi n Klúbburinn var stofnaður 2009 Naby Keita Staða: Miðjumaður Aldur: 21 árs Keita hefur verið besti leikmaður Leipzig í vetur og skorað þrjú mörk í sex leikjum í deildinni. Hann er aðeins 21 árs og kom til félagsins frá Red Bull Salzburg í sumar. Emil Forsberg Staða: Vængmaður Aldur: 25 ára Sænski landsliðsmaður- inn gekk í raðir Leipzig sumarið 2015 frá Malmö. Hann hefur gert góða hluti með liðinu í haust og skorað þrjú mörk í deild. Marcel Sabitzer Staða: Framherji Aldur: 22 ára Þessi efnilegi Austurríkismaður skoraði sitt fyrsta landsliðsmark gegn Íslandi árið 2014. Skoraði bæði mörk liðsins í 2-0 sigri á Darmstadt um helgina. Timo Werner Staða: Framherji Aldur: 20 ára Werner á yfir 100 leiki að baki í efstu deild þrátt fyrir að vera aðeins tvítugur. Spilaði með Stutt- gart áður en hann færði sig um set til RB Leipzig í sumar. Hefur farið vel af stað og skorað þrjú mörk í fimm leikjum á tímabilinu. Helstu stjörnur liðsins: Optrel Vegaview 2.5 DIN er heimsmeistarinn Optrel fótósellu- hjálmar fyrir rafsuðu Stjórinn Austur ríkismaðurinn Ralph Hasenhuettl tók við þjálfun liðsins fyrr á árinu. Hann lék á sínum tíma átta landsleiki fyrir Austurríki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.