Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2016, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2016, Blaðsíða 19
Jólastemningin er komin í Síðumúlann Systur & Makar, Síðumúla 21, Reykjavík S traumhvörf áttu sér stað í rekstri fyrirtækisins Systur & Makar er það flutti Reykjavíkurverslun sína frá Laugavegi upp í Síðu- múla en mikil gróska er nú í síðar- nefndu götunni þar sem mjög fjöl- breytt úrval er af fyrirtækjum. Katla Hreiðarsdóttir, einn eigenda fyrir- tækisins, lýsir þessu svo: „Við fluttum upp í Síðumúlann þegar við misstum húsnæðið okkar á Laugavegi. Við fórum þá að skoða meira í kringum okkur. Við erum mjög öflug á samfélags- miðlum og gerðum könnun með- al notenda okkar þar. Þá kom í ljós að fólk vildi alls ekki hafa okkur í gamla miðbænum. Þar eru erlendu ferðamennirnir en Íslendingar eru í auknum mæli farnir að snúa sér annað. Þessi verslun hefur alltaf verið rekin með Íslendinga í huga bæði hvað varðar hönnunina og vöruúrvalið og við miðum bara við Ísland í markaðssetningu okkar.“ Katla segir magnað að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem á sér stað núna í Síðumúlanum: „ Síðumúlinn er í raun nýtt miðbæjarsvæði, sam- bærilegt við það sem hefur risið á Grandanum. Íslendingar sækja mikið hingað og þjónustan er geysi- leg fjölbreytt. Við stofnuðum síðan Síðumúlasamstökin þar sem fjöl- mörg fyrirtæki vinna saman, aug- lýsa saman, eru með sameigin- lega vefsíðu og Facebook-síðu og við erum meira að segja með sam- ræmdar jólaskreytingar. Þjónustan hér er geysilega fjölbreytt og hér eru auk hinna fjölbreyttu verslana til dæmis bílaverkstæði og tölvu- verkstæði. Síðumúlinn er líka alltaf í leiðinni enda mjög miðsvæðis.“ Auk verslunarinnar að Síðu- múla 21 er Systur & Makar einnig með verslun á Akureyri, að Strand- götu 9. Fyrirtækið er í eigu tveggja systra, sem báðar eru hönnuðir, og maka þeirra, sem koma að rekstrin- um með öðrum hætti. Systurnar eru Katla og María Krista Hreiðars- dætur. Maki Kötlu er Þórhildur Guðmundsdóttir, sem vinnur m.a. í fjárhagnum, á hönnunarverkstæði fyrirtækisins að Síðumúla 32 og í versluninni að Síðumúla 21. Maki Maríu er Börkur Jónsson en hann stýrir verkstæðinu í Hafnarfirði þar sem margir gripir Kristu Design eru gerðir í vatnsskurðarvél sem sker meðal annars út ál, við, flísar, endurunna hjólbarða og fleira. „Ég er innanhúshönnuður að mennt en starfa mestmegnis við fatahönnun í dag og hanna föt und- ir merkinu Volcano Design. María er grafískur hönnuður og vinnur sem vöruhönnuður í dag og hann- ar undir merkinu Krista Design. Við ákváðum að sameina okkur í eina verslun og bæta fleiru við.“ Vöruúrvalið í Systrum & Mökum er afar fjölbreytt en áberandi er fal- leg og metnaðarfull íslensk hönnun sem höfðar sérstaklega til kvenna. Þetta er fatnaður, skartgripir og ýmiss konar híbýlaprýði. Við þetta er bætt við inn- fluttum vörum, til dæmis húð- vörulínu breska gæðamerkis- ins Crabtree & Evelyn, Insight- hárvörum, Essie- naglalökkum og heimilisvöru frá Fairtrade-merki Nkuku ásamt þónokkru öðru. Glæsilegt úr- valið er gott að skoða á heimasíð- unni systurogmakar.is og á Facebook-síðunni Systur og makar Reykjavík. Heimasíða Síðu- múlasamtakanna er sidumuli.is og Facebook-síðan ber heitið Síðumúlinn. Herrakvöld Systra og Maka Vöruúrval Systra og Maka höfðar fyrst og fremst til kvenna en eins og alkunna er lenda karlar oft í vand- ræðum með að finna jólagjaf- ir handa sínum heittelsk- uðu og eða öðr- um konum í sínu lífi! Þess vegna stendur Systur & Makar fyrir sér- stöku herrakvöldi í versluninni að Síðu- múla 21 fimmtudagskvöldið 15. desember. Opið verður lengur þetta kvöld eða til 22. Karlar verða aðstoðaðir sérstaklega við gjafa- valið og á staðnum verða lifandi gínur til að máta föt og skart. Öllu verður síðan pakkað fallega inn á staðnum og auðvitað græjuð kort á pakkana. Á meðan geta viðskipta- vinir slakað á, smakkað á tvíreyktu hangikjöti og drukkið ískalt öl. Það er sannarlega skemmti- leg og frábær lausn fyrir alla karl- menn sem eiga í vandræðum með að finna jólagjöf handa konum að kíkja í Systur & Maka, Síðumúla 21, á fimmtudagskvöldið. n Kíktu í Múlann Áby rgðarmaður og umsjón: Steinn Kári Ra gnarsson / steinn@dv.is 13. desember 2016 Kynningarblað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.