Fréttablaðið - 03.03.2017, Side 14
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
3 . m a r s 2 0 1 7 F Ö s T U D a G U r14 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
SKOÐUN
Fjármálakerfið á að styðja við hagsmuni heimila og fyrirtækja í landinu, en ekki vera eingöngu til fyrir sjálft sig. Stjórnvöld eru í einstakri stöðu til að
búa svo um hnútana að fjármálakerfið tryggi hagsæld
í landinu. Ekki aðeins getur ríkisvaldið mótað laga
umgjörð fjármálafyrirtækja, heldur geta stjórnvöld gripið
til beinna aðgerða í ljósi umfangsmikils eignarhalds á
stærstu fjármálafyrirtækjum landsins.
Fjármála og efnahagsráðherra birti nýverið drög
að eigendastefnu fyrir fjármálafyrirtæki í eigu ríkisins.
Í henni er aðallega fjallað um vilja hins opinbera til
að selja hlut sinn, en engin framtíðarsýn er sett fram
fyrir fjármálakerfið í heild. Ríkissjóður ráðgerir að eiga
3440% eignarhlut í Landsbankanum hf. til langframa, en
selja allan eignarhlut sinn í Íslandsbanka og Arion banka
þegar aðstæður leyfa.
Hér þarf að staldra við, því áður en kerfislega mikilvæg
fjármálafyrirtæki verða seld þurfum við að meta hvernig
fjármálakerfi hentar best íslenskum aðstæðum. Við eigum
að; 1) skoða heildarstærð bankakerfisins, hvort hægt sé
að hagræða og þá lækka þjónustugjöld og vaxtakostnað,
2) meta hversu stór eignarhlutur ríkissjóðs á að vera í fjár
málafyrirtækjum til skemmri og lengri tíma litið, 3) meta
hvort og þá með hvaða hætti eigi að skilja að viðskipta
banka og fjárfestingarbankastarfsemi, 4) meta hvort
dreift eignarhald eða samþjappað þjóni hagkerfinu best
til lengri tíma litið og 5) skoða hvernig bankakerfið geti
miðlað erlendri lánsfjármögnun í samkeppni við erlenda
banka. Í þessari mikilvægu vinnu er brýnt að líta til alþjóð
legrar þróunar og taka mið af reynslu annarra þjóða.
Í umræðum á Alþingi í upphafi vikunnar lagði ég
áherslu á mikilvægi þess að ráðast í heildarendurskoðun
á fjármálakerfinu áður en sala ríkiseigna hæfist. Víðtæk
sátt virðist vera um slíka endurskoðun, innan efnahags
og viðskiptanefndar er samstaða um að taka málið að sér
og vinna vegvísi að framtíðarskipan íslensks fjármála
markaðar. Það er fagnaðarefni að löggjafinn hafi tekið
að sér það mikilvæga hlutverk á fyrstu stigum málsins.
Fólkið í landinu á skilið að vandað verði til verka.
Efnahagsnefnd
kemur að borðinu
Lilja
Alfreðsdóttir
þingmaður
Framsóknar-
flokksins
Engin
framtíðarsýn
er sett þar
fram fyrir
utan það að
selja skuli
ákveðna
eignarhluta í
bönkunum.
ALVÖRU HÁGÆÐA SÚKKULAÐI
„FAIR TRADE“ VARA
STEVÍA Í STAÐ SYKURS
BELGÍSK GÆÐI OG HANDBRAGÐ
Belgískt fjölskyldufyrirtæki stofnað árið 1996
Brautryðjandi í þróun á stevíu súkkulaði
Þungt hljóð
Það var heldur þungt í hljóðið
henni Tinnu Brynjólfsdóttur,
sem er eiginkona banka-
manns sem situr í fangelsi.
Tinna skrifaði Guðna forseta
bréf og bað um áheyrn hans
en fékk ekki. Viðbrögðin urðu
þau að skrifa grein á Vísi þar
sem hún segir synjun Guðna
lýsa gerð hans. „Það sem hann
blessaður hefur tekið sér fyrir
hendur hingað til er nú ekki
beint allt mjög skynsamlegt
eða að skila miklu,“ sagði
frúin og virtist ekki par sátt
við hlutskipti sitt.
Ákvörðun forsetans
Embætti forseta Íslands er
ungt embætti og mótast með
hverjum þeim einstaklingi
sem gegnir því hverju sinni.
Við minnumst Vigdísar sem
fyrsta kvenforseta heimsins
og vegna áherslu hennar á
tungumál og umhverfisvernd.
Við minnumst Ólafs Ragnars
fyrst vegna áherslu hans á að
greiða leið viðskiptamanna
erlendis en síðan vegna bar-
áttu hans fyrir því að almenn-
ingur en ekki bara stjórn-
málamenn tækju ákvörðun
um lyktir Icesave-málsins. Of
snemmt er að sjá fyrir hvað
Guðna verður minnst. En allir
eiga forsetarnir það sameigin-
legt að þeim er í sjálfsvald sett
hverja þeir hitta og hvenær.
jonhakon@frettabladid.is
Ein helsta forsenda þess að hægt var að hefja almenna haftalosun á Íslendinga í byrjun árs voru aðgerðir sem gripið var til gagnvart eigendum aflandskróna. Þeir stóðu frammi fyrir skýrum valkostum. Að taka þátt í gjaldeyrisútboði Seðlabankans, þar sem þeim
bauðst að selja eignir sínar fyrir gjaldeyri á genginu 190
krónur fyrir hverja evru, ella þurfa að sæta því að sitja
fastir með fé sitt á læstum vaxtalausum reikningum
um ófyrirséðan tíma. Þeir bandarísku fjárfestingar
sjóðir sem áttu meginþorra þessara krónueigna kusu
síðari kostinn og fóru því aftast í röðina. Þessar aðgerðir
voru nauðsynlegar til að girða fyrir þann möguleika að
aflands krónueignir gætu valdið óstöðugleika samtímis
því að opnað yrði fyrir fjármagnsviðskipti Íslendinga.
Þessir sömu sjóðir, sem eiga samanlagt um 150 millj
arða í aflandskrónum, freista þess nú að fá stjórnvöld til
að breyta leikreglunum. Greint var frá því í Markaðnum
í vikunni að íslenskir embættismenn hefðu fundað með
fulltrúum sjóðanna í New York til að kanna grundvöll
að samkomulagi sem myndi gera þeim kleift að flytja
eignir úr landi í skiptum fyrir gjaldeyri. Ljóst þykir að
slíkt samkomulag myndi þýða umtalsvert hagstæðara
útboðsgengi fyrir sjóðina en þeim stóð til boða í fyrra.
Það hefur legið fyrir frá upphafi að forsvarsmönnum
bandarísku sjóðanna hugnaðist ekki þessi staða – og
hafa þeir beitt ýmsum úrræðum til að reyna að grafa
undan aðgerðum íslenskra stjórnvalda. Óþarfi er hins
vegar að efast um lögmæti þeirra enda er aðferðafræðin
gerð í samráði við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og í fullu
samræmi við íslensk lög og alþjóðlegar skuldbindingar.
Stóru lánshæfismatsfyrirtækin hafa lagt blessun sína
yfir aðgerðirnar og hækkað lánshæfiseinkunn ríkis
sjóðs. Þá gerði Eftirlitsstofnun EFTA undir lok síðasta árs
ekkert með kvartanir bandarísku sjóðanna.
Það skýtur þess vegna skökku við ef stjórnvöld hafa í
hyggju að hverfa frá fyrri stefnu á þessum tímapunkti og
hleypa sjóðunum úr landi á mun hagstæðara gengi en
öðrum aflandskrónueigendum bauðst í fyrra – áður en
búið er að afnema höftin á Íslendinga. Bjarni Benedikts
son forsætisráðherra neitaði því aðspurður á Alþingi
í gær að um stefnubreytingu væri að ræða í þessum
efnum. „Það kemur ekki til greina að skapa ein hverja
lausn fyrir aflandskrónu eig endur sem ekki felur það um
leið í sér að hægt verði að fara í fullt afnám hafta.“
Ekki er ástæða til að efast um þau orð forætisráðherra.
Þótt efnahagsstaða Íslands hafi líklega aldrei verið betri
þá þýðir það ekki að eigendur aflandskróna eigi sjálf
krafa að njóta þeirrar bættu stöðu. Þeir hafa nú þegar
fengið sérmeðferð enda áttu aflandskrónueigendur þess
einir kost um árabil að losna út fyrir höft í tengslum
við fjárfestingaleið Seðlabankans. Allar aðstæður eru
núna fyrir hendi til að stíga skrefið til fulls og opna sem
fyrst alfarið á erlendar fjárfestingar íslenskra lífeyris
sjóða, fyrirtækja og heimila. Stefna stjórnvalda við að
framfylgja áætlun um afnám hafta hlýtur að vera áfram
sú að forgangsraða í þágu íslensks almennings – en ekki
bandarískra vogunarsjóða.
Forgangsröðun
Þeir hafa nú
þegar fengið
sérmeðferð
enda áttu
aflandskrónu-
eigendur þess
einir kost
um árabil að
losna út fyrir
höft.
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
3
-E
4
C
4
1
D
1
3
-E
3
8
8
1
D
1
3
-E
2
4
C
1
D
1
3
-E
1
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
0
1
7
C
M
Y
K