Fréttablaðið - 03.03.2017, Blaðsíða 34
Grindarljósakrónur eru vinsælar, enda smart og nýtískulegar. MYNDir/ANTON BriNK
Í ljósadeild BYKO er gríðarlegt úrval af OSrAM-perum.
Hægt er að fá fjölmargar gerðir af ljósaperum hjá BYKO.
Úrvalið í ljósadeild BYKO er mikið.
Bjarni Ólafur Bjarnason leiðbeinir viðskiptavinum um val á ljósum og perum.
Ljósadeildin í BYKO er ævin-
týri líkust. Það blasa við glitr-
andi ljósakrónur, nýtísku víraljós,
gamaldags loftljós, fallegir kúpl-
ar og allt þar á milli, að ógleymd-
um smart lömpum á borð eða gólf.
Bjarni Ólafur Bjarnason deild-
arstjóri og annað starfsfólk ljósa-
deildarinnar tekur vel á móti við-
skiptavinum, enda er það hafsjór
fróðleiks þegar kemur að lýsingu
fyrir heimilið. „Við leggjum mikið
upp úr að bjóða gott úrval af ljós-
um við allra hæfi, hvort sem fólk
vantar ljós fyrir fyrsta heimilið
eða vill breyta til eða endurnýja
og skipta út eldri ljósum. Við þjón-
ustum einnig verktaka og þá sem
eru að setja upp ljós í blokkir eða
heilu húsin,“ segir Bjarni en hann
fylgist vel með nýjungum á þessu
sviði.
LED-perur eru framtíðin
Inntur eftir tískusveiflum í ljós-
um segir hann allt vera í gangi
en áberandi sé að yngra fólk velji
víraljós eða grindarljós en þá sjást
ljósaperurnar vel. „Nýja peran frá
OSRAM kallast 1906 LED og hún
er mjög vinsæl í slík ljós. Peran
sjálf er falleg og stendur fyrir
sínu ein og sér. Annars eru hefð-
bundnir kúplar alltaf vinsælir og
hangandi ljós í öllum stærðum og
gerðum.“
Lýsingin skiptir miklu máli
á hverju heimili og því þarf að
vanda valið vel. „Í dag er þróunin
yfir í LED-ljós, sem er tvímæla-
laust framtíðin. Við erum með
mesta úrvalið á landinu af perum
frá OSRAM og þar eru LED-per-
urnar fremstar í flokki. LED-per-
urnar eru með lengri líftíma og
eyða minna rafmagni. Þær gefa
frá sér þetta hvíta ljós sem fólk
sækist gjarnan eftir og ljósstyrk-
urinn er svipaður og var á gömlu
glóperunum. Til lengri tíma litið
ætti notkun á LED-perum að
lækka rafmagnsreikninginn á
heimilinu en þær eiga að endast
í allt að fimmtán þúsund klukku-
tíma,“ útskýrir Bjarni.
Umhverfisvænar perur
Stofnkostnaðurinn við að skipta
yfir í LED-perur er dálítill í upp-
hafi en það er fljótt að borga sig
upp með lægri rafmagnsreikningi.
Þær eru einnig umhverfisvænar,
það kviknar strax á þeim og lít-
ill hiti stafar frá ljósinu sjálfu.
„LED-perur hafa mikið þol gegn
hristingi og titringi og gefa ekki
frá sér útfjólubláa eða innrauða
geisla,“ segir Bjarni og bendir á
að LED-perur séu umhverfisvæn-
ar og þeim eigi að skila til endur-
vinnslu. „Við hjá BYKO tökum á
móti perum til förgunar.“
Lightify gerir lífið litríkara
Helsta nýjungin í ljósadeild BYKO
er nýtt ljósakerfi frá OSRAM sem
kallast Lightify og er stórsnjallt.
Lightify-kerfið er algjör bylting á
þessu sviði en um er að ræða ein-
falda ljósastýringu sem hentar vel
á öll heimili.
„Lightify er einfalt kerfi sem
gerir fólki kleift að stjórna lýsing-
unni á heimilinu eins og því hent-
ar, í símanum. Hægt er að stýra
snjallperum, innanhúss sem utan,
á einfaldan hátt með appi í síman-
um. Appið má nota til að kveikja
og slökkva, auka eða minnka ljós-
magn eða breyta um lit. Ljósun-
um er hægt að stjórna hvar sem
er, og því er þetta ekki síst snið-
ugt ef fólk er á ferðinni því þá
virka ljósin sem þjófavörn. Þetta
er ótrúlega einföld lausn sem auð-
velt er að setja upp,“ segir Bjarni.
Virk vefverslun
BYKO þjónustar ekki aðeins höf-
uðborgarsvæðið heldur einnig
landsbyggðina því rekin er öflug
vefverslun á www.byko.is. „Það er
alltaf nokkuð um að fólk kaupi ljós
í gegnum netið og svo sendum við
auðvitað hvert á land sem er.“
Ljós skipta miklu máli á heimilum
Ljósadeild BYKO er ein sú allra glæsilegasta á landinu. Þar má fá allt frá einföldum skermum og víraljósum upp í íburðarmiklar kristals-
ljósakrónur. Að auki býður ljósadeildin upp á breitt úrval af OSRAM-ljósaperum og lausnum fyrir heimilið og ber Lightify þar hæst.
fYrSTA HeiMiLið Kynningarblað LýSiNG
3. mars 20178
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
3
-D
F
D
4
1
D
1
3
-D
E
9
8
1
D
1
3
-D
D
5
C
1
D
1
3
-D
C
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
0
1
7
C
M
Y
K