Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.03.2017, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 03.03.2017, Qupperneq 8
AÐALFUNDUR FJARSKIPTA HF. Aðalfundur Fjarskipta hf. (Vodafone) verður haldinn fimmtudaginn 16. mars 2017 kl. 16:00 á Hilton Reykjavík Nordica að Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Aðrar upplýsingar: Skjöl og tillögur sem lögð verða fyrir aðalfund er að finna á vefsíðu félagsins vodafone.is/fjarfestatengsl. Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 13 a, 108 Reykjavík, virka daga milli kl. 09:00 – 16:00. Fundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn jafnframt á íslensku. Ekki verður unnt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð á eyðublaði sem unnt er að nálgast á vef félagsins. Endanleg dagskrá og tillögur hafa verið birtar í Kauphöll og er unnt að nálgast á vef félagsins. Sérstök tilnefningarnefnd hefur verið að störfum í samræmi við starfsreglur stjórnar og tilnefningarnefndar. Hluthafar og aðrir sem óskað hafa eftir tilnefningu nefndarinnar til framboðs til stjórnar að aðalfundi félagsins hafa átt þess kost að koma áhuga sínum og eftir atvikum framboði á framfæri við nefndina. Með fyrirvara um að stjórn staðfesti lögmæti hlutaðeigandi framboða leggur tilnefningarnefnd til að þau Heiðar Guðjónsson, Anna Guðný Aradóttir, Hildur Dungal, Hjörleifur Pálsson og Yngvi Halldórsson verði kjörin til setu í stjórn sem aðalmenn. Eftir sem áður er unnt að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega minnst fimm sólarhringum fyrir aðalfund, sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 eða fyrir kl. 16:00 laugardaginn 11. mars 2017. Framboð skulu berast á netfangið: stjorn2017@vodafone.is. Endanlegar upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund. Í samræmi við starfsreglur stjórnar og starfsreglur tilnefningarnefndar gefst hluthöfum tækifæri á að kjósa tvo af þremur fulltrúum í tilnefningarnefnd. Framboðsfrestur til tilnefningarnefndar er til kl. 16.00 laugardaginn 11. mars 2017 og ber að skila framboðum á netfangið: stjorn2017@vodafone.is. Reglur um stjórnarkjör gilda eftir því sem við getur átt um kosningu tilnefningarnefndarfulltrúanna. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá kl. 15:30 á aðalfundardegi. Stjórn Fjarskipta hf. Dagskrá fundarins: 1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess á liðnu starfsári. 2. Ákvörðun um hvernig skuli fara með hagnað félagsins á reikningsárinu 2016. 3. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til staðfestingar. 4. Tillaga um stefnu um arðgreiðslur og/eða endurkaup eigin hluta. 5. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins. 6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir árið 2017. 7. Kosning stjórnar félagsins. 8. Kosning tveggja fulltrúa í tilnefningarnefnd félagsins í samræmi við starfsreglur stjórnar og starfsreglur tilnefningarnefndar. 9. Kosning endurskoðanda félagsins. 10. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins: a) Tillaga um heimild stjórnar til að hækka hlutafé félagsins, sem breytir 4. gr. samþykktanna. b) Tillaga um að heimila félaginu kaup á eigin hlutum, sem verður viðauki við samþykktirnar. 11. Önnur mál löglega upp borin. Vodafone Við tengjum þig Bandaríkin Demókratar þrýsta á afsögn Jeffs Sessions, dómsmála- ráðherra Bandaríkjanna. Telja þeir að hann hafi sagt ósatt, eiðsvarinn, í yfirheyrslum áður en skipan hans í embætti var staðfest. Sessions var þá spurður hvað hann myndi gera ef upp kæmist að einhver tengdur for- setaframboði Donalds Trump hefði átt í sambandi við rússnesk stjórn- völd á meðan á kosningabaráttu stóð. „Ég hef enga vitneskju um slík samskipti. Ég var kallaður stað- gengill einu sinni eða tvisvar á meðan á framboðinu stóð og ég átti ekki í samskiptum við Rússa. Ég get því ekki tjáð mig um þetta,“ sagði Sessions í yfirheyrslunni. Sessions tók þátt í kosningabaráttu Trumps og lýsti snemma yfir stuðningi við frambjóðandann þáverandi. Washington Post greindi hins vegar frá því í gær að Sessions hefði tvisvar rætt við sendiherra Rússa í Bandaríkjunum, Sergey Kis- lyak. Annar fundanna fór fram á skrifstofu Sessions í öldungadeild Bandaríkjaþings í september síðast- liðnum. Þegar Sessions átti í samskiptum við Kislyak, í júlí og september, sat hann í hermálanefnd öldunga- deildarinnar. Talskona Sessions hefur sagt fundi Sessions og Kislyaks tengjast því starfi og að Sessions hafi alls fundað með 25 sendiherrum. Vegna þessa þrýsta Repúblikan- ar, flokksbræður Sessions, einnig á að hann komi hvergi nærri yfir- standandi rannsókn alríkislög- reglu Bandaríkjanna á mögulegum afskiptum Rússa af forsetakosning- um nóvembermánaðar. Kevin McCarthy, þingflokks- formaður Repúblikana í fulltrúa- deild þingsins, segir að það væri fyrir bestu að Sessions kæmi ekki að rannsókninni. „Þú vilt vera viss um að allir treysti rannsakendum,“ sagði McCarthy við fjölmiðla í gær. Á blaðamannafundi í gærkvöldi lýsti Sessions því yfir að hann myndi ekki koma nálægt rannsóknum er beindust að afskiptum Rússa. Demókratar vilja hins vegar ganga skrefinu lengra og krefjast afsagnar Sessions. Þingflokksfor- maður þeirra í fulltrúadeild, Nancy Pelosi, sagði Sessions hafa sagt ósatt, eiðsvarinn, og að „ekkert annað en afsögn hans myndi duga“. Í samtali við fréttastofu MSNBC í gær sagðist Sessions aldrei hafa hitt Rússa til þess að ræða kosninga- baráttuna. „Þær sögusagnir þykja mér ótrúlegar og þær eru ósannar,“ sagði Sessions. Þáverandi þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta, Mike Flynn, var í febrúar beðinn um að segja af sér embætti eftir að upp komst um samtöl hans við sama sendi- herra. Þá kom í ljós að Flynn hefði átt í sambandi við Kislyak áður en Flynn tók við embætti og sagt Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, ósatt um samskiptin. Sá munur er þó á málum þessara tveggja sam- herja að Flynn var óbreyttur borg- ari þegar samtölin áttu sér stað en Sessions þingmaður í öldungadeild Bandaríkjaþings. Mun víkja frá rannsóknum á Rússum Jeff Sessions er sagður hafa logið að öldungadeildarþingmönnum. Hann hitti sendiherra Rússa tvisvar á meðan kosningabarátta Trumps stóð yfir. Sessions neitar sök og segist aldrei hafa rætt við Rússa um kosningabaráttuna. Demókratar vilja að hann segi af sér. Jeff Sessions dómsmálaráðherra er hann mætti í yfirheyrslu hjá einni af nefndum öldungadeildarinnar. NordicphotoS/AFp Þórgnýr Einar Albertsson thorgnyr@frettabladid.is Ég hef enga vitn- eskju um slík samskipti. Ég var kallaður staðgengill einu sinni eða tvisvar á meðan á framboð- inu stóð og ég átti ekki í samskiptum við Rússa. Jeff Sessions, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna 3 . m a r s 2 0 1 7 F Ö s T U d a G U r8 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :4 6 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 1 4 -1 1 3 4 1 D 1 4 -0 F F 8 1 D 1 4 -0 E B C 1 D 1 4 -0 D 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 2 3 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.