Fréttablaðið - 03.03.2017, Síða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —5 3 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r F ö s t u d a g u r 3 . M a r s 2 0 1 7
Fréttablaðið í dag
skoðun Bergur Ebbi skrifar um
Ananaskisma. 15
sport Aníta Hinriksdóttir kepp-
ir á EM í frjálsum innanhúss í
Belgrad í dag. 20
Menning Einar Falur Ingólfsson
og Sigtryggur Bjarni Baldursson
opna á morgun einkasýningar í
Ketilhúsi á Akureyri. 28
plús 2 sérblöð
l Fólk l Fyrsta heiMilið
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Siggu
Kling
Stjörnuspá
FrÍtt
Heilbrigðiseftirlitin á höfuðborgarsvæðinu lýsa áhyggjum af glæfraakstri innan vatnsverndarsvæðis. Jeppi valt ofan í læk þannig að olía lak í Elliðavatn. Sjá síðu 6 Mynd/HeilbrigðiSeftirlit reykjavíkur.
eFnahagsMál Seðlabankinn hefur
að undanförnu reynt að stemma
stigu við gengishækkunum og aukið
gjaldeyriskaup sín. Þrátt fyrir að
bankinn hafi keypt gjaldeyri fyrir
29,3 milljarða í febrúar styrktist
gengi krónunnar gagnvart evru um
10 prósent í mánuðinum.
Til samanburðar keypti Seðla-
bankinn gjaldeyri fyrir aðeins um
fimm milljarða í janúar. Upphæðin
samsvarar því að bankinn hafi keypt
gjaldeyri fyrir meira en 1,5 milljarða
á dag að jafnaði í nýliðnum mánuði.
Gengi Bandaríkjadals er nú komið
niður fyrir 108 krónur og hefur krón-
an ekki verið sterkari gagnvart dal frá
því í október 2008. Gylfi Magnússon,
dósent í hagfræði, segir að fyrir hinn
almenna borgara sé þróun gjaldmið-
ilsins hið besta mál. – jhh / sjá síðu 4
Keypti gjaldeyri
fyrir milljarða
saMFélag Nefnd Evrópuráðsins gegn
kynþáttafordómum og umburðar-
leysi (ECRI) hefur áhyggjur af efni
sjónvarpsstöðvarinnar Omega og
útvarpsstöðvarinnar Útvarps Sögu.
Þetta kemur fram í fimmtu skýrslu
nefndarinnar um Ísland.
„ECRI tekur eftir því að einkarekna
sjónvarpsstöðin Omega, sem nefnd
er í fjórðu skýrslunni, heldur áfram
að gefa sig að hatursorðræðu gegn
múslimum,“ segir í skýrslunni. Þá
segir einnig að ECRI sé kunnugt um
Útvarp Sögu sem dreifi hatursorð-
ræðu sem beint sé að innflytjendum,
múslimum og hinsegin fólki.
Nefndin hefur einnig áhyggjur
af orðræðu Íslendinga á netinu. Þá
segir að internetið hafi verið notað
til þess að tjá fjandsamlegt viðhorf
til hinsegin fólks. „Má nefna sem
dæmi viðbrögð við fréttatilkynn-
ingu Hafnarfjarðarbæjar í apríl 2015
um þá ákvörðun að hefja „hinsegin
fræðslu“ í skólum bæjarins.“
ECRI segir enn fremur að sveitar-
stjórnarkosningarnar í júní 2014
hafi einkennst af æstri orðræðu gegn
múslimum. Gagnrýnir nefndin þar
lista Framsóknar og flugvallarvina
sérstaklega. „Framsóknarflokkur-
inn gerði andstöðu við moskuna
og múslima almennt að sínu helsta
baráttumáli og fulltrúi flokksins í
borgarstjóraembætti Reykjavíkur
tilkynnti að hún myndi afturkalla
ákvörðunina um að úthluta landi
undir byggingu moskunnar,“ segir í
skýrslunni.
Nefndin gagnrýnir Ásmund Frið-
riksson, þingmann Sjálfstæðisflokks-
ins. „Í janúar 2015 spurði þingmaður
Sjálfstæðisflokksins á Facebook-síðu
sinni hvort Íslendingar væru óhultir
fyrir hryðjuverkum og vildi láta
gera bakgrunnsrannsókn á þeim
1.500 múslimum sem búa á Íslandi
til þess að komast að því hvort þeir
hefðu sótt æfingabúðir hryðjuverka-
manna.“ Eru þessi ummæli kölluð
umburðarlaus og fordómafull. – þea
Segja boðskap Útvarps
Sögu og Omega hatur
Nefnd gegn kynþáttafordómum og umburðarleysi segir efni Omega og Útvarps
Sögu hatursorðræðu. Ummæli Íslendinga á netinu, þingmanns Sjálfstæðisflokks
og borgarfulltrúa Framsóknar og flugvallarvina eru gagnrýnd í nýrri skýrslu.
Seðlabankinn keypti
gjaldeyri fyrir 29,3 milljarða
í febrúar.
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
3
-D
1
0
4
1
D
1
3
-C
F
C
8
1
D
1
3
-C
E
8
C
1
D
1
3
-C
D
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
0
1
7
C
M
Y
K